Real minnkaði forskot Barcelona á ný

Karim Benzema fagnar marki sínu í kvöld.
Karim Benzema fagnar marki sínu í kvöld. AFP/Ander Gillenea

Real Madrid gerði frábæra ferð til Baskalands og hafði betur gegn Athletic Bilbao, 2:0, þegar liðin mættust í spænsku 1. deildinni í knattspyrnu karla í kvöld.

Karim Benzema kom gestunum yfir þegar fyrri hálfleikur var rúmlega hálfnaður og Toni Kroos innsiglaði svo sigurinn á fyrstu mínútu uppbótartíma venjulegs leiktíma.

Sigurinn var mikilvægur fyrir Madrídinga þar sem liðið er nú með 41 stig, þremur stigum minna en topplið Barcelona, sem vann Getafe í deildinni fyrr í dag.

Pedri skoraði sigurmark Börsunga í 1:0-sigri.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert