Hallarekstur í fjárlögum sem kynnt verða á morgun

Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra.
Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Fjárlög verða lögð fyrir þingið á morgun. Eins og búast mátti við er gert ráð fyrir áframhaldandi hallarekstri ríkissjóðs. 

Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra, vildi lítið segja um efni fjárlaganna þegar mbl.is spurði hann eftir ríkisstjórnarfund í dag. 

„Það kemur bara í ljós á morgun,“ sagði hann við blaðamann. 

„Það verður hallarekstur augljóslega, eins og fjármálaáætlunin gerði ráð fyrir, ekki bara á næsta ári heldur á komandi árum. Útlitið er engu síðar betra en við töldum fyrir stuttu síðan,“ bætti hann við. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert