Ætla að takmarka aðgang Rússa að færeyskum höfnum Kjartan Kjartansson skrifar 1. júní 2023 14:04 Fiskiskip í Þórshöfn í Færeyjum. Myndin tengist efni fréttarinnar ekki með beinum hætti. Vísir/Getty Færeyska heimastjórnin ætlar að takmarka aðgang rússneskra skipa að höfnum á eyjunum og banna viðgerðir á þeim nema í neyðartilfellum. Þá ætlar hún að ákveða það fyrir haustið hvort að umdeildur fiskveiðisamningur við Rússa verði framlengdur.
Aksel. V Johannesen, lögmaður Færeyja, tilkynnti þetta á blaðamannafundi í Viðareiði í dag, að sögn færeyska ríkisfjölmiðilsins Kringvarpsins. Takmörk verða einnig á umlestarnir rússneskra fiskiskipa í Færeyjum. Ákvörðunin er háð samþykki færeyska þingsins. Rússnesk skip hafa umlestað um 400.000 tonnum af fiski sem þau hafa veitt í færeyskri og alþjóðlegri lögsögu í Færeyjum undanfarin ár. Með ákvörðuninni nú fá þau aðeins að umlesta fjórðungi þess, þeim hundrað þúsund tonnum sem þau mega veiða í færeyskri landhelgi. Danska ríkisútvarpið segir að ákvörðunin feli það einnig í sér að ekki megi gera við rússnesk skip í færeyskum höfnum nema í neyðartilfellum Deilt um framhald á áratugagömlum fiskveiðisamningi Þá tilkynnti Johannesen að stjórn hans ætlaði sér að ákveða það fyrir haustið hvort að gagnkvæmur fiskveiðisamningur við Rússland frá 1977 verði endurnýjaður fyrir næsta ár. Samningurinn hefur veitt Færeyingum heimild til þess að veiða í Barentshafi, aðallega þorsk, en Rússar hafa í staðinn fengið að veiða kolmunna við Færeyjar og umlesta honum þar. Eftir innrás Rússa í Úkraínu hafa raddir gerst háværari um að samningnum verði rift. Deilur hafa staðið um samninginn bæði innan Færeyjar og í Danmörku. Tortryggni Færeyinga í garð Rússa jókst enn eftir að upplýst var í skandinavískri heimildarmynd að tvö rússnesk fiskiskip sem hefðu hringsólað í kringum Færeyjar og lagt að höfnum þar um árabil hafi mögulegt haft óhreint mjöl í pokahorninu. Norskir lögreglumenn fundu meðal annars hertalstöðvar um borð í skipunum þegar þau komu til hafnarbæjarins Kirkenes frá Færeyjum í fyrra.
Færeyjar Rússland Sjávarútvegur Innrás Rússa í Úkraínu Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Fylgi Höllu hrundi eftir kappræðurnar á RÚV Innlent Börnum safnað saman og þau skotin Erlent Meintur fjárdráttur mikið áfall fyrir starfsfólk skólans Innlent Eldvörp líkleg næst Innlent Ellefu slasaðir eftir að flugtak Boeing 737 mistókst Erlent Facebook bannar Ástþóri að auglýsa Innlent María Sigrún birtir tölvupósta Dags Innlent Sýknaður af nauðgun en enginn vafi að konan telji á sér brotið Innlent Fylgjast grannt með gangi mála Innlent Skotið á íbúa Rafah og heilbrigðiskerfi Gasa hrunið Erlent Fleiri fréttir Börnum safnað saman og þau skotin Skotið á íbúa Rafah og heilbrigðiskerfi Gasa hrunið Ellefu slasaðir eftir að flugtak Boeing 737 mistókst Lýsa hræðilegu ofbeldi fyrir sjóslys þar sem tugir létu lífið Takmarkar hernaðaraðstoð verði gerð árás á Rafah Grænlendingar segja sig úr Norðurlandaráði Skýrustu merkin um lofthjúp um bergreikistjörnu til þessa Enn og aftur tafir á málaferlum gegn Trump Umfangsmestu árásir Rússa í nokkrar vikur Trump blótaði þegar Daniels lýsti meintu samneyti þeirra Hrina árása á þýska stjórnmálamenn veldur áhyggjum Um 800.000 Evrópubúar taldir hafa fallið fyrir kínverskri svikamyllu Bandaríkjamenn stöðvuðu vopnasendingu til Ísrael í síðustu viku Annar hvirfilbylurinn í Oklahoma á rúmum mánuði Segir Bandaríkjamenn þurfa að þrýsta á Ísraela Skotárás við heimili Drake Stormy Daniels í dómsal með Trump Lífverðir Selenskís sakaðir um að skipuleggja banatilræði Reynt að siga lögreglu á vitni í málinu gegn Trump Fundu hlerunarbúnað í fundarherbergi ráðherra Pútín hefur fimmta kjörtímabilið með meiri völd en áður Sagðist saklaus af því að hafa drepið með eitruðum sveppum Verðhækkanir á döner-kebab eitt helsta áhyggjuefni Þjóðverja Geimskoti Starliner var frestað í nótt Segja nýjar reglur um merkingar blekkingarleik laxeldisfyrirtækja Ísraelsmenn í aðgerðum í Rafah og taka yfir landamærastöðina Tillagan „langt frá“ grundvallarkröfum Ísraela Ferðamannastaðir Færeyja lokaðir vegna viðhalds Bein útsending: Starliner ber geimfara til geimstöðvarinnar Hamas samþykkir vopnahléstillögu Sjá meira