Smituðum fjölgaði um milljón á fjórtán dögum Samúel Karl Ólason skrifar 31. október 2020 14:42 Donald Trump, forseti, á fundi með stuðningsmönnum sínum í gær. AP/Bruce Kluckhohn
Alls hafa nú rúmlega níu milljónir Bandaríkjamanna smitast af Nýju kórónuveirunni frá því heimsfaraldur hennar hófst. Faraldurinn hefur náð nýjum hæðum í Bandaríkjunum og hefur metfjöldi nýsmitaðra greinst undanfarna daga. Það tók Bandaríkin einungis fjórtán daga að fara úr átta milljónum smitaðra í níu milljónir og hefur smitum aldrei fjölgað svo hratt þar í landi. Mörg ríki Bandaríkjanna hafa tilkynnt metfjölda nýsmitaðra á undanförnum dögum. Tæplega 230 þúsund manns hafa dáið í Bandaríkjunum vegna Covid-19, sjúkdómsins sem Nýja kórónuveiran veldur, samkvæmt tölum frá Johns Hopkins háskólanum. Þær tölur byggja á opinberum tölum. Á fimmtudaginn greindust alls 91 þúsund manns í Bandaríkjunum og er útlit fyrir að fjöldinn hafi verið enn meiri í gær. Samkvæmt CNN hafa þeir fimm dagar þar sem flestir greinast smitaðir gerst á síðustu átta dögum. Robert Redfield, yfirmaður Sóttvarnastofnunar Bandaríkjanna, sagði í viðtali í gær að einkennalaust ungt fólk væri að miklu leyti að valda dreifingu veirunnar. Faraldurinn færi á milli tólf til 30 ára gamals fólks og færðist þaðan yfir á eldra og viðkvæmara fólk. Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hélt því fram á kosningafundi með stuðningsmönnum sínum í gær að læknar og sjúkrahús fengju meiri peninga ef þeir héldu því fram að fleiri létu lífið vegna veirunnar. „Þið við að læknarnir okkar fá meiri peninga ef einhver deyr úr Covid. Þið vitið það,“ sagði Trump. Hann sagði að í öðrum ríkjum eins og Þýskalandi væru dauðsföll skráð öðruvísi. Ef Þjóðverji með krabbamein fái Covid og deyi sé það ekki skráð sem dauðsfall vegna Covid. „Hjá okkur er það þannig að ef þú ert í vafa, þá er velur þú Covid.“ Þeir væru sem sagt að gera of mikið úr faraldrinum í Bandaríkjunum og græða á því. Hann sagði einnig að gróðinn fyrir hvert dauðsfall væri um tvö þúsund dalir en útskýrði það ekki nánar. Heilbrigðisstarfsmenn hafa brugðist reiðir við þessum ásökunum forsetans. Enda virðast þær vera alfarið rangar. Fjölmiðlar vestanhafs hafa ekki fundið neinar sannanir fyrir máli Trump. Í yfirlýsingu frá samtökum lækna í bandaríkjunum segir að heilbrigðisstarfsmenn hafi hætt heilsu sinni og jafnvel lífi til að bjarga lífum annarra. Það sé svívirðilegt að halda því fram að þeir ýki tölur um fórnarlömb Covid til að hagnast. „Covid-19 tilfellum eru að ná nýjum hæðum. Í stað þess að ráðast á okkur og varpa fram innistæðulausum ásökunum að heilbrigðisstarfsmönnum, ættu leiðtogar okkar að fylgja vísindunum og hvetja fólk til að fara eftir sóttvarnarráðum sem við vitum að virka. Að vera með grímur, þvo hendur og stunda félagsforðun,“ sagði Susan R. Baily, yfirmaður samtaka lækna í Bandaríkjunum.
Bandaríkin Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Donald Trump Tengdar fréttir Helstu málefni Bandaríkjanna og hvar Trump og Biden standa Bandaríkjamenn sem ekki hafa þegar greitt atkvæði, ganga margir hverjir til kosninga á þriðjudaginn. Helstu kostirnir í forsetakosningunum að þessu sinni eru þeir Donald Trump, núverandi forseti, og Joe Biden, fyrrverandi varaforseti og öldungadeildarþingmaður. 31. október 2020 07:01 Metfjöldi nýsmitaðra í Bandaríkjunum: „Fleiri próf jafngilda fleiri tilfellum“ Aldrei hafa fleiri greinst með kórónuveiruna í Bandaríkjunum en í gær, fimmtudag. Alls greindust 91 þúsund manns og met nýsmitaðra voru slegin í fjölda ríkja. Forseti Bandaríkjanna segir ástæðu þess að svo margir greinast vera fjölda prófa. 30. október 2020 23:00 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Ólík sýn á hvort Íslandi eigi að styðja vörn Úkraínumanna Innlent „Við höfum ekki séð þetta á Íslandi áður“ Innlent Friðartillaga Ísraela sem Biden kynnti virðist fá hljómgrunn Erlent „Við útrýmum ekki ofbeldi með hatri“ Innlent Skítkast í „skrýtinni og óvæginni“ kosningabaráttu Innlent VÍS þarf að bæta hluta jarðýtu í mannskæðu vinnuslysi Innlent Mótmælin í dag þau hörðustu í mörg ár Innlent Hefði „slátrað“ dóttur sinni byggju þau í „arabalandi“ Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Ný könnun sýnir stefna í æsispennandi kjördag Innlent Fleiri fréttir Friðartillaga Ísraela sem Biden kynnti virðist fá hljómgrunn „Við búum í fasísku ríki“ Segjast hafa skotið á flugmóðurskip eftir loftárásir Þarf að greiða fyrrverandi 137 milljarða í kjölfar framhjáhalds Ólíklegt að Trump fari í fangelsi Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Bakhjarlar Úkraínu leyfa árásir í Rússlandi Heimilar notkun vopna frá Bandaríkjunum á rússneska grund Trump sakfelldur fyrir skjalafals í þagnargreiðslumáli Veita katalónskum aðskilnaðarsinnum sakaruppgjöf Stígur ekki til hliðar vegna umdeildra fána Gæsir og steggir að buga bæjaryfirvöld sem banna nekt og typpabúninga Svörtum vísað frá borði þegar kvartað var undan líkamslykt Ísraelsmenn taka yfir landamærin að Egyptalandi Flugvélin féll um 54 metra á fimm sekúndum Kviðdómendur leggjast undir feld í dag Gefa Úkraínumönnum eftirlitsflugvélar Útnefna Biden rafrænt til að koma honum örugglega á kjörseðilinn Fær ekki að bjóða sig fram fyrir Verkamannaflokkinn Þingmeirihluti ANC í hættu í Suður-Afríku Íbúar varaðir við rusl- og skítabelgjum frá Norður-Kóreu Segja árásir og aðgerðir Ísrael enn innan „rauðu línanna“ De Niro kallaði Trump skrímsli fyrir utan dómshúsið „Við höfum ekkert“ Ógiltu neitunarvald forseta til að koma fjölmiðlalögum í gegn Biðst afsökunar á ummælum um „faggaskap“ Yfir fimmtíu stig í hitabylgju í Pakistan Pólverjar víggirða landamærin í austri Forseti Perú kærður fyrir mútuþægni Yfirmaður ísraelsku leyniþjónustunnar sagður hafa hótað saksóknara Alþjóðasakamáladómstólsins Notaði niðrandi orð um samkynhneigða karla á lokuðum fundi Sjá meira
Helstu málefni Bandaríkjanna og hvar Trump og Biden standa Bandaríkjamenn sem ekki hafa þegar greitt atkvæði, ganga margir hverjir til kosninga á þriðjudaginn. Helstu kostirnir í forsetakosningunum að þessu sinni eru þeir Donald Trump, núverandi forseti, og Joe Biden, fyrrverandi varaforseti og öldungadeildarþingmaður. 31. október 2020 07:01
Metfjöldi nýsmitaðra í Bandaríkjunum: „Fleiri próf jafngilda fleiri tilfellum“ Aldrei hafa fleiri greinst með kórónuveiruna í Bandaríkjunum en í gær, fimmtudag. Alls greindust 91 þúsund manns og met nýsmitaðra voru slegin í fjölda ríkja. Forseti Bandaríkjanna segir ástæðu þess að svo margir greinast vera fjölda prófa. 30. október 2020 23:00
Yfirmaður ísraelsku leyniþjónustunnar sagður hafa hótað saksóknara Alþjóðasakamáladómstólsins