Allir verða skyldaðir í tvöfalda skimun frá og með deginum í dag Kristín Ólafsdóttir skrifar 15. janúar 2021 12:09 Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra. Vísir/vilhelm Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra lagði til á ríkisstjórnarfundi í morgun að tvöföld skimun á landamærum verði skylda frá og með deginum í dag. Val um tveggja vikna sóttkví við komu til landsins verður því afnumið.
Þetta kom fram í máli Svandísar eftir ríkisstjórnarfund sem lauk um hádegi. Þar kvaðst hún myndu undirrita reglugerð um að skylda alla í tvöfalda skimun við komuna til landsins með fimm til sex daga sóttkví á milli. Einu undantekningarnar sem veittar yrðu þyrftu að vera studdar læknisfræðilegum rökum. Skimunarskyldan tekur gildi strax í dag. Svandís sagði ástæðu þessarar ákvörðunar þau brot á sóttkví sem komið hefðu upp og vísaði hún til „vaxandi alvarleika“ með hverjum deginum sem líður. Óvissa hefur verið uppi um hvort heimild sé fyrir því í lögum að skylda alla ferðalanga í tvöfalda skimun en stjórnvöld hafa í tvígang farið gegn tillögu sóttvarnalækis þess efnis. Svandís sagði að stjórnvöld teldu nú að lög styðji nægilega vel við ákvörðunina vegna þeirrar alvarlegu stöðu sem komin er upp. Hún grípi því til þessa neyðarúrræðis. Þá benti Svandís á að breytingar á sóttvarnalögum væru til meðferðar á Alþingi og í afgreiðslu hjá velferðarnefnd. Hún kvaðst binda vonir við að breytingarnar næðu fram að ganga eins fljótt og hægt er. Þeim sem velja tveggja vikna sóttkví ekki fækkað nægilega Heilbrigðisráðuneytið sendi frá sér tilkynningu um skimunarskylduna skömmu eftir fundinn í dag. Þar segir að það sé mat sóttvarnalæknis að hætt sé við því að smit leki gegnum varnir á landamærum, einkum hjá þeim sem velja fjórtán daga sóttkví í stað sýnatöku. Hingað til hefur komufarþegum verið boðið upp á val þar um. „Það er sérlega brýnt nú að stemma stigu við slíku vegna þeirrar fyrirsjáanlegu og afmörkuðu hættu sem stafar af nýju afbrigði veirunnar sem ítrekað hefur greinst hjá sýktum einstaklingum á landamærum. Gjaldfrjáls skimun hefur ekki leitt til þess að fækkað hafi nægjanlega í hópi þeirra sem velja 14 daga sóttkví í stað skimunar,“ segir í tilkynningu. Komufarþegar sem geta framvísað gildu vottorði um að Covid-sýking sé afstaðin eru áfram undanþegnir sóttvarnaaðgerðum á landamærum. Það sama mun gilda um farþega sem framvísa gildu bólusetningarvottorði. Vonir standi til að á næstu vikum muni bólusetningar draga úr þeirri hættu sem af faraldrinum stafar. Þá verði fyrirkomulag á landamærum endurskoðað mánaðarlega og þá einkum til rýmkunar eftir því sem aðstæður leyfa. Fréttin hefur verið uppfærð.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Almannavarnir Keflavíkurflugvöllur Tengdar fréttir Fimm greindust innanlands Fimm greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Fjórir þeirra sem greindust voru í sóttkví, en einn ekki. Sjö greindust á landamærum. 15. janúar 2021 10:56 Telur tillögu sóttvarnalæknis um aðgerðir á landamærum gríðarlega íþyngjandi Forstjóri Airport Associates telur það mjög brýnt að frumvarp um breytingar á sóttvarnalögum, sem nú liggur fyrir Alþingi, verði samþykkt. Hann segir tillögu sóttvarnalæknis um að farþegar framvísi neikvæðu prófi á landamærum hafa gríðarlega íþyngjandi afleiðingar fyrir flugið. 