Jóhann ekki með í kvöld

Jóhann Berg Guðmundsson í leik Burnley og Fulham í síðasta …
Jóhann Berg Guðmundsson í leik Burnley og Fulham í síðasta mánuði. AFP

Jóhann Berg Guðmundsson missir í kvöld af sínum þriðja leik í röð með Burnley í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu, en hann verður ekki með í leiknum gegn Leicester sem hefst á Turf Moor klukkan 18.

Jóhann fór meiddur af velli í leik Burnley og Fulham 17. febrúar og missti af leikjum við WBA og Tottenham, ásamt því að vera ekki klár í slaginn í kvöld.

Vonir standa til að hann verði tilbúinn á laugardaginn þegar Burnley tekur á móti Arsenal. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert