Sigríður Á. Andersen stoltust af skipan dómara við Landsrétt Jakob Bjarnar skrifar 20. september 2021 16:07 Viðstaddir urðu forviða þegar Sigríður Á. Andersen lýsti því yfir að væri horft yfir það kjörtímabil sem væri að líða væri hún stoltust af skipan dómara við Landsrétt... Vísir/vilhelm Sigríður Á. Andersen, sem hraktist úr stól dómsmálaráðherra í kjölfar hins svokallaða Landsréttarmáls, svaraði því óvænt svo til að hún væri stoltust af skipan dómara við réttinn.
Þetta gerði hún við lok Kosningapallborðs Vísis en þar var hún gestur ásamt tveimur öðrum sem eru nú að kveðja þingið, þeim Steingrími J. Sigfússyni Vg og Jóni Þór Ólafssyni Pírötum. Við lok þáttar voru þau spurð af hverju þau væru stoltust sé litið til kjörtímabilsins sem nú er að líða og sagði Sigríður þá óvænt: „Ég er stoltust af skipun dómara í Landsrétt. „Að láta ekki sjálfskipaða elítu með órökstuddum hætti taka frammí fyrir hendurnar á mér í samvinnu og sátt við allan þingheim.“ Ekki vantaði neitt upp á að umræður væru hinar fjörlegustu, þegar þau sem nú eru að kveðja þingið fóru yfir sviðið. Jón Þór Ólafsson, Steingrímur J. Sigfússon og Sigríður Á. Andersen.vísir/vilhelm Steingrímur, sem sat við hlið hennar, virtist með ræskingum ekki vera alveg til í að kaupa það hrátt, sátt þingheims og Sunna Sæmundsdóttir fréttamaður, sem stýrði umræðum, spurði í forundran: Þrátt fyrir allar afleiðingarnar og eftirmál? „Já, ég er það. og ég er ánægð með að sú skipan stendur. Þetta er eitt af þeim verkum sem ég er sáttust við að hafa gert,“ sagði Sigríður þá. Hún sagði að illa væri fyrir þeim málum komið á Íslandi, skipan dómara væri á sjálfstýringu, fyrirbæri sem á að vera sjálfstætt en hafi ekki verið. Eitt helsta verkefni stjórnmálanna sem fram undan er sé að endurskoða lög um dómsstóla og dómara heilt yfir. Öll fóru þau á kostum í þættinum sem óhætt er að mæla með. En hann má sjá í heild sinni hér ofar. Ömurleg stjórnarandstaða En þó þátttakendur hafi staðið sig með mikilli prýði er óhætt er að segja að Sigríður hafi stolið senunni. Hún hlífði engum og sagði til að mynda það hafa komið sér á stórkostlega á óvart hversu ömurleg stjórnarandstaðan hafi verið. Því full ástæða hafi verið til að gagnrýna þá ríkisstjórn sem hennar þáttur á aðild að. „Ég er gáttuð á andleysinu í stjórnarandstöðunni,“ sagði Sigríður og tók fram að hún væri ekki að kalla eftir einhverju nöldri. Heldur nauðsynlegu aðhaldi. Ömurlegt hlyti að vera fyrir ríkisstjórn að sitja þar sem mál séu afgreidd í einhverri málamyndasamstöðu og stjórnarandstaðan samþykkir allt í nafni samstöðu. Steingrímur J. Sigfússon hafnaði alfarið þeim frasa, sem hann kallaði svo, að þingið hafi verið sent heim vegna Covid. Þvert á móti hafi það einmitt staðið sína plikt og öll stjórnskipan landsins haldist í föstum skorðum.vísir/vilhelm Öll voru þau sammála um að Covid hafi sannarlega haft áhrif á öll störf þingsins en Steingrímur, sem forseti þingsins, mótmælti því harðlega þegar því var haldið fram að þingið hafi í raun afsalað sér völdum. Hann vildi einmitt meina að þingið hafi ekki afsalað sér valdinu heldur staðið sína plikt. „Ég mótmæli þeim frasa að þingið hafi verið sent heim.“ Götustrákatal og götustrákapólitík Steingrímur var heldur ekki til í að kaupa kenningu Jóns Þórs um það að ríkisstjórnin hafi verið skrúfuð saman um stöðun, á forsendum hinna ýmsu framsóknararma Vinstri grænna og Sjálfstæðisflokks. „Við erum að verða nestorar og þú átt ekki að vera með svona tal, svona götustrákapólitík,“ sagði Steingrímur. En Jón Þór minnti Steinrím á að hann hafi starfað í malbikinu. Jón Þór Ólafsson var, að mati Steingríms, götustrákalegur þegar hann fór að tala um að stjórnin væri fyrst og fremst um kyrrstöðu en ekki umbætur. Framsóknararmar Sjálfstæðisflokks og Vinstri grænna hafi notið sín.vísir/vilhelm Jón Þór sagði að menn hafi skipt ráðuneytum milli sín að hætti smákónga og jafnvel hafi tekist að drepa mál sem voru í ríkisstjórnarsáttmálanum svo sem frumvarp um hálendisþjóðgarð. „Þarna sameinast vinstri og hægri í að standa vörð um kerfið og halda því óbreyttu,“ sagði Jón Þór. Bæði Sigríður og Steingrímur vildu meina að ríkisstjórnarsamstarfið hafi verið farsælt en það væri ekki æskilegt til lengri tíma að flokkar sem væru yst til hægri og svo vinstri á hinum flokkspólitíska ási væru í ríkisstjórnarsamstarfi. Þessi þáttur, þar sem hinir skeleggu þingmenn fara yfir sviðið, hlýtur að teljast skylduáhorf fyrir alla áhugamenn um stjórnmál.
