Lét allt og alla hjá Tottenham heyra það eftir leik Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 18. mars 2023 23:30 Antonio Conte eftir leik dagsins. Andrew Matthews/Getty Images Antonio Conte var ekki skemmt eftir að lið hans, Tottenham Hotspur, missti niður tveggja marka forystu gegn Southampton, botnliði ensku úrvalsdeildarinnar í dag. Það fengu allt og allir það óþvegið þegar hann mætti á blaðamannafund að leik loknum.
Hefði Tottenham unnið Southampton í dag hefði liðið farið upp í 3. sæti með 51 stig, einu stigi meira en Manchester United. Rauðu djöflarnir hefðu samt átt tvo leiki til góða en Conte og hans menn væru þó allavega enn með fótinn á bensíngjöfinni í baráttunni um sæti í Meistaradeild Evrópu að ári. Þess í stað gerði liðið jafntefli og er nú aðeins tveimur stigum á undan Newcastle United sem á einnig tvo leiki til góða. Liverpool er svo í 5. sæti með sjö stigum minna en Tottenham en einnig tvo leiki til góða. Það getur því enn allt gerst. Tottenham var með unninn leik í höndunum en liðið var 3-1 yfir þegar stundarfjórðungur var til leiksloka. Þó Conte hafi reynt að gera varnarskiptingar þá tókst botnliðinu samt að jafna metin og eðlilega var Ítalinn allt annað en sáttur þegar hann ræddi við blaðamenn eftir leik. „Gallinn er að enn og aftur sýndum við að við erum ekki lið. Ég sé eigingjarna leikmenn, ég sé leikmenn sem hjálpa ekki hvor öðrum og spila ekki af öllu hjarta.“ „Þeir spila ekki um neitt sem skiptir máli. Þeir vilja ekki spila undir pressu, þeir vilja ekki spila leiki þar sem mikið er undir. Það er auðveldara svona. Þetta er saga Tottenham: Sami eigandi í 20 ár en þeir hafa aldrei unnið neitt. Af hverju?“ Antonio Conte attacked his Tottenham players and the entire culture and direction of the football club on Saturday night. pic.twitter.com/mWWSJ1hvm1— The Athletic | Football (@TheAthleticFC) March 18, 2023 „Við erum atvinnumenn. Félagið borgar okkur mikið af peningum, leikmennirnir fá pening, ég fæ pening. Ekki til að finna afsakanir og hafa ekki neinn anda né sýna ábyrgð. Við erum að sýna þetta núna. Að mínu mati er það ekki boðlegt. Þetta er í fyrsta sinn á ferli mínum sem ég er í aðstæðum sem þessum.“ Antonio Conte went IN after Spurs draw (via @HaytersTV)pic.twitter.com/gMWJvVi4K5— B/R Football (@brfootball) March 18, 2023 Næsti leikur Tottenham er ekki fyrr en eftir landsleikjahlé og verður forvitnilegt að sjá hvort Conte verði enn þjálfari liðsins þegar það mætir Everton í Guttagarði þann 3. apríl næstkomandi.
Fótbolti Enski boltinn Mest lesið Stuðningurinn ómetanlegur: „Farið í dýpstu leyndarmálin“ Sport Uppgjörið: Ísland - Eistland 50-25 | Stigu bensínið í botn frá fyrstu mínútu Handbolti Uppgjörið: Grindavík - Keflavík 96-71 | Gulklæddir flengdu Keflvíkinga Körfubolti Joselu hetjan þegar Real Madrid fór í úrslit í enn eitt skiptið Fótbolti Gummi Ben og félagar tímamældu leiktafir KR-ingsins Íslenski boltinn Bleyjur og klósettpappír áhorfenda kostuðu ÍBV Handbolti Rekinn þrátt fyrir að vera tilnefndur sem þjálfari ársins Enski boltinn Farangurinn flæktist fyrir Gísla: „Kom beint af flugvellinum“ Handbolti Enrique hneykslaður: „Er þér alvara?“ Fótbolti Ísland eignast nýtt EHF dómarapar Handbolti Fleiri fréttir Rekinn þrátt fyrir að vera tilnefndur sem þjálfari ársins Telja að Man United hafi saknað leiðtogahæfileika Martínez Forest í bullandi fallhættu vegna bulls í fjármálum Segir að Casemiro hafi verið aðhlátursefni gegn Palace „Síðasti naglinn í kistu Ten Hag“ Ten Hag: Leikmennirnir hefðu átt að halda áfram að berjast líkt og stuðningsfólkið Crystal Palace lék sér að Man United Van Dijk vill hjálpa til við að skrifa næsta kafla Liverpool Eyddi öllum Liverpool-myndum Dómarinn verður með myndavél á höfðinu Lopetegui tekur við West Ham Lýsti Haaland sem „ofdekruðum krakka“ Miðvarðamartröð Man United heldur áfram Markasúpa þegar Liverpool komst á sigurbraut Markaveisla hjá Chelsea á móti nágrönnum sínum Lehmann keypti „Invincibles“ nafnið eftir að Arsenal sofnaði á verðinum Fengu myndsímtal frá Ed Sheeran í búningsklefanum Féllu á meðan þjálfarinn sem þeir ráku hélt Blackburn uppi Sú markahæsta með tár á hvarmi er hún tilkynnti brotthvarf sitt frá Chelsea Enginn náð í fleiri stig en McKenna síðan hann tók við Ipswich „Við þurfum níu stig til að vinna titilinn“ Skoraði fernu og Englandsmeistararnir halda í við Skytturnar Newcastle fór illa með Jóa Berg og félaga á Turf Moor Arsenal menn kláruðu sitt og nú er pressan á Man. City Ipswich Town aftur upp í ensku úrvalsdeildina eftir 22 ára fjarveru Arteta segir að Gabriel Jesus sé ekki á förum í sumar Clattenburg hættur og segist hafa verið skotmark sérfræðinga Luton mistókst að koma sér úr fallsæti Sala drykkjarins í hæstu hæðum eftir myndirnar af Haaland Klopp ósáttur við álagið: „Hádegisleikir eru glæpur“ Sjá meira