Sögðust vera vændiskonur og tóku upp vopn

Karlmaðurinn fór með tveimur konum heim af næturlífinu í gærkvöldi, …
Karlmaðurinn fór með tveimur konum heim af næturlífinu í gærkvöldi, miðvikudagskvöld. mbl.is/Ari

Karl­maður óskaði eft­ir aðstoð lög­reglu í miðborg Reykja­vík­ur í dag og sagði tvær kon­ur hafa rænt sig. Í dag­bók lög­reglu seg­ir að maður­inn hafi sagst hafa farið heim með tveim­ur kon­um eft­ir næt­ur­lífið. 

Skyndi­lega hefðu kon­urn­ar tjáð hon­um að þær væru vænd­is­kon­ur og óskuðu eft­ir að hann greiddi fyr­ir þjón­ust­una. 

Þegar hann neitaði að greiða hafi þær tekið upp vopn og hótað hon­um. Sagði hann kon­urn­ar hafa haft af sér fjár­muni.

Í dag­bók lög­reglu seg­ir enn frem­ur að ekki sé ljóst hverj­ar kon­urn­ar séu og að málið sé í rann­sókn. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert