Vilja fá öflugustu matarsprota landsins Eiður Þór Árnason skrifar 11. október 2021 17:15 Feed the Viking eru meðal þeirra fyrirtækja sem fóru í gegnum hraðalinn árið 2019. Aðsend Þriðja árið í röð stendur Icelandic Startups fyrir viðskiptahraðlinum Til sjávar og sveita sem er sérstaklega ætlaður fyrirtækjum í matvælaiðnaði.
Í ár verður hraðallinn keyrður sem sérstakur markaðshraðall að erlendri fyrirmynd og er hann unnin í samstarfi við GAN – Global Accelerator Network. Nítján fyrirtæki hafa tekið þátt í Til sjávar og sveita á síðustu tveimur árum og hefur nú verið opnað fyrir umsóknir. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Icelandic Startups en óskað er eftir fyrirtækjum sem eru langt komin í vöruþróun, tilbúin með vöru á markað eða hafa byrjað markaðssókn. Umsóknarfrestur er til 1. nóvember og af því loknu verða fimm fyrirtæki tekin inn í hraðalinn. Er leitað að bestu matarsprotum landsins sem munu í gegnum hraðalinn fá öflugan undirbúning og stuðning fyrir markaðssókn innanlands og utan. Hraðallinn hefst þann 15. nóvember og lýkur með uppskerudegi þann 10. desember en Nettó er bakhjarl hraðalsins annað árið í röð. Vilja styðja við útrás íslenskra matvæla Kristín Soffía Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Icelandic Startups, segir þetta í fyrsta sinn sem þau keyri hraðal með áherslu á markaðssókn og útrás. „Markmiðið er skýrt, við viljum styðja við útrás íslenskra matvæla og teljum þetta vera rétta leið. Svona markaðshraðlar eru sannprófaðir og við gerum þetta með góðum stuðningi frá GAN.” Ingibjörg Ásta Halldórsdóttir, markaðsstjóri Samkaupa, Kristín Soffía Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Icelandic Startups og Freyr Friðfinnsson, verkefnastjóri Til sjávar og sveita.Aðsend Freyr Friðfinnsson, verkefnastjóri Til sjávar og sveita, segir að fyrirtæki af landsbyggðinni hafi tekið virkan þátt fram að þessu og greinilegt að nýsköpun sé þar að koma sterk inn. „Það er alltaf gaman að tengja frumkvöðla saman sem eru í sama geira en þeir virðast ná sérstaklega vel saman í matvælaiðnaðinum og myndast því alltaf mögnuð stemning í þessum hraðli,“ segir hann í tilkynningu. Gunnar Egill Sigurðsson, framkvæmdastjóri verslunarsviðs Samkaupa, segir að keðjan hafi strax séð að hún gæti hjálpað sprotafyrirtækjum að yfirstíga þá áskorun sem það er að koma vörum í verslanir og alla leið til neytenda.
Nýsköpun Matvælaframleiðsla Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Davíð Tómas ráðinn framkvæmdastjóri Viðskipti innlent Ballið búið fyrir fullt og allt á B5 Viðskipti innlent Snýr aftur til Snjallgagna Viðskipti innlent Ráðin forstöðumaður hjá OK Viðskipti innlent Farþegum fjölgaði og sætanýting um 85 prósent Viðskipti innlent „Fólk heldur kannski að það sé saklaust að kaupa eina falsaða tösku“ Atvinnulíf Háttsemi dómara ekki saknæm og Isavia fær því enga milljarða Viðskipti innlent Hætta skerðingum til stórnotenda Viðskipti innlent Krökkunum finnst hálf hallærislegt að mamman kunni Friends þættina utan að Atvinnulíf Þarf að greiða kortareikninginn og meira til í málskostnað Neytendur Fleiri fréttir Hætta skerðingum til stórnotenda Davíð Tómas ráðinn framkvæmdastjóri Farþegum fjölgaði og sætanýting um 85 prósent Ráðin forstöðumaður hjá OK Snýr aftur til Snjallgagna Ballið búið fyrir fullt og allt á B5 Yfir milljón farþegar fyrstu fjóra mánuði ársins Háttsemi dómara ekki saknæm og Isavia fær því enga milljarða Mímir nýr forstöðumaður hjá Högum Matvöruverslun og íbúðir steinsnar frá Keflavíkurflugvelli Röntgen Domus og Orkuhúsið fá ekki að sameinast Viljinn tekinn til gjaldþrotaskipta Spá því að stýrivextir haldist óbreyttir Bein útsending: Ársfundur SFS – Best í heimi? Mun bjóða upp á sömu flugáætlun og Bláfugl áður Grindvíkingar borgi allt að þriðjungi hærri leigu en aðrir Guðný og Sigurður Helgi til SI Tekur við stöðu sviðsstjóra Netöryggismiðstöðvar Íslands Hagnaður Íslandsbanka 5,4 milljarðar á fyrsta fjórðungi Arnar Már nýr aðstoðarforstjóri Vinnunetföng algeng leið fyrir hakkara til að brjótast inn í íslensk fyrirtæki Sjö vilja taka við af Gunnari Hagnaður Landsbankans nam 7,2 milljörðum á fyrstu þremur mánuðum ársins Frumkvöðlar koma saman í Kolaportinu Hefja sölu á íbúðum á Orkureitnum Bein útsending: Stærri styrktækifæri í mannvirkjaiðnaði Lokar Önnu Jónu og segir það mikinn létti Hagnaður Arion dróst saman um tvo milljarða Hefja úthlutun lóða í Vatnsendahvarfi Ráðherra bað um tíu milljarða króna í viðbót í arð Sjá meira