Vegfarendur náðu konu og barni úr bílnum Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir og Birgir Olgeirsson skrifa 16. janúar 2021 18:30 Slysið varð í morgun í Skötufirði. Vegfarendum tókst að bjarga konu og barni úr bílnum. Vísir/Hafþór Neyðarlínu barst tilkynning um slysið í Skötufirði 16 mínútur yfir tíu í morgun. Vegfarendur höfðu komið að bíl fjölskyldunnar úti í sjó en þurftu að fara af slysstað til þess að hringja í Neyðarlínuna. „
Það voru þrír í bílnum og vegfarendurnir unnu þrekvirki. Þau komu tveimur úr bílnum, konu og barni. Þetta fólk var ekki með góðum lífsmörkum þannig að þeir hófu endurlífgun,“ segir Hlynur Snorrason, yfirlögregluþjónn á Vestfjörðum. Klukkutíma eftir útkallið komu viðbragðsaðilar á vettvang. Björgunarbátar mættu frá Bolungarvík og Ísafirði og tvær þyrlur Landhelgisgæslunnar. „Þarna sannaði björgunarbátur gildi sitt því að hann kom að aðstoða þennan þriðja sem ekki komst í land og var uppi á þaki bílsins í nokkurn tíma. Björgunarbáturinn gat lagt upp að þaki bílsins og bjargað viðkomandi um borð,“ segir Hlynur. Segir vegfarendur hafa unnið þrekvirki Hlynur segir þátt vegfarenda á slysstað hafi verið mikinn. Ekki er ljóst eins og staðan er núna hve langur tími hafði liðið frá því að slysið varð þar til vegfarendur komu að slysstað. Hlynur segir þó að ekki sé talið að þau hafi verið lengi í bílnum. „Fyrstu tveir komu þarna að og vinna þarna þrekvirki. Svo kemur þriðji þarna að og fjórði og þetta fólk hefur allt staðið sig með miklum ágætum.“ Einn þeirra sem var í bílnum er við ágæta heilsu en tveir eru enn undir læknismeðferð.Vísir/Hafþór Fjölskyldan, par um þrítugt og ungt barn þeirra, voru flutt á sjúkrahús í Reykjavík. „Einn þeirra er við ágæta heilsu en hinir tveir eru ennþá undir læknismeðferð í Reykjavík og við vonum bara það besta. Ég vil koma fram þökkum til allra viðbragðsaðila fyrir frækilega vel unna vinnu og ekki síður til þeirra sem komu fyrstir á vettvang og unnu þar þrekvirki,“ segir Hlynur. Fjölskyldan kom til landsins í nótt og var á leið heim til Flateyrar í sóttkví fyrir síðari skimun. Fimmtíu manns komu að björguninni, átján þeirra hafa verið sendir í sóttkví. „Við erum að opna sóttvarnahús hérna á Vestfjörðum fyrir þá sem ekki geta verið heima hjá sér. Við erum að vona að morgundagurinn muni leiða það í ljós hvort að nauðsyn sé á að hafa þetta fólk í einangrun lengur,“ segir Hlynur. Þurftu að færa sig af slysstað til að hringja í neyðarlínuna Símasamband á slysstað var með verra móti. Hlynur segir brýnt að símasamband á Vestfjörðum sé bætt. „Þarna kom í ljós, eins og við höfum reyndar bent á nokkrum sinnum, að símasamband er með stopulum hætti í Ísafjarðardjúpi, sem og á nokkrum stöðum á Vestfjörðum. Þarna þurfti fólk að færa sig af slysstað til þess að komast í símasamband. Það er mjög brýnt, öryggisins vegna, að símasamband sé gott á Vestfjörðum eins og alls staðar annars staðar á landinu,“ segir Hlynur. Einn þessara þriggja er við góða heilsu að sögn Hlyns en hinir tveir eru enn undir læknishöndum. „Þessir þremenningar voru fluttir suður með þyrlum Landhelgisgæslunnar og einn þeirra er við ágæta heilsu en hinir tveir eru ennþá undir læknismeðferð í Reykjavík og við vonum bara það besta. Ég vil koma fram þökkum til allra viðbragðsaðila fyrir frækilega vel unna vinnu og ekki síður til þeirra sem komu fyrstir á vettvang og unnu þar þrekvirki.“
Banaslys í Skötufirði Samgönguslys Súðavíkurhreppur Tengdar fréttir Fjölskyldan fer í aðra sýnatöku á morgun Par um þrítugt og ungt barn þeirra, sem keyrðu út af veginum í Skötufirði fyrr í dag og út í sjó, fara í seinni sýnatöku á morgun. Þau voru á leið heim til sín eftir að hafa verið erlendis og fóru í sýnatöku við komuna til landsins sem skilaði neikvæðum niðurstöðum. 16. janúar 2021 17:18 Fólk sem aðstoðaði við björgunina í úrvinnslusóttkví Fólkið sem kom að beinni björgun eftir að bíll fór í sjóinn í Skötufirði er nú í úrvinnslusóttkví. Þetta staðfestir Rögnvaldur Ólafsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, í samtali við fréttastofu. 16. janúar 2021 14:16 Fjölskylda flutt með þyrlu til Reykjavíkur eftir slysið Þau þrjú sem voru í bílnum sem fór í sjóinn í Skötufirði voru flutt á sjúkrahús í Reykjavík með þyrlum Landhelgisgæslunnar nú eftir hádegi. Komið var með fólkið á Borgarspítalann á öðrum tímanum. 16. janúar 2021 13:05 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Innlent Halla Hrund eigi langt í land með að tryggja sér embættið Innlent Ríflega fjörutíu prósent líst illa á Katrínu Innlent Varaforsetaefni í bobba vegna hundsdráps og meints fundar með Kim Erlent Ók á tvö hundruð með lögguna á hælunum Innlent Hvernig ætlar ríkið að sækja milljónirnar 360 sem Haraldur gaf? Innlent Flugvél Atlanta á tæpasta vaði í Ríad Erlent „Ég get ekki annað en sagt satt“ Innlent Katrín efst en Jón hrynur í nýrri könnun Innlent Sigu niður í Gretti sterka og dældu úr honum sjó Innlent Fleiri fréttir Hefur ekki áhuga á slúðurfréttum af öðrum frambjóðendum Tólf tíma tökudagar og svo forsetaframboð Hvernig ætlar ríkið að sækja milljónirnar 360 sem Haraldur gaf? Flottustu Mustang bílarnir landsins til sýnis í dag Halla Hrund eigi langt í land með að tryggja sér embættið Rýnt í forsetakappræður og fylgst með Bakgarðshlaupi „Ég get ekki annað en sagt satt“ Ríflega fjörutíu prósent líst illa á Katrínu „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Sigu niður í Gretti sterka og dældu úr honum sjó Ók á tvö hundruð með lögguna á hælunum Sólríkasta byrjun árs í Reykjavík í 77 ár Hafa rukkað þá sem valda sinubruna um kostnað við útkall Ótrúlegustu aðskotahlutir gera óskunda í dósatalningarvélum Fjöldi verkfallsboðana á Keflavíkurflugvelli áhyggjuefni Kosið um sameiningu Húna- og Skagabyggðar í júní Nýjustu skoðanakannanir, verkfallsaðgerðir á flugvellinum og týndur gaffall Halla Hrund líka vinsæll annar kostur Kolbeinn hafi strokið kynfæri stúlkunnar ítrekað Segja lýðræðis- og mannréttindabakslag staðreynd Ný sendiskrifstofa opnuð í Síerra Leóne Baldur segir niðurstöður nýjustu kannana vonbrigði Halla Hrund mælist með mest fylgi í nýrri könnun Maskínu Tilvísunum vegna skekkju á höfuðkúpu ungbarna fjölgað mikið Fréttaskýring Maríu Sigrúnar kemur út á mánudag Einar segir forsetaembættið um ekki neitt Svona gæti bensínstöðvarreiturinn við Ægisíðu litið út Ákærð fyrir að kæfa son sinn með kodda Börn lögð inn með kíghósta „Við reyndum eins og við gátum“ Sjá meira
Fjölskyldan fer í aðra sýnatöku á morgun Par um þrítugt og ungt barn þeirra, sem keyrðu út af veginum í Skötufirði fyrr í dag og út í sjó, fara í seinni sýnatöku á morgun. Þau voru á leið heim til sín eftir að hafa verið erlendis og fóru í sýnatöku við komuna til landsins sem skilaði neikvæðum niðurstöðum. 16. janúar 2021 17:18
Fólk sem aðstoðaði við björgunina í úrvinnslusóttkví Fólkið sem kom að beinni björgun eftir að bíll fór í sjóinn í Skötufirði er nú í úrvinnslusóttkví. Þetta staðfestir Rögnvaldur Ólafsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, í samtali við fréttastofu. 16. janúar 2021 14:16
Fjölskylda flutt með þyrlu til Reykjavíkur eftir slysið Þau þrjú sem voru í bílnum sem fór í sjóinn í Skötufirði voru flutt á sjúkrahús í Reykjavík með þyrlum Landhelgisgæslunnar nú eftir hádegi. Komið var með fólkið á Borgarspítalann á öðrum tímanum. 16. janúar 2021 13:05