Tegnell biðst afsökunar á „óheppilegum“ ummælum um innflytjendur og Covid Kristín Ólafsdóttir skrifar 4. desember 2020 23:15 Anders Tegnell, sóttvarnalæknir Svíþjóðar. Claudio Bresciani/EPA Anders Tegnell sóttvarnalæknir Svíþjóðar baðst í dag afsökunar á orðum sínum um innflytjendur og tengsl þeirra við dreifingu kórónuveirunnar Í Svíþjóð. Tegnell segir orðalagið, sem hann notaði í sjónvarpsþætti á SVT í gærkvöldi, hafa verið „óheppilegt“.
Tegnell var gestur umræðuþáttarins Aktuellt á SVT í gær og ræddi þar háa dánartíðni af völdum veirunnar í Svíþjóð miðað við hin Norðurlöndin. Þar sagði hann að Noregur og Finnland væru óvenjuleg á evrópskan mælikvarða í þessu samhengi. Ríkin séu tiltölulega fámenn og þar sé nokkuð dreifbýlt. Þá sagði Tegnell að í Noregi og Finnlandi væru „litlir hópar innflytjenda“ en innflytjendur hefðu verið „mjög virkir“ í mörgum löndum. Margir hafa skilið þessi ummæli á þann veg að Tegnell hefði ýjað að því að innflytjendur bæru mikla ábyrgð á dreifingu veirunnar í Svíþjóð og öðrum Evrópulöndum, hvar slíkir samfélagshópar eru fjölmennari en í Finnlandi og Noregi. Att personer med utländsk bakgrund i vårt samhälle drabbats hårdare av covid-19 bör inte tolkas som att vi hade haft väsentligt lägre smitta utan dessa personer, som t.ex ofta har yrken där distansarbete är svårt. Anpassade insatser i de områden/yrken som drabbas värst behövs.— Tove Fall (@FallTove) December 4, 2020 Tegnell segir í samtali við Aftonbladet í dag að orðalagið hafi verið „óheppilegt“. Það hefði ekki verið ætlunin að halda því fram að innflytjendur beri uppi dreifingu veirunnar. „Ég hef ætíð haldið því skýrt fram að sú sé ekki raunin. Þvert á móti er þetta hópur sem hefur átt undir högg að sækja af völdum sýkingarinnar,“ segir Tegnell. Í því samhengi nefnir hann að í Svíþjóð búi fleiri af erlendum uppruna en í nágrannalöndunum. Því miður sé það svo að veiran hafi komið verr niður á þessum hópi en Svíum sem ekki eiga rætur að rekja til útlanda. Sænsk yfirvöld hafa legið undir gagnrýni fyrir viðbrögð sín við faraldrinum. Þau gripu til vægari sóttvarnaaðgerða en flest önnur Evrópuríki. Tala látinna í Svíþjóð er nú rúmlega sjö þúsund manns, mun hærri miðað við höfðatölu en í nágrannalöndunum Noregi, Danmörku og Finnlandi. Það er þó nokkru lægra hlutfall en í stóru Evrópulöndunum þar sem ástandið hefur verið verst.
Svíþjóð Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Tengdar fréttir Svíar búast við hámarki bylgjunnar í desember Sóttvarnayfirvöld í Svíþjóð segjast búast við því að önnur bylgja kórónuveirufaraldursins sem nú geisar þar nái hámarki sínu um miðjan desember. Þróun faraldursins velti þó á því að almenningur fylgi sóttvarnatilmælum. 26. nóvember 2020 16:16 Svíar takmarka samkomur við átta manns Sænsk stjórnvöld hafa boðað að frá og með 24. nóvember næstkomandi munu samkomutakmarkanir í landinu miða við átta manns. Að undanförnu hefur verið miðað við fimmtíu. 16. nóvember 2020 13:48 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Krefjast skýringa á brotthvarfi Maríu Sigrúnar Innlent Halla Hrund mælist með mest fylgi allra frambjóðenda Innlent Landsréttur komi fram við ákæruvaldið eins og lítið barn Innlent Mótmælendur fengu óvæntan liðstyrk frá Hollywood Innlent Húsráðendum tókst að ráða niðurlögum elds í þakskyggni Innlent Ætlar í aðra undirskriftasöfnun Innlent Veisluhöld forseta séu barns síns tíma Innlent „Ef ég get flogið þremur gerðum af þyrlum þá get ég tekið ákvörðun fyrir þjóðina“ Innlent María Sigrún látin fara úr Kveik Innlent Svona var Pallborðið með Arnari Þór, Ásdísi Rán og Ástþóri Innlent Fleiri fréttir Rýma dómshús vegna sprengjuhótunar Dómstóll fyrirskipar handtöku landbúnaðarráðherra Selenskís Ákvörðun áfrýjunardómstólsins áfall og stórt skref aftur á bak Trump líklegur til að græða á úrskurði Hæstaréttar Dómi Harvey Weinstein snúið við Tekur fyrir að hafa verið „hermaður Hitlers“ Maður á sextugsaldri sagður hafa stungið grunnskóladreng Sánchez íhugar að segja af sér vegna meintrar spillingar Spaðar Rauðu myllunnar hrundu til jarðar í nótt Skipulögðu árásir í Þýskalandi og víðar í nafni ISKP Fyrstu hergögnin eiga að berast til Úkraínu á næstu klukkustundum Segir ekki af sér þrátt fyrir njósnir aðstoðarmannsins Aðstoðarvarnarmálaráðherra ákærður fyrir mútuþægni Upptök eldsins í gömlu kauphöllinni enn ókunn Settur út af sakramentinu fyrir að stýra minningarstund um Navalní Handtóku barnunga öfgamenn eftir stunguárás í Sydney Ekki ólöglegt fyrir konur að brjóta gegn körlum Grunuð um að hafa banað tveimur börnum Vitni greinir frá ráðabruggi og lögmaður Trump fær viðvörun Öldungadeildin samþykkti 95 milljarða dala aðstoð við Úkraínu, Ísrael og Taívan Reyna að sigla um geiminn á geislum sólarinnar Lýsa yfir áhyggjum af fregnum af fjöldagröfum á Gasa Fá aftur gögn frá tæplega hálfrar aldar gömlu geimfari Umdeildur flutningur á hælisleitendum til Rúanda samþykktur Starfsmaður hægrijaðarflokks handtekinn fyrir njósnir fyrir Kína Gera alvarlegar athugasemdir við verðlaunakerfi Tik Tok Tugir handteknir á mótmælum háskólanema gegn aðgerðum Ísraels Undirbúa stærðarinnar sendingar til Úkraínu Engin sönnunargögn bendla UNRWA við árásina Hættu við umfangsmiklar árásir á Íran Sjá meira
Svíar búast við hámarki bylgjunnar í desember Sóttvarnayfirvöld í Svíþjóð segjast búast við því að önnur bylgja kórónuveirufaraldursins sem nú geisar þar nái hámarki sínu um miðjan desember. Þróun faraldursins velti þó á því að almenningur fylgi sóttvarnatilmælum. 26. nóvember 2020 16:16
Svíar takmarka samkomur við átta manns Sænsk stjórnvöld hafa boðað að frá og með 24. nóvember næstkomandi munu samkomutakmarkanir í landinu miða við átta manns. Að undanförnu hefur verið miðað við fimmtíu. 16. nóvember 2020 13:48