Stjórn Biden heldur áfram að verja Trump í meiðyrðamáli Kjartan Kjartansson skrifar 8. júní 2021 16:58 E. Jean Carroll stefndi Trump fyrir meiðyrði eftir að hann kallaði hana „lygara“ og „dræsu“ þegar hann hafnaði því að hafa nauðgað henni á 10. áratugnum. AP/Seth Wenig Dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna heldur því enn fram að þegar Donald Trump kallaði konu sem sakaði hann um nauðgun „dræsu“ og „lygari“ hafi það verið hluti af störfum hans sem forseti. Afstaða ráðuneytisins er óbreytt þrátt fyrir stjórnarskiptin í janúar.
E. Jean Carroll, þekktur pistlahöfundur, steig fram á sínum tíma og hélt því fram að Trump hefði nauðgað sér í stórverslun á Manhattan í New York á 10. áratugnum. Trump brást við með því að kalla Carroll „lygara“, „dræsu“ og „ekki mína týpu“. Carroll stefndi honum þá fyrir meiðyrði. Í tíð Williams Barr, dómsmálaráðherra Trump, gengu lögfræðingar ráðuneytisins inn í málið og kröfðust þess að stefnu Carroll yrði beint að bandaríska ríkinu en ekki Trump persónulega. Trump hefði nefnilega kallað Carroll nöfnunum umdeildu sem hluti af opinberum störfum sínum sem forseti Bandaríkjanna. Joe Biden, núverandi forseti, gagnrýndi inngrip ráðuneytisins í kosningabaráttunni í fyrra og sagði það óviðeigandi að það skipti sér af einkamáli sem varðaði persónulega hegðun Trump. Hann lofaði þó einnig að reyna ekki að hafa áhrif á ákvarðanir ráðuneytisins sem forseti. Donald Trump hefur verið sakaður um að brjóta kynferðislega gegn fjölda kvenna í gegnum tíðina.AP/Alex Brandon Fyrirlitleg hegðun geti verið hluti af starfinu AP-fréttastofan segir að lögfræðingar dómsmálaráðuneytisins hafi haldið sig við fyrri afstöðu um að Trump ætti ekki að sæta persónulegri ábyrgð á ummælum sínum þegar meiðyrðamálið var tekið fyrir hjá áfrýjunardómstóli í gær. Héldu lögfræðingarnir því fram að það rúmaðist innan verklýsingar forsetans að bregðast við ásökunum um persónulega hegðun þeirra sem geti skapað efa um hæfni þeirra til að gegna embætti. „Jafnvel fyrirlitleg hegðun getur fallið innan sviðs starfsins,“ sögðu lögfræðingarnar í greinargerð sinni þar sem þeir viðurkenndu að Trump hefði notað „groddaraleg og dónaleg“ orð um Carroll. Dómari á neðra dómstigi hafði áður úrskurðað að Trump gæti ekki skýlt sér bak við að hafa verið forseti þegar hann lét ummælin umdeildu falla. Lögmaður Carroll fordæmdi ákvörðun ráðuneytisins um að sitja fast við sinn keip og leyfa Trump að komast upp með að ljúga um hana. „Á sama tíma og konur um allt landið stíga fram og draga menn til ábyrgðar fyrir árásir er dómsmálaráðuneytið að reyna að koma í veg fyrir að ég hafi sama rétt. Ég er reið! Ég er móðguð!“ sagði Carroll sjálf í yfirlýsingu. Fjöldi kvenna hefur sakað Trump um að hafa beitt sig kynferðislegu ofbeldi og kynferðislegri áreitni í gegnum tíðina. Hann hefur ætíð hafnað sök, oft með gífuryrðum um ásakendur sína.