Alþingiskosningar 2021 Pallborðið Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Píratar Sjálfstæðisflokkurinn Vinstri græn Landsréttarmálið Tengdar fréttir Eitraðar pillur milli frambjóðenda Pallborðsumræður frambjóðenda reyndust eldheitar og ljóst að skammt er í kosningar, spennustigið var hátt. 7. september 2021 17:27 Kristrún gaf lítið fyrir Bubbatal Bjarna og Gunnars Smára Bjarni Benediktsson, Gunnar Smári Egilsson og Kristrún Frostadóttir tókust hressilega á við Pallborðið. 31. ágúst 2021 16:50 Kosningapallborðið: „Nú heyrist þessi fagri söngur í kosningabaráttunni“ Fulltrúar Flokks fólksins, Viðreisnar og Vinstri grænna tókust á í bráðfjörugum umræðum um pólitík í útsendingarstúdíói Vísis. 14. september 2021 17:26 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Facebook bannar Ástþóri að auglýsa Innlent María Sigrún birtir tölvupósta Dags Innlent Fylgjast grannt með gangi mála Innlent Býður þjóðarhöll Færeyja undir landsleiki Íslands Innlent Efstar með ómarktækan mun á milli sín Innlent Reykjavík lækkar gjaldskrár vegna þjónustu við barnafjölskyldur Innlent „Á endanum snýst þetta allt um peninga“ Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Eldur í iðnaðarhúsnæði á Höfða Innlent Hjól undan strætó braut svalir á annarri hæð Innlent Fleiri fréttir Leggja aftur fram tillögu um að selja húsnæði MÍR Facebook bannar Ástþóri að auglýsa Býður þjóðarhöll Færeyja undir landsleiki Íslands Reykjavík lækkar gjaldskrár vegna þjónustu við barnafjölskyldur Fylgjast grannt með gangi mála Margt bendi til þess að gosinu sé lokið María Sigrún birtir tölvupósta Dags „Á endanum snýst þetta allt um peninga“ Sækja veikan sjómann Eldur í iðnaðarhúsnæði á Höfða Efstar með ómarktækan mun á milli sín Fjögurra bíla árekstur efst í Ártúnsbrekku Björn Leví segir Harald hafa fundið skálkaskjól í orðum Bjarna Flæði innan við einn rúmmetri á sekúndu „Ég hafna því að við séum ekki að sinna velferð dýra á þessum bæ” Ákvörðun Seðlabankans sé óskiljanleg „Ríkisfjármálin eru í ruglinu“ Atvinnubílstjórar sýni minnstu tillitssemina Orkuveitan skilar Elliðaárdalnum Stuðningsmenn Katrínar áhugasamari en aðrir Lengri lokun þar sem kerfið hefur „hangið á bláþræði“ Skúli Tómas sinnir sjúklingum af og til „Allir að bíða eftir þessum atburði sem ekki skeður“ Nýborin lömb finnist dauð og deyjandi úr vosbúð „Hef haft áhyggjur af fangelsismálum frá því ég kom í embætti“ „Kastljós á ekki að vera Staksteinar“ Kannabis en ekki kjólar í kassanum Halla Hrund áfram efst Fjöldaúrsagnir kvenna úr mannkyninu Leki kom að bát út af Barða Sjá meira
Eitraðar pillur milli frambjóðenda Pallborðsumræður frambjóðenda reyndust eldheitar og ljóst að skammt er í kosningar, spennustigið var hátt. 7. september 2021 17:27
Kristrún gaf lítið fyrir Bubbatal Bjarna og Gunnars Smára Bjarni Benediktsson, Gunnar Smári Egilsson og Kristrún Frostadóttir tókust hressilega á við Pallborðið. 31. ágúst 2021 16:50
Kosningapallborðið: „Nú heyrist þessi fagri söngur í kosningabaráttunni“ Fulltrúar Flokks fólksins, Viðreisnar og Vinstri grænna tókust á í bráðfjörugum umræðum um pólitík í útsendingarstúdíói Vísis. 14. september 2021 17:26