Um helgina er von á fimmtíuþúsundasta gestinum á stórsöngleikinn Níu líf í Borgarleikhúsinu og hundraðasta sýningin verður sýnd í byrjun júní. Ekkert lát er á vinsældum Níu lífa enda er uppselt á allar sýningar þessa leikárs og eru sýningar haustsins komnar í sölu.
Vinsældir sýningarinnar, sem fjallar um ævi Bubba Morthens, koma ef til vill ekki á óvart enda er Bubbi einskonar þjóðareign okkar Íslendinga og allir hafa skoðun á honum og tónlistinni hans.
„Þetta hefði svo auðveldlega getað farið illa. Þetta hljómaði eins og ansi hæpin hugmynd þegar hún var kynnt: að búa til söngleik byggðan á ævi og tónlist Bubba Morthens,“ svona hófst leikdómur Þorgeirs Tryggvasonar í Morgunblaðinu. Hann komst að þeirri niðurstöðu að þetta fór alls ekki illa, í rauninni bara nokkuð vel og gaf uppfærslunni fimm stjörnur.