Samningsbundnar Val til 2024

Ásdís Þóra Ágústsdóttir
Ásdís Þóra Ágústsdóttir mbl.is/Árni Sæberg

Handknattleikskonurnar Andrea Gunnlaugsdóttir og Ásdís Þóra Ágústsdóttir hafa gert nýja samninga við Val og eru samningsbundnar félaginu út tímabilið 2024.

Handknattleiksdeild Vals tilkynnti þetta í dag en Andrea og Ásdís eru í hópi efnilegustu leikmanna landsins.

Báðar voru þær gjaldgengar í 3. flokki sem varð deildar-og bikarmeistari á síðasta tímabili en  léku einnig með meistaraflokki.

Andrea Gunnlaugsdóttir.
Andrea Gunnlaugsdóttir. mbl.is/Kristinn Magnússon
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert