Patrekur: Hrikalega ánægður með félagið Stjörnuna í dag Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 8. júní 2021 22:45 Patrekur Jóhannesson var súr með seinni hluta fyrri hálfleiks þar sem Stjarnan missti Hauka fram úr sér. vísir/elín björg Patrekur Jóhannesson, þjálfari Stjörnunnar, var svekktur að tapa með fimm marka mun, 23-28, fyrir Haukum í fyrri leik liðanna í undanúrslitum Olís-deildar karla í kvöld. Hann sagði hins vegar að dagurinn hefði verið góður fyrir félagið Stjörnuna. „Fyrstu fimmtán mínúturnar voru flottar en síðan skiptu Haukar reglulega inn á og það komu alltaf nýir menn inn á. Ég var fúll með okkur seinni hluta fyrri hálfleiks. Þá lentum við í mótlæti og gáfum svolítið eftir,“ sagði Patrekur við Vísi eftir leik. „Í seinni hálfleik sýndu menn að þeir voru ekki alveg hættir og komu sér ágætlega inn í leikinn. En það er svekkjandi að fleygja boltanum klaufalega frá sér og þetta hefði getað endað í þremur til fjórum mörkum sem hefði getað skipt öllu. Haukarnir voru mjög sterkir og unnu þetta sanngjarnt. En það er einn leikur eftir og við sjáum hvað gerist.“ Stjörnumenn voru í afar erfiðri stöðu í hálfleik enda sjö mörkum undir, 8-15. En hver voru skilaboðin til leikmanna í hálfleiknum? „Þau voru svo mörg. Ég talaði bara á rólegu nótunum við þá. Þetta eru frábærir drengir. Stjarnan er ekki vön að vera í þessari stöðu og mér fannst þeir skulda sjálfum sér og þetta var persónuleikadæmi; spurning um karakter og njóta þess að spila þennan leik. Þetta stress og hik í fyrri hálfleik var óþægilegt og leiðinlegt en mér fannst þeir gera þetta vel í seinni hálfleik,“ svaraði Patrekur sem er hóflega bjartsýnn fyrir seinni leikinn á föstudaginn „Í íþróttum getur allt gerst og ég gefst aldrei upp en veit að þetta verður krefjandi á Ásvöllum.“ Leikurinn í kvöld var sá fyrsti í sögu Stjörnunnar í undanúrslitum karla. Dagurinn var því stór fyrir félagið og fjölmargir lögðu leið sína í TM-höllina þar sem hefur oftar en ekki verið frekar tómlegt um að litast undanfarin ár. „Ég er alltaf svekktur að tapa en að sjá fullt hús hérna og það er ótrúlega mikið af öflugu fólki að vinna í kringum þetta. Við erum komnir í undanúrslit í fyrsta sinn. Við og fleiri í gamla daga náðum þessu ekki einu sinni,“ sagði Patrekur. „Ég er mjög ánægður með margt í dag en við vissum að Haukarnir væru þéttir og náðum ekki að leysa það. En ég er hrikalega ánægður með félagið Stjörnuna í dag.“ Olísdeildirnar í handbolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Olísdeildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur. Olís-deild karla Stjarnan Mest lesið Kimmich tryggði Bayern sæti í undanúrslitum Fótbolti Í beinni: Man. City - Real Madrid | Önnur veisla framundan Fótbolti Heimir Guðjóns og Óskar Hrafn hafa báðir látið Hallgrím heyra það Íslenski boltinn Þróttarar kjósa um nýtt merki Íslenski boltinn Ætla prófa að refsa markvörðum með innköstum eða hornspyrnum Fótbolti Besta-spáin 2024: Blóðtakan of mikil Íslenski boltinn Vann sig upp úr þunglyndi með sænskum hugarþjálfara: „Ég varð bara önnur manneskja“ Fótbolti „Vorum að spila á móti besta liði landsins“ Íslenski boltinn HSÍ keyri sig ekki aftur í þrot vegna HM Handbolti Besta-spáin 2024: Ætla að gera falldrauginn afturreka úr Árbænum Íslenski boltinn Fleiri fréttir Tap hjá Íslendingaliðinu í fyrsta leik 8-liða úrslita Norska stórliðið örugglega í undanúrslit HSÍ keyri sig ekki aftur í þrot vegna HM Uppgjör og viðtöl: Afturelding - Stjarnan 35-24 | Mosfellingar keyrðu og bökkuðu yfir Garðbæinga „Mættum klárir og ætluðum að svara fyrir laugardaginn“ Alfreð og Dagur saman í riðli á Ólympíuleikunum Spenntur fyrir að halda HM með Íslendingum HM í handbolta 2031 fer fram á Íslandi Magnaður Bjarki Már þegar Veszprém svo gott sem tryggði sér titilinn ÍBV sendi ÍR í sumarfrí Stefán Arnars: Fram er með fjóra og við einn Uppgjör, viðtöl og myndir: Stjarnan - Haukar 21-25 | Stjörnukonur sendar í sumarfrí Stefán Rafn leggur skóna á hilluna Uppgjörið, viðtöl og myndir: Haukar – ÍBV 31-37 | Eyjamenn sendu Hauka í sumarfrí KA komið í sumarfrí en FH heldur áfram Magdeburg bikarmeistari eftir stórsigur gegn Melsungen Flensburg hirti brons í bikarkeppni „Hef ekki trú á að FH geti unnið Val í seríu“ Elvar Örn frábær og Melsungen mætir Magdeburg í úrslitum Stjarnan tryggði sér oddaleik Gísli og Ómar allt í öllu þegar Magdeburg flaug í úrslit Valur fyrsta lið inn í undanúrslit „Við stóðumst ekki prófið í dag“ Eyjakonur byrja úrslitakeppnina með látum Þórsarar tryggðu sér oddaleik Uppgjörið: Haukar - Stjarnan 36-23 | Yfirburðasigur Hauka Metamfetamín felldi markvörðinn Íslandsmeistararnir hefja titilvörn á sigri gegn Haukum Hafnfirðingar hefja atlögu að titlinum með sigri Óðinn Þór og félagar í undanúrslit Sjá meira
„Fyrstu fimmtán mínúturnar voru flottar en síðan skiptu Haukar reglulega inn á og það komu alltaf nýir menn inn á. Ég var fúll með okkur seinni hluta fyrri hálfleiks. Þá lentum við í mótlæti og gáfum svolítið eftir,“ sagði Patrekur við Vísi eftir leik. „Í seinni hálfleik sýndu menn að þeir voru ekki alveg hættir og komu sér ágætlega inn í leikinn. En það er svekkjandi að fleygja boltanum klaufalega frá sér og þetta hefði getað endað í þremur til fjórum mörkum sem hefði getað skipt öllu. Haukarnir voru mjög sterkir og unnu þetta sanngjarnt. En það er einn leikur eftir og við sjáum hvað gerist.“ Stjörnumenn voru í afar erfiðri stöðu í hálfleik enda sjö mörkum undir, 8-15. En hver voru skilaboðin til leikmanna í hálfleiknum? „Þau voru svo mörg. Ég talaði bara á rólegu nótunum við þá. Þetta eru frábærir drengir. Stjarnan er ekki vön að vera í þessari stöðu og mér fannst þeir skulda sjálfum sér og þetta var persónuleikadæmi; spurning um karakter og njóta þess að spila þennan leik. Þetta stress og hik í fyrri hálfleik var óþægilegt og leiðinlegt en mér fannst þeir gera þetta vel í seinni hálfleik,“ svaraði Patrekur sem er hóflega bjartsýnn fyrir seinni leikinn á föstudaginn „Í íþróttum getur allt gerst og ég gefst aldrei upp en veit að þetta verður krefjandi á Ásvöllum.“ Leikurinn í kvöld var sá fyrsti í sögu Stjörnunnar í undanúrslitum karla. Dagurinn var því stór fyrir félagið og fjölmargir lögðu leið sína í TM-höllina þar sem hefur oftar en ekki verið frekar tómlegt um að litast undanfarin ár. „Ég er alltaf svekktur að tapa en að sjá fullt hús hérna og það er ótrúlega mikið af öflugu fólki að vinna í kringum þetta. Við erum komnir í undanúrslit í fyrsta sinn. Við og fleiri í gamla daga náðum þessu ekki einu sinni,“ sagði Patrekur. „Ég er mjög ánægður með margt í dag en við vissum að Haukarnir væru þéttir og náðum ekki að leysa það. En ég er hrikalega ánægður með félagið Stjörnuna í dag.“ Olísdeildirnar í handbolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Olísdeildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Olísdeildirnar í handbolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Olísdeildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Olís-deild karla Stjarnan Mest lesið Kimmich tryggði Bayern sæti í undanúrslitum Fótbolti Í beinni: Man. City - Real Madrid | Önnur veisla framundan Fótbolti Heimir Guðjóns og Óskar Hrafn hafa báðir látið Hallgrím heyra það Íslenski boltinn Þróttarar kjósa um nýtt merki Íslenski boltinn Ætla prófa að refsa markvörðum með innköstum eða hornspyrnum Fótbolti Besta-spáin 2024: Blóðtakan of mikil Íslenski boltinn Vann sig upp úr þunglyndi með sænskum hugarþjálfara: „Ég varð bara önnur manneskja“ Fótbolti „Vorum að spila á móti besta liði landsins“ Íslenski boltinn HSÍ keyri sig ekki aftur í þrot vegna HM Handbolti Besta-spáin 2024: Ætla að gera falldrauginn afturreka úr Árbænum Íslenski boltinn Fleiri fréttir Tap hjá Íslendingaliðinu í fyrsta leik 8-liða úrslita Norska stórliðið örugglega í undanúrslit HSÍ keyri sig ekki aftur í þrot vegna HM Uppgjör og viðtöl: Afturelding - Stjarnan 35-24 | Mosfellingar keyrðu og bökkuðu yfir Garðbæinga „Mættum klárir og ætluðum að svara fyrir laugardaginn“ Alfreð og Dagur saman í riðli á Ólympíuleikunum Spenntur fyrir að halda HM með Íslendingum HM í handbolta 2031 fer fram á Íslandi Magnaður Bjarki Már þegar Veszprém svo gott sem tryggði sér titilinn ÍBV sendi ÍR í sumarfrí Stefán Arnars: Fram er með fjóra og við einn Uppgjör, viðtöl og myndir: Stjarnan - Haukar 21-25 | Stjörnukonur sendar í sumarfrí Stefán Rafn leggur skóna á hilluna Uppgjörið, viðtöl og myndir: Haukar – ÍBV 31-37 | Eyjamenn sendu Hauka í sumarfrí KA komið í sumarfrí en FH heldur áfram Magdeburg bikarmeistari eftir stórsigur gegn Melsungen Flensburg hirti brons í bikarkeppni „Hef ekki trú á að FH geti unnið Val í seríu“ Elvar Örn frábær og Melsungen mætir Magdeburg í úrslitum Stjarnan tryggði sér oddaleik Gísli og Ómar allt í öllu þegar Magdeburg flaug í úrslit Valur fyrsta lið inn í undanúrslit „Við stóðumst ekki prófið í dag“ Eyjakonur byrja úrslitakeppnina með látum Þórsarar tryggðu sér oddaleik Uppgjörið: Haukar - Stjarnan 36-23 | Yfirburðasigur Hauka Metamfetamín felldi markvörðinn Íslandsmeistararnir hefja titilvörn á sigri gegn Haukum Hafnfirðingar hefja atlögu að titlinum með sigri Óðinn Þór og félagar í undanúrslit Sjá meira
Uppgjör og viðtöl: Afturelding - Stjarnan 35-24 | Mosfellingar keyrðu og bökkuðu yfir Garðbæinga