Völdu aðra af tveimur tillögum Þórólfs um landamæraskimun Kristín Ólafsdóttir skrifar 17. nóvember 2020 13:45 Frá Keflavíkurflugvelli, þar sem skimað er fyrir veirunni. Vísir/vilhelm
Ákveðið hefur verið að fella niður gjaldtöku vegna sýnatöku á landamærum frá og með 1. desember næstkomandi. Ákvörðunin er tekin í samræmi við tillögu sóttvarnalæknis en hann lagði til að annað hvort yrði skimun gerð gjaldfrjáls eða að sóttkvíarmöguleikinn yrði afnuminn. Í tilkynningu segir að markmiðið með ákvörðuninni sé að hvetja fólk til að fara í sýnatöku fremur en að fara í tveggja vikna sóttkví. Þannig verði dregið úr líkum á að smit berist inn í landið. Fjallað var um málið á fundi ríkisstjórnar í dag. Í minnisblaði sóttvarnalæknis til heilbrigðisráðherra lýsir hann áhyggjum af því að með vaxandi útbreiðslu faraldursins erlendis aukist líkur á að smit berist inn í landið ef ferðamenn velji sóttkví en fylgi ekki reglum sem gilda um hana. Vísar hann til þess að í mörgum tilvikum hafi kviknað grunur um að ferðamenn muni ekki fylgja reglum um sóttkví, t.d. þegar um er að ræða ferðamenn sem einungis ætla að dvelja hér í nokkra daga. Til að bregðast við þessu leggur hann til að annað hvort verði öllum gert skylt að fara í skimun, nema læknisfræðilegar ástæður mæli gegn því, eða að ekki verði tekið gjald fyrir skimun á landamærum. Þórólfur Guðnason lagði til tvær leiðir á landamærunum í minnisblaði sínu til Svandísar Svavarsdóttur, heilbrigðisráðherra.Vísir/vilhelm Ákvörðun heilbrigðisráðherra um gjaldfrjálsa sýnatöku á landamærum tekur sem fyrr segir gildi 1. desember næstkomandi og gildir til 31. janúar 2021. Landamæraskimunin kostar nú 9.000 krónur í forskráningu en 11.000 ef greitt er á landamærum. Taldi erfitt að skylda fólk í skimun Sóttvarnalæknir hefur nú um nokkurt skeið viðrað áðurnefndar áhyggjur sínar og sagt að öruggast væri að skikka alla sem koma hingað til lands í tvöfalda skimun. Farþegum sem koma hingað til lands stendur nú til boða að fara í tvöfalda skimun, þá fyrstu á landamærunum og aðra eftir 5-6 daga sóttkví, eða fara í tveggja vikna sóttkví. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra sagði í samtali við fréttastofu um helgina að erfitt geti reynst að skylda fólk til að fara í skimun fyrir kórónuveirunni á landamærum. Horfa þyrfti til annarra ráðstafanna þar. „Ég hef talið erfitt að fara í að skylda fólk í skimun. Það eru afar fáir sem velja að fara í sóttkví í stað tvöfaldrar skimunnar. Það er snúið að beita þvingunarráðstöfunum til að fá fólk í skimun ef fólk vill það ekki. Þá þarf að meta hættuna á smiti og þær heimildir sem sóttvarnalæknir hefur til að taka slíkar ákvarðanir en það eru líka aðrar lausnir eins og að hætta að láta fólk greiða fyrir skimunina,“ sagði Áslaug á sunnudag. Fréttin hefur verið uppfærð.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Ferðamennska á Íslandi Keflavíkurflugvöllur Tengdar fréttir Telur erfitt að skylda fólk í skimun á landamærum Dómsmálaráðherra segir að erfitt geti reynst að skylda fólk til að fara í skimun fyrir kórónuveirunni á landamærum, horfa þurfi til annarra ráðstafanna þar. Sóttvarnalæknir segir að verið sé að skoða málið frá mörgum hliðum. 15. nóvember 2020 19:31 Leggja til að ferðamenn geti sloppið við sóttkví með vottorði um fyrra smit Erlendir ferðamenn ættu að geta lagt fram vottorð um að þeir hafi náð bata af Covid-19 og þannig verið undanþegnir kröfum um sóttkví við komuna til Íslands, að mati starfshóps sem heilbrigðisráðherra skipaði í haust. 13. nóvember 2020 21:11 Kallar eftir fyrirsjáanleika vegna aðgerða á landamærum Stjórnvöld vinna nú að framtíðarfyrirkomulagi sóttvarna á landamærunum, sem sagt er forsenda efnahagsbata. Framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar kallar eftir meiri fyrirsjáanleika. 12. nóvember 2020 20:02 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Innlent Einhver í herberginu segi ekki satt Innlent Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Innlent Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Innlent Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Innlent „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Innlent Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Innlent Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju Erlent Telur ekki óeðlilegt að sýna mótmælendum samstöðu Innlent Óvinnufær eftir harkalegt fall þegar strappur slitnaði Innlent Fleiri fréttir Treysta sér til þess að vernda þjóðkirkjuna Magnús Geir vill fimm ár í viðbót í Þjóðleikhúsinu Telur ekki óeðlilegt að sýna mótmælendum samstöðu Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Einhver í herberginu segi ekki satt „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Vendingar í nýrri könnun og mannbjörg á ögurstundu Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Spyr hvort eðlilegt sé að ráðherrar taki þátt í erlendum mótmælum Viktor hvetur forsetaframbjóðendur til að sniðganga Stöð 2 Skipstjórinn og tveir stýrimenn handteknir vegna sjóslyssins Óvinnufær eftir harkalegt fall þegar strappur slitnaði Skipuð aðstoðarlögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu Valdimar Hermannsson nýr sveitarstjóri Vopnafjarðarhrepps Bjarni ætlar að geta Katrínar í formálanum Þórey í Konukoti hlaut mannréttindaverðlaun Reykjavíkur Nafnið Hroði of hroðalegt Fékk sting í hjartað þegar hann sá nafnið á bátnum Um 920 mál óafgreidd hjá kærunefnd útlendingamála Færa almannavarnastig niður á óvissustig vegna vatnslagnarinnar Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“ Vísbending um að flutningaskip hafi hvolft bátnum Skikkar lögreglu til að rannsaka stjórn aðventista Sjóslys, Þórkatla og framtíð Play Kvikusöfnunin áfram stöðug Tóku niður íslenska svikasíðu með FBI Hafna tilboðum í áætlunarflug milli Reykjavíkur og Hornafjarðar Sjá meira
Telur erfitt að skylda fólk í skimun á landamærum Dómsmálaráðherra segir að erfitt geti reynst að skylda fólk til að fara í skimun fyrir kórónuveirunni á landamærum, horfa þurfi til annarra ráðstafanna þar. Sóttvarnalæknir segir að verið sé að skoða málið frá mörgum hliðum. 15. nóvember 2020 19:31
Leggja til að ferðamenn geti sloppið við sóttkví með vottorði um fyrra smit Erlendir ferðamenn ættu að geta lagt fram vottorð um að þeir hafi náð bata af Covid-19 og þannig verið undanþegnir kröfum um sóttkví við komuna til Íslands, að mati starfshóps sem heilbrigðisráðherra skipaði í haust. 13. nóvember 2020 21:11
Kallar eftir fyrirsjáanleika vegna aðgerða á landamærum Stjórnvöld vinna nú að framtíðarfyrirkomulagi sóttvarna á landamærunum, sem sagt er forsenda efnahagsbata. Framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar kallar eftir meiri fyrirsjáanleika. 12. nóvember 2020 20:02