Donald Trump Bandaríkin Joe Biden Tengdar fréttir Dómsmálaráðuneyti vill taka við vörn Trump gegn meiðyrðakæru Bandaríska dómsmálaráðuneytið tók það óvenjulega skref að taka við málsvörn Donalds Trump forseta í meiðyrðamáli konu gegn honum sem sakar hann um að hafa nauðgað sér á 10. áratugnum. 9. september 2020 14:25 Kona sem segir Trump hafa nauðgað sér vill erfðaefni hans Það sýni á að bera saman við sýni á kjól sem hún var í þegar hin meinta nauðgun á að hafa átt sér stað. 30. janúar 2020 22:50 Kærir Trump fyrir meiðyrði í tengslum við ásakanir um nauðgun Kona sem sakað hefur Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, um nauðgun hefur höfðað meiðyrðamál gegn forsetanum vegna ummæla hans í kjölfar ásakana hennar. 4. nóvember 2019 21:45 Staðfesta að þær hafi heyrt um meinta árás Trump New York Times hefur rætt við tvær konur sem E. Jean Carroll trúði fyrir frásögn af kynferðislegri árás sem hún segist hafa orðið fyrir að hálfu Bandaríkjaforseta um miðjan 10. áratuginn. 27. júní 2019 12:06 Trump kveðst ekkert kannast við pistlahöfundinn sem sakar hann um nauðgun Bandaríkjaforseti, Donald Trump, kveðst ekkert kannast við pistlahöfundinn E. Jean Carroll sem sakaði forsetann í gær um nauðgun á tíunda áratug síðustu aldar. 22. júní 2019 19:17 Pistlahöfundur sakar Trump um nauðgun Trump þvertekur fyrir ásakanirnar en fjölmargar konur hafa hingað til sakað hann um kynferðislega áreitni eða ofbeldi. 21. júní 2019 23:21 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Meðvirkni í garð Katrínar að tjá sig ekki um hana Innlent „Aldeilis hlessa“ á auknum viðbúnaði vegna mögulegs goss Innlent Tók upp þegar hann nauðgaði kærustu sinni í tvígang Innlent Maðurinn sem kveikti í sjálfum sér látinn Erlent Fluttir á sjúkrahús eftir hópslagsmál í miðborginni Innlent Getur gosið hvenær sem er Innlent Sprengjuhótun í Billund Erlent Að taka afstöðu er einkamál hvers og eins Innlent Þjófunum yfirsást taska með milljónum króna Innlent Fjögur börn meðal smitaðra af kíghósta Innlent Fleiri fréttir Sprengjuhótun í Billund Maðurinn sem kveikti í sjálfum sér látinn Íkveikjan ekki talin hafa beinst að Trump eða réttarhöldunum Kveikti í sér fyrir utan dómshúsið þar sem réttað er yfir Trump Fyrstu loftárásir Ísraela í Íran frá 1979 Fengu aðstoð Demókrata við að koma hernaðaraðstoð úr nefnd Hefur mátt sitja undir svívirðingum um sjálfan sig Segjast hafa skotið niður dýrmæta sprengjuflugvél Handtekinn í tengslum við áform um að ráða Selenskí af dögum Ísraelar gera árás á Íran Kennedy-fjölskyldan lýsir yfir stuðningi við Biden Bandaríkin stöðvuðu fulla aðild Palestínumanna að SÞ Hrunið í gömlu kauphöllinni heldur áfram Afsalta sjó til drykkjar í þurrki í Barcelona Eiginmaður Sturgeon ákærður fyrir fjárdrátt Mega koma til að snæða í Grindavík en aðeins í rútu Johnson í erfiðri stöðu Hafa vitneskju um mögulegan dvalarstað Íslendings sem flýr réttvísina Útsendarar Rússa sakaðir um skipulagningu árása í Þýskalandi Mikill mannskaði eftir sögulegt úrhelli í eyðimörkinni Kjarnorkuknúin drónaþyrla mun leita að lífrænum sameindum á Títan Sendi ösku í allt að þriggja kílómetra hæð Ákærður fyrir að nota slagorð SS-sveitanna á fjöldafundi Stjórnvöld í Katar að endurskoða sáttasemjarahlutverk sitt Réði lífvörð eftir árásina á bandamann Navalnís Borgarstjóri sakaður um brot gegn dóttur sinni Hæsta vindmylla heims á landi reist í Danmörku Þingforsetinn segist ekki ætla að fara fet Ísraelar sagðir búnir að ákveða að svara fyrir sig Boðflennusæfíll hrellir Kanadamenn Sjá meira
Dómsmálaráðuneyti vill taka við vörn Trump gegn meiðyrðakæru Bandaríska dómsmálaráðuneytið tók það óvenjulega skref að taka við málsvörn Donalds Trump forseta í meiðyrðamáli konu gegn honum sem sakar hann um að hafa nauðgað sér á 10. áratugnum. 9. september 2020 14:25
Kona sem segir Trump hafa nauðgað sér vill erfðaefni hans Það sýni á að bera saman við sýni á kjól sem hún var í þegar hin meinta nauðgun á að hafa átt sér stað. 30. janúar 2020 22:50
Kærir Trump fyrir meiðyrði í tengslum við ásakanir um nauðgun Kona sem sakað hefur Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, um nauðgun hefur höfðað meiðyrðamál gegn forsetanum vegna ummæla hans í kjölfar ásakana hennar. 4. nóvember 2019 21:45
Staðfesta að þær hafi heyrt um meinta árás Trump New York Times hefur rætt við tvær konur sem E. Jean Carroll trúði fyrir frásögn af kynferðislegri árás sem hún segist hafa orðið fyrir að hálfu Bandaríkjaforseta um miðjan 10. áratuginn. 27. júní 2019 12:06
Trump kveðst ekkert kannast við pistlahöfundinn sem sakar hann um nauðgun Bandaríkjaforseti, Donald Trump, kveðst ekkert kannast við pistlahöfundinn E. Jean Carroll sem sakaði forsetann í gær um nauðgun á tíunda áratug síðustu aldar. 22. júní 2019 19:17
Pistlahöfundur sakar Trump um nauðgun Trump þvertekur fyrir ásakanirnar en fjölmargar konur hafa hingað til sakað hann um kynferðislega áreitni eða ofbeldi. 21. júní 2019 23:21