Guðbjörg Sverrisdóttir, leikmaður Vals í körfuknattleik kvenna, varð fyrir aðkasti ósátts fjárhættuspilara eftir að liðið laut í lægra haldi gegn Haukum í undanúrslitum bikarkeppninnar í gærkvöldi.
Nafnlaus fjárhættuspilari, sem virðist nú þegar hafa eytt aðgangi sínum, setti sig í samband við Guðbjörgu á Instagram og jós yfir hana fúkyrðum.
Helena Sverrisdóttir, systir Guðbjargar og leikmaður Hauka, benti á þetta á twitteraðgangi sínum og skildi lítið í þessari hegðun:
Eðlilegt að koma heim eftir leik og fá svona skilaboð….. er ekki í lagi?!😡Enginn að segja mér að það séu það miklir peningar í að betta á kvk körfu á Íslandi að réttlæta svona hegðun #körfubolti pic.twitter.com/H9YalewlJw
— Helena Sverrisdottir (@HelenaSverris) September 15, 2021
Fréttin hefur verið leiðrétt. Upphaflega var því haldið fram að Helena hafi sjálf fengið skilaboðin en reyndin var sú að Guðbjörg systir hennar fékk þau send.