Þrjú smit innanlands – öll í sóttkví

Frá sýnatöku vegna Covid-19.
Frá sýnatöku vegna Covid-19. mbl.is/Kristinn Magnússon

Þrjú kór­ónu­veiru­smit greind­ust inn­an­lands í gær og voru all­ir í sótt­kví við grein­ingu, sam­kvæmt bráðabirgðatöl­um al­manna­varna. Ekkert smit greind­ist á landa­mær­um.

Töl­ur á Covid.is eru ekki upp­færðar um helg­ar og því hef­ur ekki verið gefið út hversu mörg sýni voru tek­in í gær. 

Þrjú smit greindust einnig innanlands á föstudag og voru þau líka öll innan sóttkvíar.

Fimm smit greind­ust inn­an­lands á fimmtu­dag og voru þau einnig öll í sótt­kví. Þá greind­ist ekk­ert smit á landa­mær­um. 

Á miðviku­dag greind­ust tíu smit en sjö þeirra sem greind­ust voru í sótt­kví við grein­ingu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert