fbpx
Þriðjudagur 23.apríl 2024
Fréttir

Tölva Reykjavíkurborgar segir nei við Múlalund: „Þetta viðhorf borgarinnar er einfaldlega sorglegt“

Björn Þorfinnsson
Laugardaginn 24. júlí 2021 18:15

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Flest bendir til þess að Reykjavíkurborg muni áfram hunsa Múlalund – vinnustofu SÍBS varðandi kaup á margskonar skólavörum fyrir næsta skólaár ólíkt öðrum sveitarfélögum. Í þrjú ár hefur Múlalundur, sem er vinnustofa fyrir fólk með skerta starfsorku, reynt að fá Reykjavíkurborg að samningaborðinu án árangurs.

Sjá einnig: Reykjavíkurborg kaupir ekki vörur af Múlalundi ólíkt öðrum sveitarfélögum –  „Fólkið okkar vill upplifa  að starfskraftar þess skipti máli fyrir samfélagið“

„Þetta viðhorf borgarinnar er einfaldlega sorglegt. Um 80 prósent okkar starfsmanna er með lögheimili í Reykjavík og það eru löng bið eftir plássi hjá okkur. Það er verið að hringja, aðallega frá Vinnumálastofnun, eftir störfum hjá okkur fyrir fólk í brýnni þörf en við getum ekki ráðið fleiri því verkefnin skortir,“ segir Helgi Kristófersson, aðstoðarframkvæmdastjóri Múlalundar.

Helgi Kristófersson, aðstoðarframkvæmdastjóri Múlalundar

Hann segir stöðuna óskiljanlega í ljósi þess að upphæðirnar sem um ræðir séu lágar. „Þetta er spurning um nokkrar milljónir sem dropi í hafið við rekstur skólakerfis borgarinnar. Á móti skapar Reykjavíkurborg atvinnu fyrir hóp sem að er í mjög brothættri stöðu. Þetta sjá önnur sveitarfélög og því er stífnin í borginni furðuleg,“ segir Helgi.

Starfsemin í Múlalundi er afar félagslega- og tilfinningalega mikilvæg fyrir starfsfólkið

Kolbrún Baldursdóttir, borgarfulltrúi Flokks Fólksins, hefur látið sig málið varða innan borgarstjórarnar og á dögunum lagði hún fram fyrirspurn til meirihluta borgarstjórnar af hverju ekki væri verslað við Múlalund. Miðað við vélrænu kerfissvörin sem bárust þar sem Reykjavíkurborg felur sig á bak við rammasamning er að mati Kolbrúnar lítil von að eitthvað breytist.

„Það er því fyrirséð að niðurstaða verði eins og áður sú að flytja þetta inn og kaupa ódýrustu mögulegu vörur. Síðan kemur Reykjavíkurborg og biður Múlalund um að taka fleiri starfsmenn af biðlistum Reykjavíkurborgar til sín í störf við að framleiða vörur sem Reykjavíkurborg vill ekki kaupa. Sveitarfélög í nágrenni Reykjavíkur hafa tekið af skarið og sýnt hverju þau eru megnug í að versla vörur Múlalundar í stað innfluttra vara,“ sagði Kolbrún í bókun sinni.

Kolbrún Baldursdóttir

Reykjavíkurborg hefur fulla heimild til þess að víkja frá rammasamningum þegar um er að ræða viðskipti við verndaða vinnustaði eins og Múlalund og því er ákvörðun borgarinnar fyrst og fremst pólitísk að mati Kolbrúnar.

„Það að fara óhefðbundna leið eins og þá að nýta slagkraft grunnskólanna í Reykjavík sem stærsta notanda skólamappa á Íslandi, til að skapa mikilvæg störf fyrir fólk með skerta starfsorku, er pólitísk ákvörðun. Hér er borgin ekki góð fyrirmynd.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

„Erum við sátt við að algóritminn sjái um uppeldið“

„Erum við sátt við að algóritminn sjái um uppeldið“
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Jón Magnús um þráhyggju virkra í athugasemdum – Bólusetningum kennt um allt sem úrskeiðis fer

Jón Magnús um þráhyggju virkra í athugasemdum – Bólusetningum kennt um allt sem úrskeiðis fer
Fréttir
Í gær

Bongóblíða á landinu í dag og sumarið handan við hornið

Bongóblíða á landinu í dag og sumarið handan við hornið
Fréttir
Í gær

Úkraínumenn skutu rússneska sprengjuflugvél niður – Getur þvingað Rússa til breytinga

Úkraínumenn skutu rússneska sprengjuflugvél niður – Getur þvingað Rússa til breytinga
Fréttir
Fyrir 2 dögum

COLLAB HYDRO – Einstakur drykkur fyrir íslenskar aðstæður

COLLAB HYDRO – Einstakur drykkur fyrir íslenskar aðstæður
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Siggi hakkari fluttur til Danmerkur og veitti Ekstrabladet viðtal – Mikið gert úr njósnum en lítið úr kynferðisbrotunum

Siggi hakkari fluttur til Danmerkur og veitti Ekstrabladet viðtal – Mikið gert úr njósnum en lítið úr kynferðisbrotunum