Eldri hjón unnu 17,6 milljónir

Aðra vikuna í röð kom 2. vinningur í Vikinglotto til …
Aðra vikuna í röð kom 2. vinningur í Vikinglotto til Íslands. Í síðustu viku var það 24 ára gamall karlmaður sem hafði heppnina með sér en þessa vikuna voru það hjón á efri árum. mbl.is/Golli

Eigendur miða í Vikinglotto sem færði þeim rúmlega 17,6 milljóna vinning sl. miðvikudag hafa gefið sig fram hjá Getspá. Þetta eru fullorðin hjón og voru þau aldeilis lukkuleg með vinninginn „og áttu raunar bágt með að trúa því að lukkan hefði bankað upp á hjá þeim“, að því er segir í tilkynningu frá Íslenskri getspá. 

Þar segir ennfremur að eiginmaðurinn kaupi oft miða, vilji vera með og styrkja gott málefni í leiðinni.

„Þau hjónin búa í göngufæri við Kringluna og þangað fær hann sér göngutúra og kemur oft við í Happahúsinu en þar keypti hann einmitt miðann góða sem færði þeim hjónum fjárhagslegt öryggi til elliáranna,“ segir í tilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert