Þekktur strípalingur hljóp framhjá leikmönnum United eftir 14 tíma bið Sindri Sverrisson skrifar 9. apríl 2021 14:30 Olmo García mættur inn á völlinn í Granada í gærkvöld, á leik heimamanna gegn Manchester United. Getty/Álex Cámara Nakinn maður hljóp inn á völlinn eftir fimm mínútna leik hjá Granada og Manchester United á Spáni í gærkvöld, þrátt fyrir áhorfendabann á vellinum.
Athæfið kom stuðningsmönnum United um allan heim eflaust á óvart, og spaugilega fyrir sjónir, en íbúar Granada voru líklega ekki eins hissa því ekki er um einsdæmi að ræða hjá manninum. Atvikið má sjá hér að neðan, í lýsingu Gumma Ben, en strípalingurinn fékk ekki að vera lengi inni á vellinum áður en gæslumenn náðu til hans. Klippa: Strípalingur í Granada Maðurinn sem hljóp inn á völlinn heitir Olmo García. Hann er viðskiptamaður og rekur fyrirtæki sem framleiðir meðal annars fæðubótarefni. Talið er að hann hafi laumað sér inn á leikvanginn í Granada snemma morguns og beðið þar í leynum í fjórtán klukkutíma áður en hann hljóp inn á völlinn. Kudos to this guy, Mr. Olmo Garcia. Hid for 14 hours just to streak a Europa League match, and apparently he s the Leslie of Granada. https://t.co/lx3FYROPxf— Alex Stivers (@AlexStivers) April 9, 2021 Oft verið nakinn á almannafæri Sumarið 2016 tók García fyrst upp á því að spóka sig um nakinn í Granada, hinni þekktu ferðamannaborg sem er í Andalúsíu á sunnanverðum Spáni. Spænska blaðið Marca vísar í viðtal við García frá því fyrir nokkrum árum þar sem hann sagði að með því að vera nakinn væri hann hreinni, fyllri af kyrrð og ró, og í betri í tengslum við móður náttúru. García hefur áður sést nakinn á almannafæri, meðal annars í verslunarmiðstöð, við dómkirkjuna í Granada og í Sierra Nevada fjallgarðinum. olmo paseando por el centro comercial nevada pic.twitter.com/oLPrkRP5sZ— lucía (@luciaxamerica) March 25, 2021 Innkoma García virtist ekki hafa góð áhrif á lið Granada. Að minnsta kosti tapaði liðið leiknum, 2-0, og er því í erfiðri stöðu fyrir seinni leikinn við United á Old Trafford næsta fimmtudag.
Evrópudeild UEFA Spánn Tengdar fréttir Sjáðu Lindelöf breytast í Kroos og vítið sem United fékk Manchester United er í algjörri kjörstöðu til að komast í undanúrslit Evrópudeildarinnar í fótbolta eftir að hafa unnið 2-0 sigur gegn spænska liðinu Granada í samnefndri borg í gær. 9. apríl 2021 12:01 Man United í góðum málum eftir 2-0 sigur á Spáni Manchester United vann 2-0 sigur á Granada í 8-liða úrslitum Evrópudeildarinnar í kvöld. Man Utd þar með í frábærum málum fyrir síðari leik liðanna eftir viku. Það voru þó ekki mörkin né úrslit leiksins sem vöktu hvað mesta athygli. 8. apríl 2021 20:55 Mest lesið „Grét rosa mikið út af öllu og engu“ Sport Uppgjörið og viðtöl: Valur - Haukar 28-27 | Íslandsmeistarnir sluppu með skrekkinn Handbolti Aðstoðardómarinn bað Bæjara afsökunar: „Þetta er hörmung“ Fótbolti Uppgjör og viðtöl: Stjarnan - Keflavík 86-79 | Einvígið á leið í oddaleik Körfubolti Myndaveisla frá risasigrinum á Eistum Handbolti Gagnrýnir lítinn stuðning við afreksíþróttafólk: „Upphæðin ein og sér er grín“ Handbolti Sveindís bikarmeistari annað árið í röð Fótbolti Tekst Glódísi að hrifsa „barnið“ af Popp í dag? Fótbolti „Við vorum skugginn af sjálfum okkur“ Handbolti Stuðningurinn ómetanlegur: „Farið í dýpstu leyndarmálin“ Sport Fleiri fréttir Evrópudraumur Aston Villa úti Atalanta og Leverkusen í úrslit Evrópudeildarinnar „Persónulegt markmið að skora einu sinni á móti öllum liðum“ Fullt hús stiga hjá Njarðvíkingum og tvö rauð á Akureyri Uppgjör: Tindastóll - Fylkir 3-0 | Fyrsta tap nýliðanna Stefán Teitur og félagar bikarmeistarar Sveindís bikarmeistari annað árið í röð Uppgjörið: Víkingur - Þór/KA 1-2 | Þrír norðansigrar í röð Katla með tvennu í Íslendingaslag Rodri kemur ekki til greina en Spánn á bestu stjórana Rekin út af fyrir litla töf, Nadía reddaði Fanneyju og Blikar sjóðheitir Hafnað af Stoke og var stuðningsmaður Real síðast Fyrsta sumarmót ársins í opinni dagskrá í kvöld Tekst Glódísi að hrifsa „barnið“ af Popp í dag? Sjáðu mörk óvæntu hetjunnar og þegar allt trylltist á Bernabéu „Þegar ég var sjö ára í Birmingham dreymdi mig um svona kvöld“ Aðstoðardómarinn bað Bæjara afsökunar: „Þetta er hörmung“ Uppgjörið og viðtöl: Keflavík - Valur 1-2 | Meistararnir komu til baka suður með sjó Joselu hetjan þegar Real Madrid fór í úrslit í enn eitt skiptið „Eitthvað sem þær þurfa að svara fyrir á fundi á morgun“ Uppgjörið og viðtöl: FH - Þróttur 1-0 | Sigurmark á 96. mínútu Uppgjörið og viðtöl: Breiðablik - Stjarnan 5-1| Blikar kláruðu dæmið í fyrri hálfleik Fiorentina aftur í úrslit Sambandsdeildarinnar Gamli FH-ingurinn kom Fredrikstad áfram í bikarnum Dæmdur fyrir aðstoð við morð en valinn í landslið Síle Enrique hneykslaður: „Er þér alvara?“ „Spáin hjálpar okkur frekar en eitthvað annað“ Stolni gullhnöttur Maradona boðinn upp „Mbappé kann ekki að vera hetja“ Gummi Ben og félagar tímamældu leiktafir KR-ingsins Sjá meira
Sjáðu Lindelöf breytast í Kroos og vítið sem United fékk Manchester United er í algjörri kjörstöðu til að komast í undanúrslit Evrópudeildarinnar í fótbolta eftir að hafa unnið 2-0 sigur gegn spænska liðinu Granada í samnefndri borg í gær. 9. apríl 2021 12:01
Man United í góðum málum eftir 2-0 sigur á Spáni Manchester United vann 2-0 sigur á Granada í 8-liða úrslitum Evrópudeildarinnar í kvöld. Man Utd þar með í frábærum málum fyrir síðari leik liðanna eftir viku. Það voru þó ekki mörkin né úrslit leiksins sem vöktu hvað mesta athygli. 8. apríl 2021 20:55