Ásta hefur leitað í tíu ár að líffræðilegum föður sínum Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 8. apríl 2021 10:56 Ásta Kristín Guðrúnardóttir Pálsdóttir leitar uppruna síns og óskar eftir aðstoð Íslendinga. Facebook Þegar Ásta Kristín Guðrúnardóttir Pálsdóttir var 24 ára gömul, fékk hún að vita að hún væri rangfeðruð. Nú lætur hún reyna á mátt samfélagsmiðla í leitinni að líffræðilegum föður sínum. „
Ég fæddist í Reykjavík árið 1987, og ólst þar upp, og bý þar enn. Ég ólst upp hjá góðri fjölskyldu og á frábæran föður. Mamma mín dó árið 1991 og ég komst að því á fullorðinsárum að ég ætti annan líffræðilegan föður. Ég veit hins vegar ekki hver það er og hef engar upplýsingar, en mig myndi langa til að reyna að finna hann,“ skrifaði Ásta Kristín á Facebook. „Það var ákveðinn grunur og svo vangaveltur hjá mér, af því að ég leit öðruvísi út og svo fórum við í blóðprufu, DNA próf,“ segir Ásta í samtali við Vísi um ástæðu þess að hún lét athuga hvort hún væri rétt feðruð. Í kjölfarið fékk hún grun sinn staðfestan og fylgdu því flóknar tilfinningar. „Það var sorg að vita að pabbi minn sem ég er rosalega náin, sé ekki líffræðilegur faðir minn. Ég lít rosalega upp til hans. En svo vann ég mig í gegnum það. Það breyttist ekki neitt, hann er alveg jafn mikið pabbi minn og áður. Ég ákvað að ég vildi líka þekkja líffræðilegan föður, það væri gaman,“ segir Ásta. „Móðir mín hét Guðrún Margrét Þorbergsdóttir, bjó í Reykjavík, og var mikið í dansi og vann meðal annars á Prikinu og Orkustofnun.“ Fjölskyldan skilningsrík Ásta segir að hún hafi verið að leita að þessum manni „on and off“ í tíu ár, svo hún sé því mátulega bjartsýn. „Það væri samt gaman að finna þessa tengingu.“ Uppeldisfaðir Ástu hjálpaði henni að semja Facebook færsluna og sýnir henni mikinn stuðning, eins og aðrir fjölskyldumeðlimir. „Þau hafa skilning á því að mig langar að vita þetta, finna tengingu við þetta fólk líka.“ Ásta segir að hún viti einfaldlega ekki hvort móðir sín hafi vitað að hún væri rangfeðruð og ef svo er hver líffræðilegur faðir hennar væri. Hún hefur fundið fyrir miklum stuðningi síðan hún ákvað að opna sig um leitin á samfélagsmiðlum og fengið send góð ráð frá fólki sem hefur farið af stað í svipaða leit. „Ef einhver telur sig geta hjálpað mér með þetta eða vill aðstoða mig má vinsamlegast hafa samband við mig á Facebook: Ásta Kristín Guðrúnardóttir Pálsdóttir.“
Ástin og lífið Mest lesið Ísrael skyndilega talið líklegt til að vinna Eurovision Lífið Fékk morðhótanir og ætlar að leita réttar síns Lífið „Mér finnst mikilvægt að ég segi frá minni hlið“ Lífið Baulað á Ísrael sem flaug áfram í úrslitin Lífið Bieber-hjónin eiga von á barni Lífið Í lagi að sætta sig við að vera barnlaus Lífið Byrjaði að hlaupa til að sýna fyrrverandi í tvo heimana Lífið „Eins og verstu unglingar í sleepover“ Makamál Hera Björk fékk sprengjubrot að gjöf Lífið Hin raunverulega Martha opnar sig hjá Piers Morgan Lífið Fleiri fréttir Ísrael skyndilega talið líklegt til að vinna Eurovision Fékk morðhótanir og ætlar að leita réttar síns Baulað á Ísrael sem flaug áfram í úrslitin Bieber-hjónin eiga von á barni Baulað á keppanda Ísrael á æfingu Tónlistarframleiðandinn Steve Albini látinn Backstreet-strákur kominn aftur til Íslands Byrjaði að hlaupa til að sýna fyrrverandi í tvo heimana „Sögulegir skór“ Mari Järsk á uppboði Hafa komist að samkomulagi vegna andláta á Astroworld Í lagi að sætta sig við að vera barnlaus „Mér finnst mikilvægt að ég segi frá minni hlið“ Náttúrulegar bótox-meðferðir án sprautunála „Ef ég gæti hnoðað einn úr tíu bestu væri það himnaríki á jörð“ Hin raunverulega Martha opnar sig hjá Piers Morgan Hera Björk fékk sprengjubrot að gjöf Myndaveisla: Gleði og gæsahúð á forsýningu Sveitarómantíkur Raggi Bjarna þekkti ekki Friðrik Dór með nafni Friðrik Ómar kynnir stig Íslands í Eurovision Ian Gelder úr Game of Thrones látinn „Kastaði upp um nóttina áður en ég fór á sviðið“ Svakalega erfitt en stórkostlegt Anníe Mist fór í keisaraskurð Ungfrú Bandaríkin afsalar sér titlinum Sötrað á Kalda í tíu ár Grease-stjarnan Susan Buckner látin Guðni forseti á samstöðutónleikum í Háskólabíó Hera komst ekki áfram „Af hverju er oft vont að putta sig?“ Eurovision-vaktin: Vonbrigði á fyrra undankvöldi Eurovision Sjá meira