Selenskí þakklátur Íslandi Máni Snær Þorláksson skrifar 23. mars 2023 14:32 Forseti Úkraínu segist vera þakklátur Íslandi fyrir að viðurkenna hungursneyðina sem hópmorð. Getty/Yan Dobronosov Vólódómír Selenskí, forseti Úkraínu, segist vera þakklátur Íslandi fyrir að viðurkenna hungursneyðina í Úkraínu á árunum 1932-1933 sem hópmorð. Alþingi samþykkti í morgun þingsályktunartillögu þess efnis.
Hungursneyðin, sem nefnist Holodomor, varð á valdatíma Stalíns í sóvétríkjunum og dró milljónir úkraínumanna til dauða. Þar var svelti beitt markvisst til þess að bæla niður úkraínska þjóðarvitund, svæði voru jafnvel girt af svo sveltandi fólkið gat ekki flúið aðstæður sínar. Alþjóðasamfélagið hefur margoft fordæmt hungursneyðina en Rússar hafa alla tíð neitað að um hópmorð sé að ræða. „Ég er þakklátur Íslandi fyrir að viðurkenna hungursneyðina á árunum 1932-1933 sem hópmorð á úkraínsku þjóðinni, fyrir að heiðra minningu milljóna Úkraínumanna sem létust af völdum stjórnarinnar í Moskvu. Þetta er skýrt merki um að slíkir glæpir viðgangist ekki án refsingar,“ segir Zelensky í færslu sem hann birtir á samfélagsmiðlinum Twitter í dag. Þá þakkar Oleksii Rezniko, varnarmálaráðherra Úkraínu, Íslandi einnig fyrir stuðninginn á samfélagsmiðlinum. Grateful to Iceland for recognizing the Holodomor of 1932-1933 as genocide of the Ukrainian people, for honoring the memory of millions of Ukrainians killed by the Moscow regime. It is a clear signal that such crimes do not go unpunished and do not have a statute of limitations. https://t.co/NU3k9zCpsc— (@ZelenskyyUa) March 23, 2023 Forseti Úkraínu deilir færslu Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra þar sem hún tilkynnir að Alþingi hafi samþykkt þingsályktunartillöguna í dag. Þórdís segir í færslunni frá ferð sinni til Kyiv í nóvember síðastliðnum en þá heimsótti hún minnisvarða um hungursneyðina. Minningardagur um hungursneyðina er haldinn fjórða laugardag nóvembersmánaðar á hverju ári. Þórdís Kolbrún tók til máls þegar verið var að greiða atkvæði um málið í morgun. Hún þakkaði flutningsmönnum tillögunar fyrir málið sem og utanríkismálanefnd fyrir sína vinnu. Þá sagði hún málið skipta raunverulegu máli fyrir úkraínsku þjóðina: „Við skulum leyfa okkur að vera dálítið glöð með að hafa frelsi til þess að samþykkja svona mál og greiða um það atkvæði. Mér þykir ótrúlega vænt um að um málið sé þverpólitískur stuðningur og ég veit að þetta er mál sem skiptir úkraínsku þjóðina raunverulegu máli, ekki í þykjustunni heldur raunverulega og sérstaklega núna. Þótt langt sé liðið frá þessum ömurlegu tímum þá eru þau að upplifa ömurlega tíma núna og það er hægt að setja það í samhengi. Þannig að viðurkenning á því frá sem flestum þjóðþingum, og okkar þar á meðal, er eitthvað sem skiptir manneskjur raunverulegu máli.“ Hrærð yfir samstöðunni Kosið var um þingsályktunartillagan í morgun og var hún samþykkt samhljóða. Á þriðja tug þingmanna úr öllum stjórnmálaflokkum voru meðflutningsmenn á málinu. Diljá Mist Einarsdóttir, þingkona Sjálfstæðisflokksins, lagði tillöguna fram en hún sagðist vera virkilega hrærð yfir samstöðu alþingismanna í málinu. „Taflan er alveg sérstaklega falleg á að líta í dag og ég er virkilega stolt af okkur alþingismönnum hvernig við höfum svarað ákalli Úkraínumanna, verið samstiga með að setja þetta mál í forgang og senda með því skýr skilaboð, skilaboð um hörmulega atburði í mannkynssögunni og að við höfnum tilraunum þjóða sem reyna endurskrifa og endurskilgreina söguna. Með því reynum við að vekja athygli á þessum atburðum og koma í veg fyrir að þeir endurtaki sig.“
Innrás Rússa í Úkraínu Úkraína Sovétríkin Alþingi Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Utanríkismál Rússland Mest lesið Litaðir seðlar til skoðunar og málið á mjög viðkvæmu stigi Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Sagðist ætla að nota tíu milljón króna kókaín allt sjálfur Innlent Sér eftir Landsdómsmálinu: „Ég myndi aldrei gera þetta svona aftur“ Innlent „Hinsegin fólk þekkir vel að vera smættað niður í einkalíf sitt“ Innlent Yrði gagnkynhneigður maður spurður sömu spurningar? Innlent Íslenskar stjörnur fái peninga að gjöf til að leggja undir í veðmálum Innlent Hátíðardagskrá víða um land á verkalýðsdaginn Innlent Hjólastólinn í „tengdamömmuboxi“ á toppi bílsins Innlent Gæti dregið til tíðinda á næstu klukkustundum Innlent Fleiri fréttir Stuðningur við dönsku ríkisstjórnina aldrei verið minni Mótmælendur og gagnmótmælendur tókust á Trump sektaður um meira en milljón króna Rússar sagðir nota skotflaugar frá Norður-Kóreu Þrettán ára drengur stunginn til bana með sverði Særði minnst fimm með sverði í Lundúnum Íslendingur sem lúbarði lögreglumenn í Varsjá þarf að borga brúsann Fjórir lögreglumenn skotnir til bana í Charlotte Rostungur sem fannst í fyrra drapst af völdum fuglaflensu Hvetur Hamas til að ganga að rausnarlegum tillögum Ísrael Flugvöllur Færeyinga fær að taka við stærri þotum Yousaf segir af sér sem ráðherra og formaður Skoska þjóðarflokksins Sánchez hættir við að segja af sér Grafið undan fjölmiðlafrelsinu víða í Evrópu Vopnahlé í sjónmáli? Tveir látnir eftir að bíll hafnaði í sjónum við Stokkhólm Fjölmenn mótmæli vegna ofbeldisbylgju í Ástralíu Vasaúr ríkasta manns Titanic seldist á 210 milljónir Þúsundir hvöttu Sánchez til að segja ekki af sér Skoða að færa Mónu Lísu í eigið herbergi Harvey Weinstein lagður inn á spítala Þingmaður hleypti af skoti fyrir utan skemmtistað Rýma dómshús vegna sprengjuhótunar Dómstóll fyrirskipar handtöku landbúnaðarráðherra Selenskís Ákvörðun áfrýjunardómstólsins áfall og stórt skref aftur á bak Trump líklegur til að græða á úrskurði Hæstaréttar Dómi Harvey Weinstein snúið við Tekur fyrir að hafa verið „hermaður Hitlers“ Maður á sextugsaldri sagður hafa stungið grunnskóladreng Sánchez íhugar að segja af sér vegna meintrar spillingar Sjá meira