Innlent

Fluttu stigabíl frá Keflavík fyrir Airbus-þotu í Reykjavík

Kristján Már Unnarsson skrifar
Stigabíllinn kominn til Reykjavíkur.
Stigabíllinn kominn til Reykjavíkur. KMU

Sérstakur stigabíll fyrir stórar flugvélar var fluttur til Reykjavíkur frá Keflavíkurflugvelli í gærkvöldi. Flytja þurfti hann á trukki þar sem hann er ekki á númerum. Ástæðan fyrir þessum óvenjulega flutningi er sú að á Reykjavíkurflugvelli er aðeins til einn nægilega stór stigi og talin var þörf á tveimur stórum stigum vegna flugsýningarinnar sem þar fer fram í dag, laugardag.

Gestum sýningarinnar gefst færi á að ganga um borð í hina nýju Airbus A321neo þotu flugfélagsins Play og skoða bæði farþegarýmið og flugstjórnarklefann. Útlitslega er þessi flugvél eins og Airbus A321XLR, sem Icelandair hyggst kaupa. Til að skoðunarferð um flugvélina gangi sem greiðast fyrir sig þykir rétt að hafa tvennar dyr opnar, bæði að framan og aftan, svo að hringumferð myndist, og til þess þarf auðvitað tvo stiga.

Airbus A321-þota frá Play lenti í fyrsta sinn á Reykjavíkurflugvelli sumarið 2021.Sigurjón Ólason

Fyrirhugað er að Airbus-þotan verði ferjuð árdegis frá Keflavík yfir til Reykjavíkur og að hún taki sýningarhring yfir borginni fyrir lendingu laust fyrir klukkan tíu, ef skýjahæð leyfir. Sýningarsvæðið á Reykjavíkurflugvelli verður opnað klukkan 12 á hádegi en sýningaratriðin hefjast klukkan 13.

Þótt flugsýningunni eigi formlega að ljúka klukkan 16 ættu þeir sem vilja sjá flugtak þotunnar að fara ekki langt því það gæti orðið um klukkan 16.30. Eftir flugtak má auk þess búast við að flugmenn þotunnar sýni ýmsar flugkúnsir yfir vellinum, svo fremi að ekki verði lágskýjað.

Fleiri stórar flugvélar munu sjást. Þannig er ráðgert að Boeing 757 frá Icelandair fljúgi yfir sýningarsvæðið um hálfþrjúleytið. Þá er áformað að Hercules-herflutningaflugvél frá kanadíska flughernum renni sér yfir flugvöllinn.

Fyrsta rafmagnsflugvél Íslendinga, TF-KWH, verður bæði til sýnis á jörðinni og á lofti. Það verður í fyrsta sinn sem almenningi gefst kostur á því að skoða vélina á flugsýningu. Jafnframt er ráðgert að formaður borgarráðs Reykjavíkur, Einar Þorsteinsson, fari í flugferð með henni.

Rafmagnsflugvélin TF-KWH. Þeir Friðrik Pálsson og Matthías Sveinbjörnsson beittu sér fyrir kaupum hennar til landsins.KMU

Matthías Sveinbjörnsson, forseti Flugmálafélagsins, segir að einn af hápunktum sýningarinnar verði listflug Kanadamannsins Luke Penners. Af öðrum sýningaratriðum má nefna þyrluflug, listflug á svifflugu og tog á svifflugu, kappflug dróna, fisflug, gírókopta, svifvæng, paramótor og flugtök og lendingar svokallaðra STOL-véla, sem þurfa óvenju stutta braut.

Icelandair sýnir Dash-vél úr innanlandsfluginu, Landhelgisgæslan mætir á svæðið og einnig vél Isavia. Elsta flugvélin verður sennilega tvívængjan TF-OLD, sem var smíðuð árið 1946.

Frítt er inn á svæðið en meira um dagskrána má lesa á heimasíðu flugsýningarinnar. Þar má einnig fá upplýsingar um hvar best er að finna bílastæði.

Hér má upplifa stemmningu á flugsýningu árið 2010:


Tengdar fréttir

Boða til stærstu flugsýningar ársins á Reykjavíkurflugvelli

„Stærsta flugsýning ársins“ segir Flugmálafélag Íslands í kynningu flugsýningar sem haldin verður á Reykjavíkurflugvelli á morgun, laugardag, 3. júní. Hátt á áttunda tug flugvéla og flygilda verða til sýnis og hátt á þriðja tug flugatriða þar sem lögð verður áhersla á að sýna breidd og drifkraft íslensks flugsamfélags, að sögn Matthíasar Sveinbjörnssonar, forseta Flugmálafélagsins.

Icelandair velur Airbus til að leysa af Boeing 757

Icelandair og Airbus hafa undirritað viljayfirlýsingu um kaup á þrettán flugvélum af gerðinni Airbus A321XLR og kauprétt að tólf flugvélum til viðbótar. Flugvélarnar verða afhentar frá og með árinu 2029.

For­setinn fyrstur far­þega í raf­magns­flug­vél

Blað var brotið í íslenskri flugsögu í gær með fyrsta farþegaflugi rafmagnsflugvélar hér á landi. Forseti Íslands og forsætisráðherra voru fyrstu farþegar vélarinnar og segja flugið marka vatnaskil í vegferð Íslands í átt að hreinni orku í loftsamgöngum. 



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×