Þungvopnaðir ræningjar létu greipar sópa í tveimur bæjum Brasilíu Kjartan Kjartansson og Samúel Karl Ólason skrifa 2. desember 2020 14:24 Lögregluþjónar að störfum eftir ránið í Criciúma í gær. EPA/Guilherme Hahn Hópur þungvopnaðra bankaræningja myrti gísl og átti í skotbardaga við lögreglumenn á götum smábæjar í Brasilíu í dag. Svipað bankarán þar sem ræningjar beittu skotvopnum og sprengjum var framið í annarri brasilískri borg í gær. Í báðum tilvikum voru ræningjarnir á þriðja tug.
Ræningjar réðust inn í útibú Banco do Brasil í hafnarbænum Camatá í norðanverðri Brasilíu snemma morguns að staðartíma í dag. Þeir voru vopnaðir árásarrifflum. Reuters-fréttastofan segir að á samfélagsmiðlum megi sjá myndir af skotbardaga á götum bæjarins. Þeir réðust einnig á lögreglustöð í bænum svo ekki var hægt að bregðast við bankaráninu. Öryggismálaráðherra Prata-ríkis segir að ræningjarnir hafi myrt einn gísl og þá hafi bæjarbúi verið skotinn í fótlegginn. Hann sé í stöðugu ástandi á sjúkrahúsi. Bæjarstjóri Cametá sagði að sá særði væri ungur karlmaður. Ræningjarnir komust undan í bílalest. Einn flóttabílanna fannst yfirgefinn fyrir utan bæinn og fundur lögreglumenn sprengiefni í honum. Ekki er ljóst hversu marga gísla ræningjarnir tóku eða hvort að þeim hafi öllum verið sleppt. Þá hafa yfirvöld ekki greint frá því hversu mikið fé ræningjarnir höfðu á brott með sér. Ráninu svipar til annars bankaráns sem var framið í bænum Criciúma í sunnanverðri Brasilíu í gær. Þar sprengdu ræningjar sprengjur og skutu á lögreglumenn. Tveir særðust í átökunum og þyrluðust peningaseðlar um stræti bæjarins. Hér að neðan má sjá myndefni frá ráninu í Criciúma. Þar skildu ræningjarnir fúlgur fjár eftir á götum bæjarins og hafa nokkrir verið handteknir fyrir að hafa tekið peninga, sem komu ráninu sjálfu ekki við. Samkvæmt AP fréttaveitunni liggur ekki fyrir hve miklu var rænt úr bönkunum tveimur en mögulega hafi það verið mikið. Hirslur banka séu fullar af peningum vegna launaútborgana og það sé sérstaklega mikið vegna jólabónusa. Þá er ekki búið að staðfesta að um sama hóp ræningja sé að ræða í báðum ránunum. Sérfræðingur sem ræddi við AP segir þó að verulega skipulagningu og mikinn undirbúnað þurfi fyrir rán sem þessi. Banakrán þykja tiltölulega algeng í Brasilíu og hafa stórir bankar átt í vandræðum með fjölda rána á undanförnum árum.
Brasilía Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Viktor og Kári heltast úr lestinni Innlent Halla Hrund fremst í nýrri könnun og Katrín dottin niður í þriðja sæti Innlent Segir upp hjá RÚV og snýr sér að pólitík Innlent Dramatík þegar tveimur var tilkynnt um ólögleg framboð Innlent Ástand hinnar látnu bar þess merki að henni hefði verið ráðinn bani Innlent Ætlaði að ganga frá álverinu og upp á Keflavíkurflugvöll Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Ók blindfullur við Grímsvötn og hótaði að drepa alla Innlent Guðrún á Glitstöðum segir vaðið yfir vilja almennings Innlent Helmingurinn af búslóðinni í ruslið Innlent Fleiri fréttir Yousaf segir af sér sem ráðherra og formaður Skoska þjóðarflokksins Sánchez hættir við að segja af sér Grafið undan fjölmiðlafrelsinu víða í Evrópu Vopnahlé í sjónmáli? Tveir látnir eftir að bíll hafnaði í sjónum við Stokkhólm Fjölmenn mótmæli vegna ofbeldisbylgju í Ástralíu Vasaúr ríkasta manns Titanic seldist á 210 milljónir Þúsundir hvöttu Sánchez til að segja ekki af sér Skoða að færa Mónu Lísu í eigið herbergi Harvey Weinstein lagður inn á spítala Þingmaður hleypti af skoti fyrir utan skemmtistað Rýma dómshús vegna sprengjuhótunar Dómstóll fyrirskipar handtöku landbúnaðarráðherra Selenskís Ákvörðun áfrýjunardómstólsins áfall og stórt skref aftur á bak Trump líklegur til að græða á úrskurði Hæstaréttar Dómi Harvey Weinstein snúið við Tekur fyrir að hafa verið „hermaður Hitlers“ Maður á sextugsaldri sagður hafa stungið grunnskóladreng Sánchez íhugar að segja af sér vegna meintrar spillingar Spaðar Rauðu myllunnar hrundu til jarðar í nótt Skipulögðu árásir í Þýskalandi og víðar í nafni ISKP Fyrstu hergögnin eiga að berast til Úkraínu á næstu klukkustundum Segir ekki af sér þrátt fyrir njósnir aðstoðarmannsins Aðstoðarvarnarmálaráðherra ákærður fyrir mútuþægni Upptök eldsins í gömlu kauphöllinni enn ókunn Settur út af sakramentinu fyrir að stýra minningarstund um Navalní Handtóku barnunga öfgamenn eftir stunguárás í Sydney Ekki ólöglegt fyrir konur að brjóta gegn körlum Grunuð um að hafa banað tveimur börnum Vitni greinir frá ráðabruggi og lögmaður Trump fær viðvörun Sjá meira