Enski boltinn

Everton vinnur alltaf þegar Gylfi skorar eða leggur upp mark

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Gylfi Þór Sigurðsson fagnar hér marki með Everton liðinu á þessari leiktíð.
Gylfi Þór Sigurðsson fagnar hér marki með Everton liðinu á þessari leiktíð. Getty/Michael Regan

Gylfi Þór Sigurðsson lagði upp sigurmark Everton á móti Southamton í gærkvöld en sigurinn skilaði Everton liðinu upp í sjöunda sætið með jafnmörg stig og nágrannarnir í Liverpool.

Gylfi hefur nú komið með beinum hætti að sjö mörkum í ensku úrvalsdeildinni á þessu tímabili, skoraði fjögur mörk sjálfur og gefið þrjár stoðsendingar.

Gylfi kom líka að marki í öðrum leiknum í röð en hann skoraði í sigri á Liverpool í leiknum á undan.

Það boðar mjög gott fyrir Everton þegar Gylfi skorar eða leggur upp mark en liðið hefur unnið alla sjö leikina þar sem Gylfi hefur komið að marki með því að skora eða gefa stoðsendingu.

Everton hefur líka unnið þá þrjá bikarleiki þar sem Gylfi hefur átt þátt í marki og þetta eru því orðnir tíu sigurleikir í röð þar sem Gylfi býr til mark.

Þetta var þriðji 1-0 sigur Everton í vetur þar sem Gylfi skorar sigurmarki (á móti Chelsea og Sheffield United) eða gefur stoðsendinguna (á móti Southampton í gær).

Gylfi kom aðeins að einu marki í fyrstu tíu deildarleikjum sínum á leiktíðinni en hefur heldur betur bætt úr því.

Frá því að Gylfi skoraði sitt fyrsta deildarmark á tímabilinu á móti Chelsea um miðjan desember þá hefur hann átt þátt í tíu mörkum í sautján leikjum í deildinni eða enska bikarnum.

Alls hefur Gylfi komið að fjórtán mörkum í öllum keppnum á tímabilinu, skoraði sex mörk og gefið átta stoðsendingar.

Leikirnir sem Gylfi hefur átt þátt í marki í vetur:

  • Mark og stoðsending í 3-0 sigri á Salford (deildabikar)
  • Stoðsending í 4-1 sigri á West Ham (deildabikar)
  • Stoðsending í 4-2 sigri á Brighton
  • Mark í 1-0 sigri á Chelsea
  • Stoðsending í 2-1 sigri á Arsenal
  • Mark í 1-0 sigri á Sheffield United
  • Mark í 2-1 sigri á Leeds
  • Mark og þrjár stoðsendingar í 4-3 sigri á Tottenham (bikar)
  • Mark í 2-0 sigri á Liverpool
  • Stoðsending í 1-0 sigri á Southampton



Fleiri fréttir

Sjá meira


×