Arnar reyndi að fá Kára til að taka skóna af hillunni: „Ekki í myndinni“ Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 5. júlí 2022 13:01 Kári Árnason fagnaði Íslandsmeistaratitlinum í fyrra af innlifun Vísir/Hulda Margrét Vegna manneklu Íslands- og bikarmeistara Víkings í öftustu línu bað Arnar Gunnlaugsson, þjálfari liðsins, miðvörðinn fyrrverandi Kára Árnason að taka skóna af hillunni. Kári starfar í dag sem yfirmaður knattspyrnumála hjá Víkingum.
Á blaðamannafundi Víkings fyrir stórleikinn gegn Malmö kom fram að Arnar hafði beðið Kára um að íhuga að taka skóna af hillunni og vera til taks ef eitthvað kæmi upp á. Kyle McLagan, miðvörður liðsins, viðbeinsbrotnaði á dögunum og verður frá í einhvern tíma. Víkingar eru því heldur fáliðaðir aftast á vellinum en hinn 39 ára gamli Kári segir það einfaldlega ekki koma til greina að rífa takkaskóna fram á nýjan leik. Here is the official squad for the game tonight @Malmo_FF @St2Sport @footballiceland#ChampionsLeague #fotboltinet #st2sport #vikesmalmö pic.twitter.com/LjvwbFJRqR— Víkingur (@vikingurfc) July 5, 2022 „Ég hef ekki gert meira en að skokka undanfarið hálft ár og því er þetta ekki inn í myndinni,“ sagði Kári hreinskilinn. Miðvörðurinn fyrrverandi þekkir vel til í Malmö en hann lék með liðinu frá 2015 til 2017. Kyle McLagan er ekki eini Víkingurinn sem er fjarri góðu gamni en Ingvar Jónsson, markvörður liðsins, er meiddur. Fyrrverandi landsliðsmarkvörðurinn Hannes Þór Halldórsson tók hanskana af hillunni til að geta aðstoðað Víkinga en Kári var ekki sama sinnis. Hannes Þór er þó ekki í leikmannahópi Víkinga í dag. Víkingar eru á góðu róli fyrir leik dagsins en lærisveinar Arnars hafa unnið átta leiki í röð. Hvort sá níundi komi í dag kemur í ljós en leikur Malmö og Víkings í undankeppni Meistaradeildar Evrópu hefst klukkan 17.00. Leikurinn er sýndur beint á Stöð 2 Sport en útsending hefst 20 mínútum fyrr eða 16.40.
Fótbolti Víkingur Reykjavík Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Mest lesið Ómar Ingi skaut Evrópumeisturunum áfram eftir vítakeppni Handbolti FH fékk tvær sektir frá KSÍ Íslenski boltinn Bucks í sögubækurnar eftir sigurinn á Pacers Körfubolti Fengið nóg af því að vera ruslakista fyrir viðbjóð frá fólki Körfubolti Uppgjörið: ÍBV - FH 39-38 | ÍBV tryggði sér oddaleik eftir vítakastkeppni Handbolti „Féllu dómar í dag sem voru að mér fannst ansi augljósir“ Handbolti Dortmund leiðir þökk sé þrumuskoti Füllkrug Fótbolti Elín Jóna færir sig á milli félaga á Jótlandi Handbolti Óheflaði Eyjapeyinn Kári Kristján: „Töpum aldrei í vítakeppnum“ Handbolti Heillaóskum rigndi yfir fimmtán ára hetju Fram í skólanum Íslenski boltinn Fleiri fréttir FH fékk tvær sektir frá KSÍ Dortmund leiðir þökk sé þrumuskoti Füllkrug Logi kom inn af bekknum og skoraði í stórsigri Mark dæmt af Bjarka og dramatík hjá Alexöndru Sjáðu mörkin úr stórleiknum í München Júlíus og félagar unnu frækinn bikarsigur á Rosenborg Kenndi gráðugum Kim um bæði mörkin gegn Real Madrid Lewandowski gæti verið seldur á brunaútsölu Barcelona Bellingham reyndi að taka Kane á taugum fyrir vítið Heillaóskum rigndi yfir fimmtán ára hetju Fram í skólanum „Vestri hefur verið að taka leikhlé“ Courtois ekki með Belgíu á EM Einvígið galopið eftir jafntefli í Þýskalandi „Þú veist alveg svarið við þessu“ Sextán ára og skoraði hjá Arsenal eins og Rooney forðum Víkingar bjóða Grindvíkingum í Víkina á morgun „Real Madrid lofaði mér að ég yrði arftaki Modric“ Félögin sömdu um að banna Sigurbergi að spila Tuchel fullyrti að Gnabry muni skora á móti Real Madrid í kvöld Þrír Íslendingar í liði umferðarinnar Gáttaðar á því að fyrirliði Víkings var settur á bekkinn Guy Smit sendir frá sér afsökunarbeiðni Keflavík og Aftureldingu spáð sigri í Lengjudeildunum Bara Eiður Smári og Bjargvætturinn höfðu skorað fyrir sextán ára afmælið Sjáðu ungar hetjur bjarga Fram og Stjörnunni Hundfúll og ýtti ungum KR-krökkum frá sér: „Ekki fallegt að sjá“ „Mo Salah sá sem að gekk of langt“ Valur sýndi Berglindi meiri áhuga en Breiðablik Fótboltafortíð fjölskyldunnar í sviðsljósinu í viðtali DR við Andra Lucas Manchester-liðin og Aston Villa á móti því að eyðsluþak verði sett á Sjá meira