Staðfesta riðutilfelli á bæjunum þremur Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 27. október 2020 17:50 Búið er að staðfesta riðu í sauðfé á fjórum bæjum í Skagafirði. Vísir/Tryggvi
Matvælastofnun hefur staðfest að riða hefur greinst í sauðfé á þeim þremur bæjum í Skagafirði þar sem sterkur grunur lék á riðusmiti. Um tvö þúsund sýni hafa verið tekin að undanförnu í Tröllaskagahólfi vegna riðusmitsins. Í tilkynningu á vef Matvælastofnunar segir að búið sé að staðfesta riðu á bæjunum Grænumýri og Syðri-Hofdölum í Blönduhlíð, og Hofi í Hjaltadal. Sauðféð sem riðan greindist í kom frá Stóru-Ökrum þar sem riða var staðfest í síðustu viku. Talið er að skera þurfi niður hátt í þriðja þúsund gripa vegna riðutilfellana sem greinst hafa en endanleg ákvörðum um niðurskurð liggur ekki fyrir. Riðutilfellin eru mikið áfall fyrir bændur í sveitinni, líkt og fram hefur komið. Starfsmenn Matvælastofnunar hafa unnið hörðum höndum að því undanfarna daga að kortleggja flutninga sauðfjár til og frá bæjum innan hólfsins til þess að leggja mat á mögulega útbreiðslu smitsins. Þannig hafa verið tekin tæp tvö þúsund sýni úr sauðfé innan hólfsins frá því að grunur kom fyrst upp um riðusmit. Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra gerði á ríkisstjórnarfundi í morgun grein fyrir stöðunni sem upp er komin í Skagafirði vegna staðfestrar riðuveiki í Tröllaskagahólfi. Riðuveiki greindist 22. október á bænum Stóru- Ökrum 1 og Matvælastofnun hefur undanfarna daga kortlagt frekari útbreiðslu veikinnar. Ríkið mun greiða bændum, sem skera þurfa niður fé sitt vegna riðuveiki í Skagafirði, bætur og kostnað vegna riðunnar. Þetta kom fram í tilkynningu frá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu í dag.
Riða í Skagafirði Landbúnaður Akrahreppur Skagafjörður Tengdar fréttir Fleiri sýni tekin í Tröllaskagahólfi en ekki grunur um smit á fleiri bæjum Enn er óvíst hvort grunur sem vaknaði um riðusmit á fleiri bæjum í Tröllaskagahólfi hafi reynst á rökum reistur. 26. október 2020 12:05 „Alltaf hægt að halda í vonina en ég held að hún sé engin“ Bóndinn á Grænumýri í Skagafirði þar sem sterkur grunur leikur á riðusmiti hefur enga von um að endanleg niðurstaða sýnatöku leiði annað í ljós. 24. október 2020 16:23 „Þetta er harmleikur“ Bóndi á bænum Grænumýri á Tröllaskaga, sem sér fram á að þurfa að farga hátt í 1100 fjár vegna riðu sem greindist í hrúti á bænum, segir það harmleik. Samfélagið sé lamað eftir þennan mikla skell. 23. október 2020 20:01 Stefnir í að fella þurfi þrjú þúsund fjár Sterkur grunur er um riðusmit á þremur bæjum á Tröllaskaga til viðbótar við Stóru Akra 1 þar sem smit varð staðfest í vikunni. Alls er um að ræða tæplega þrjú þúsundur kindur og lömb. 23. október 2020 16:15 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Enok ákærður fyrir að fleygja manni niður tröppur og berja annan Innlent Kveðst ekki svindla á neinum með happdrætti sínu Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Gosið gæti þúsundfaldast við nýjan atburð Innlent „Ég sé engar staðreyndavillur í þessum þætti“ Innlent Segja „alvarlegar staðreyndavillur“ í umfjöllun Kastljóss Innlent Faðir mannsins sem lést á Litla-Hrauni krefst umbóta Innlent Fannst látinn í klefa sínum á Litla Hrauni Innlent Skjálfti fannst vel á höfuðborgarsvæðinu Innlent Vinnubrögðin gátu leitt til dauða Innlent Fleiri fréttir Fyrsta flugið til Íslands var hluti heimsviðburðar Öllum aðgerðum aflýst og flugfarþegar geta andað léttar Bein útsending frá samstöðutónleikum í Háskólabíó í opinni dagskrá Skelfilegt að þurfa grípa til hópuppsagna Nýtt sanngirnisbótafrumvarp gæti komið fram Atburðirnir fyrir botni Miðjarðarhafs því sem næst „óraunverulegir“ Engri kirkju hollt að vera of nálægt ríkinu Samþykktu tillögu Sjálfstæðisflokksins Reynt til þrautar að ná samningum áður en aðgerðir skella á Júróvisíon í skugga stríðsreksturs og sársaukafullar uppsagnir Enok ákærður fyrir að fleygja manni niður tröppur og berja annan Undirbúa hópuppsögn hjá Grindavíkurbæ Töluverð óvissa um framvindu jarðhræringanna Gæsluvarðhald yfir manninum framlengt „Við þurfum ekki að verjast neinu“ „Ég sé engar staðreyndavillur í þessum þætti“ Aðstæður fyrir stýrivaxtalækkun á morgun Gosið gæti þúsundfaldast við nýjan atburð Séra Guðrún kjörin biskup Íslands Segja „alvarlegar staðreyndavillur“ í umfjöllun Kastljóss SA og SSF skrifuðu undir langtímakjarasamning Agnes segir nýjan biskup taka við annarri kirkju en hún tók við Stýrivextir, Eurovision og biskupskjör „Skítkastið var ógeðslegt“ Fiskadauði í einni af mestu sjóbirtingsveiðiám landsins Valtýr ráðinn yfirlæknir Ný nálgun Samfylkingar í orkumálum konfekt í eyrum Jóns Vilja tryggja öryggi starfsfólks í vegavinnu „Massíf slysaslepping á vondu frumvarpi“ Stillir viðtækið á alheimsdögunina Sjá meira
Fleiri sýni tekin í Tröllaskagahólfi en ekki grunur um smit á fleiri bæjum Enn er óvíst hvort grunur sem vaknaði um riðusmit á fleiri bæjum í Tröllaskagahólfi hafi reynst á rökum reistur. 26. október 2020 12:05
„Alltaf hægt að halda í vonina en ég held að hún sé engin“ Bóndinn á Grænumýri í Skagafirði þar sem sterkur grunur leikur á riðusmiti hefur enga von um að endanleg niðurstaða sýnatöku leiði annað í ljós. 24. október 2020 16:23
„Þetta er harmleikur“ Bóndi á bænum Grænumýri á Tröllaskaga, sem sér fram á að þurfa að farga hátt í 1100 fjár vegna riðu sem greindist í hrúti á bænum, segir það harmleik. Samfélagið sé lamað eftir þennan mikla skell. 23. október 2020 20:01
Stefnir í að fella þurfi þrjú þúsund fjár Sterkur grunur er um riðusmit á þremur bæjum á Tröllaskaga til viðbótar við Stóru Akra 1 þar sem smit varð staðfest í vikunni. Alls er um að ræða tæplega þrjú þúsundur kindur og lömb. 23. október 2020 16:15