Mikið undir í samningaviðræðum dagsins Margrét Björk Jónsdóttir skrifar 4. júní 2023 11:36 Formenn samninganefnda BSRB og sveitarfélaganna funduðu þrjá daga í röð í síðustu viku, án árangurs. Mikilvægur fundur hefst klukkan 13 í dag. Vísir BSRB og Samband íslenskra sveitarfélaga funda hjá ríkissáttasemjara í dag. Ef samningar nást ekki skella á verkföll á morgun. Formaður BSRB segir erfitt að spá til um framvindu dagsins en að félagsfólk búi sig nú undir umfangsmiklar verkfallsaðgerðir.
Verkföllin sem að óbreyttu hefjast eftir sólarhring hjá hátt í 3000 félagsmönnum BSRB í 29 sveitafélögum, munu ná til að minnsta kosti 150 vinnustaða. Ber þar helst að nefna leikskóla, sundlaugar og íþróttamannvirki, auk bæjarskrifstofa, áhaldahúsa og almenningssamgangna. Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB segist halda í bjartsýnina en erfitt sé að spá til um hvernig dagurinn muni þróast. „Það er er einfaldlega þannig að það er breyting á afstöðu sem þyrfti til og þá væri hægt að klára kjarasamning mjög hratt og vel í dag, en við erum líka auðvitað undir það búin að verkföllin hefjist á morgun.“ Sonja segir samtökin ganga til fundarins með mjög skýrar kröfur frá sínu félagsfólki um sömu laun fyrir sömu störf. „Okkar fólk vill ekki sætta sig við það að búa við lægri laun á ársgrundvelli en fólk sem starfar þeim við hlið. Við förum með það nesti inn á þennan fund eins og aðra." Sonja segir stöðuna vera þrönga og ekki svigrúm til að slá af kröfum. Ekki sé um að ræða hefðbundið kjarasamningsferli þar sem verið sé að eiga við fjárhæðir sem komi eins við alla. „Það vantar þarna upp á á ársgrundvelli hjá okkar fólki, samanborið við fólk sem starfar þeim við hlið og það er aðalatriðið sem verður að klára.“ Allt gert til að koma í veg fyrir verkfall Inga Rún Ólafsdóttir, formaður samninganefndar Sambands sveitarfélaga, segir mikið undir í viðræðum dagsins og að allt verði gert til að koma í veg fyrir verkfall. Hún segir tilboð liggja fyrir að samningi þar sem lægstu laun yrðu hækkuð verulega og aðrir fengju hækkun sem væri fyllilega sambærileg við aðra samninga sem gerðir hafa verið að undanförnu við þeirra viðsemjendur. Formaður samninganefnda sambands sveitafélaga segir að á borgðinu liggi tilboð að kjarasamning sem myndi tryggja verulegar hækkanir lægstu launa.Vísir „Ég vona svo sannarlega að menn beri gæfu til þess í dag að horfa til framtíðar og á þennan góða samning sem við erum að bjóða og hætta að vera föst í fortíðinni,“ segir Inga Rún Ólafsdóttir.
Kjaraviðræður 2022-23 Kjaramál Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Innlent Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Erlent Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Innlent Ástand Fico enn alvarlegt Erlent „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Innlent Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Býst við aukinni sókn Rússa Erlent Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Innlent Fleiri fréttir Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra 40 tungumál eru töluð í leik- og grunnskólum Árborgar Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Þungar áhyggjur af þyngdarstjórnunarlyfjum Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Of þung en annars hraust á Ozempic Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Dregur saman með efstu frambjóðendum Mesta kvika frá því að kvikugangurinn myndaðist Nota sykursýkislyf til að léttast og Rottweilerhundar bjóða í partý Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Sendiherra, sveitarstjóri og bæjarstjóri skipuð í nefnd Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Stuðningslán með ríkisábyrgð fyrir grindvísk fyrirtæki Skipið leggur úr höfn „Alls ekki svo að við tútturnar séum að taka yfir“ Sjá meira