14. janúar 2021 21:11 „Fólk er bara að skipuleggja næstu daga á ferð og flugi“ Sigurgeir Sigmundsson yfirlögregluþjónn á Keflavíkurflugvelli segir að lögreglumenn á vellinum sjái oft merki þess að fólk ætli ekki að virða sóttkví. Það ætli sér beint í vinnu eða að ferðast um landið. Þeir sem hafni skimun við landamærin beri sumir fyrir sig „stjórnarskrárbundnum rétti“ eða hugnist ekki að láta úr sér lífsýni. Almennt gangi allt þó vel á landamærunum og nær allir velja að fara í tvöfalda skimun. 14. janúar 2021 14:01 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Sagðist ætla að nota tíu milljón króna kókaín allt sjálfur Innlent Sér eftir Landsdómsmálinu: „Ég myndi aldrei gera þetta svona aftur“ Innlent Íslenskar stjörnur fái peninga að gjöf til að leggja undir í veðmálum Innlent Gæti dregið til tíðinda á næstu klukkustundum Innlent Rúður skotnar í spað í verslun innflytjenda Innlent Hjólastólinn í „tengdamömmuboxi“ á toppi bílsins Innlent Allt að fimm milljóna króna sekt á hvern fisk Innlent Arnór Sighvatsson settur varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika Innlent Hver er Kári Hansen? Innlent Quang Le hakkaður á Facebook Innlent Fleiri fréttir Sagðist ætla að nota tíu milljón króna kókaín allt sjálfur Arnór Sighvatsson settur varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika Sér eftir Landsdómsmálinu: „Ég myndi aldrei gera þetta svona aftur“ Íslenskar stjörnur fái peninga að gjöf til að leggja undir í veðmálum Hjólastólinn í „tengdamömmuboxi“ á toppi bílsins Gæti dregið til tíðinda á næstu klukkustundum Fallið frá ráðningarferli og Hermann fylgir Sigurði Inga Allt að fimm milljóna króna sekt á hvern fisk Gamla stjarnan þótti ekki henta nútímakröfum Ekkert eftirlit með veðmálasíðum, landris við Svartsengi og milljónasektir fyrir eldislax Facebook-hakkið hafi ekki áhrif á rannsóknina Hver er Kári Hansen? Nokkurra bíla árekstur á Miklubraut Hafa áhyggjur af fylgistapi flokksins Umferðartafir vegna elds í tengivagni Heimta hundrað milljóna króna tryggingu Engin merki um að kvikuhlaup sé hafið eða að hefjast Gæsluvarðhald beggja framlengt Rúður skotnar í spað í verslun innflytjenda Leggja til kröfu um sólarsellur á þaki nýbygginga Úrskurðaður í síbrotagæslu eftir ofsaaksturinn Svona var Pallborðið með Helgu Þóris og Eiríki Inga Birna sett sýslumaður á Vesturlandi Segir ekkert „dramatískt“ að frétta af eldgosinu Umdeildu frumvarpi um lagareldi breytt Matvælaráðherra segir fiskeldisfrumvarp mikla bragarbót fyrir umhverfið Quang Le hakkaður á Facebook Bein útsending: Kynna skýrslu um aðra orkukosti Aukin virkni í gosinu Grænt ljós á Láka og Flata en ekki Libyu Sjá meira
Fimm greindust innanlands Fimm greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Fjórir þeirra sem greindust voru í sóttkví, en einn ekki. Sjö greindust á landamærum. 15. janúar 2021 10:56
Telur tillögu sóttvarnalæknis um aðgerðir á landamærum gríðarlega íþyngjandi Forstjóri Airport Associates telur það mjög brýnt að frumvarp um breytingar á sóttvarnalögum, sem nú liggur fyrir Alþingi, verði samþykkt. Hann segir tillögu sóttvarnalæknis um að farþegar framvísi neikvæðu prófi á landamærum hafa gríðarlega íþyngjandi afleiðingar fyrir flugið. 14. janúar 2021 21:11
„Fólk er bara að skipuleggja næstu daga á ferð og flugi“ Sigurgeir Sigmundsson yfirlögregluþjónn á Keflavíkurflugvelli segir að lögreglumenn á vellinum sjái oft merki þess að fólk ætli ekki að virða sóttkví. Það ætli sér beint í vinnu eða að ferðast um landið. Þeir sem hafni skimun við landamærin beri sumir fyrir sig „stjórnarskrárbundnum rétti“ eða hugnist ekki að láta úr sér lífsýni. Almennt gangi allt þó vel á landamærunum og nær allir velja að fara í tvöfalda skimun. 14. janúar 2021 14:01