Síminn selur Mílu Vésteinn Örn Pétursson skrifar 23. október 2021 07:39 Síminn og Ardian hafa náð samkomulagi um kaup þess síðarnefnda á Mílu. Vísir/Vilhelm Síminn og alþjóðlega sjóðastýringafyrirtækið Ardian hafa komist að samkomulagi um kaup þess síðarnefnda á öllu hlutafé í Mílu ehf., sem á og rekur víðtækasta fjarskiptanet landsins. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Símanum.
Þar segir að samhliða kaupum Ardian, sem er með höfuðstöðvar í París í Frakklandi, á Mílu verði nokkrum íslenskum lífeyrissjóðum gefinn kostur á að fjárfesta í Mílu. Eignarhlutur þeirra getur orðið allt að 20 prósent. Viðræðum lauk í nótt með undirritun kaupsamnings um 100 prósent hlutafjár í Mílu. Salan er háð hefðbundnum fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins. Í tilkynningunni kemur jafnframt fram að Ardian hyggist að kaupunum loknum hraða fjárfestingarverkefnum Mílu, og að sérstök áhersla verði lögð á að leggja ljósleiðara í sveitarfélögum á landsbyggðinni. Það muni auka samkeppnishæfni minni sveitarfélaga og byggja framúrskarandi 5G farsímakerfi hér á landi með tæknibúnaði frá sænska framleiðandanum Ericsson. Haft er eftir Orra Haukssyni, forstjóra Símans, að koma Ardian í íslenska fjarskiptageirann sé tilefni til að fagna. „Orðspor og þekking Ardian á uppbyggingu og langtíma rekstri á afburða innviðum víða um heim fyllir okkur trausti á bjartri og öruggri framtíð þessara grundvallarinnviða á Íslandi. Þetta á sérstaklega við um landsbyggðina,“ er meðal annar haft eftir forstjóranum. Áætlaður söluhagnaður er rúmlega 46 milljarðar króna.Vísir/Vilhelm Samkvæmt tilkynningunni er virði viðskiptanna um 78 milljarðar króna, að meðtöldum fjárhagslegum skuldbindingum Mílu, sem Ardian yfirtekur. Samkvæmt kaupsamningi fær Síminn greidda um 44 milljarða króna í reiðufé og 15 milljarða króna í formi skuldabréfs sem Síminn veitir Ardian til þriggja ára. Áætlaður söluhagnaður er rúmlega 46 milljarðar, að teknu tilliti til kostnaðar vegna viðskiptanna. Skiptar skoðanir Viðskiptin hafa verið nokkuð umdeild í aðdraganda þeirra. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, þingmaður og formaður Viðreisnar, kallaði til að mynda á dögunum eftir fundi með ráðherrum til að ganga úr skugga um að þjóðaröryggi Íslands væri ekki ógnað með sölunni. Þá kallaði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, þingmaður og formaður Miðflokksins, eftir því að ríkisstjórnin gripi inn í söluna og kæmi í veg fyrir hana. Á þriðjudag var haft eftir Sigurði Inga Jóhannssyni, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra að salan á Mílu væri ásættanleg að því gefnu að gengið yrði frá ákveðnum úrlausnarefnum sem stjórnvöld teldu uppi á borði. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra sagði þá að málið hefði verið rætt í þjóðaröryggisráði og að hún væri með í undirbúningi löggjöf sem tæki á sölu mikilvægra innviða. Hér má nálgast tilkynningu Símans vegna sölunnar.
Fjarskipti Lífeyrissjóðir Salan á Mílu Tengdar fréttir ASÍ telur verulega hættu á að erlendir fjárfestar skilji lítið annað eftir en tóma skel Miðstjórn Alþýðusambands Íslands varar sterklega við sölu Mílu til erlendra fjárfesta. Sambandið segir verulega hættu á því að erlendir eigendur dragi úr fjárfestingum og viðhaldi á innviðum, selji eignir og skilji lítið annað eftir en eintóma skel. 20. október 2021 22:01 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Tók fimm mánuði að byrja að tala íslensku Atvinnulíf Enn ekkert að frétta af félagi sem þúsundir Íslendinga eiga kröfu á Neytendur Ný kynslóð vélmenna vekur óhug Viðskipti erlent Stöð 2+ lækkar verð Neytendur Jón nýr formaður bankaráðs Landsbankans Viðskipti Sólin sest fyrir fullt og allt á Sælunni Viðskipti innlent Sýn hættir við að selja vefmiðla og útvarp Viðskipti innlent Fasteignamarkaðurinn hitnar en framkvæmdum fækkar Viðskipti innlent Ritskoðaður bjór fær blessun ÁTVR Viðskipti innlent Þrjú atriði til að auka á sjálfsöryggið okkar í vinnunni Atvinnulíf Fleiri fréttir Breytinga þörf eigi Landsbankinn ekki að keppa á markaði Sýn hættir við að selja vefmiðla og útvarp Sólin sest fyrir fullt og allt á Sælunni Opna verslun á Keflavíkurflugvelli þar sem Arion var áður Bein útsending: Hraunflæðihermar og hönnun hraunvarna Hafa náð nýjum sölusamningi í Bandaríkjunum Framkvæmdastjóri Jafnréttisstofu til Visku Bein útsending: Hrein tækifæri í orkumálum Fljúga til Wales í haust í tengslum við landsleikina Þau vilja stýra Framkvæmdasýslunni – Ríkiseignum Edda og Helgi bætast í hóp eigenda Expectus Segir frumvarp um húsaleigulög geta leitt til hærra leiguverðs Tekur við stöðu rekstrarstjóra Stöðvar 2 Fasteignamarkaðurinn hitnar en framkvæmdum fækkar Eyjólfur vill halda formennsku áfram Tekur við stöðu forstjóra Securitas Magni kaupmaður látinn 88 ára að aldri Bankaráðið sakar bankasýsluna um aðdróttanir Guðbjörg orðin pítsudrottning Ritskoðaður bjór fær blessun ÁTVR Annað markaðsleyfi í höfn í Bandaríkjunum Spánski verður Daisy Lilja leiðir nýja markaðs- og sjálfbærnideild Sýnar Byggingaframkvæmdir óralangt frá settum markmiðum Taka við stjórnendastöðum hjá Advania Benedikt tekur við af Andrési hjá SVÞ Tveir stjórnarmenn og forstjóri lögðu til milljarð Loftleiðir með þrjár þotur í lúxusflugi fyrir ríka fólkið Viðræður vegna kaupa á Lyfju að hefjast Dómari þarf ekki að víkja vegna fjölskyldutengsla í máli feðga Sjá meira
ASÍ telur verulega hættu á að erlendir fjárfestar skilji lítið annað eftir en tóma skel Miðstjórn Alþýðusambands Íslands varar sterklega við sölu Mílu til erlendra fjárfesta. Sambandið segir verulega hættu á því að erlendir eigendur dragi úr fjárfestingum og viðhaldi á innviðum, selji eignir og skilji lítið annað eftir en eintóma skel. 20. október 2021 22:01