Umsátrinu í Hafnarfirði lauk þegar maðurinn gaf sig fram Kjartan Kjartansson, Atli Ísleifsson og Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifa 22. júní 2022 12:36 Sérsveitarmaður miðar byssu sinni við Miðvang í Hafnarfirði. FJölmennt lið sérsveitarmanna var á vettvangi. Vísir/Vilhelm Karlmaður á sjötugsaldri sem grunaður er um að hafa skotið á tvo bíla við Miðvang í Hafnarfirði kom út úr íbúð sinni sjálfviljugur skömmu eftir hádegi og er nú í haldi lögreglu. Þar með lauk tæplega fjögurra klukkustunda löngu umsátursástandi. Umsátrið hófst eftir að tilkynning barst um skothvelli við fjölbýlishús við Miðvang í Hafnarfirði á áttunda tímanum í morgun. Íbúi í blokk við Miðvang 41 var grunaður um að skjóta á kyrrstæðan bíl á bílastæði gegnt leikskólanum Víðivöllum. Lögreglan segir nú að maðurinn hafi skotið á tvo bíla. Fjölmennt lið sérsveitarmanna var sent á staðinn ásamt dróna og vélmenni sem var notað við aðgerð lögreglu. Lögreglumenn voru í símasambandi við manninn frá því um átta leytið en í millitíðinni var íbúum í blokkinni og nærliggjandi húsum bannað að yfirgefa heimili sín. Skúli Jónsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn, segir í samtali við fréttastofu að maðurinn hafi sjálfviljugur gefið sig fram um klukkan 12:20. „Samningaviðræðurnar tókust. Hann var handtekinn í framhaldinu og er verið að flytja hann á lögreglustöð.“ Skúli segir að nú taki við rannsóknarvinna á vettvangi. „Búið er að taka lokunina af hérna í Miðvanginum og vettvangsvinna að hefjast.“ Hann segir að aðgerðin hafi í tekist vel. „Þetta tekur sinn tíma, svona samningaviðræður. Maður er bara guðslifandi feginn að enginn hafi slasast í þessu útkalli.“ Ekki er vitað til þess að nokkur tengsl séu á milli byssumannsins og bílsins sem hann skaut á. Fréttin hefur verið uppfærð.
Umsátrið hófst eftir að tilkynning barst um skothvelli við fjölbýlishús við Miðvang í Hafnarfirði á áttunda tímanum í morgun. Íbúi í blokk við Miðvang 41 var grunaður um að skjóta á kyrrstæðan bíl á bílastæði gegnt leikskólanum Víðivöllum. Lögreglan segir nú að maðurinn hafi skotið á tvo bíla. Fjölmennt lið sérsveitarmanna var sent á staðinn ásamt dróna og vélmenni sem var notað við aðgerð lögreglu. Lögreglumenn voru í símasambandi við manninn frá því um átta leytið en í millitíðinni var íbúum í blokkinni og nærliggjandi húsum bannað að yfirgefa heimili sín. Skúli Jónsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn, segir í samtali við fréttastofu að maðurinn hafi sjálfviljugur gefið sig fram um klukkan 12:20. „Samningaviðræðurnar tókust. Hann var handtekinn í framhaldinu og er verið að flytja hann á lögreglustöð.“ Skúli segir að nú taki við rannsóknarvinna á vettvangi. „Búið er að taka lokunina af hérna í Miðvanginum og vettvangsvinna að hefjast.“ Hann segir að aðgerðin hafi í tekist vel. „Þetta tekur sinn tíma, svona samningaviðræður. Maður er bara guðslifandi feginn að enginn hafi slasast í þessu útkalli.“ Ekki er vitað til þess að nokkur tengsl séu á milli byssumannsins og bílsins sem hann skaut á. Fréttin hefur verið uppfærð.
Skotárás við Miðvang Hafnarfjörður Lögreglumál Skotvopn Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Katrín efst en Jón hrynur í nýrri könnun Innlent Kolbeinn Sigþórsson ákærður fyrir brot gegn barnungri stúlku Innlent „Það er norskur sigur í dag“ Innlent Halla vill skikka ungmenni í samfélagsþjónustu Innlent Íslendingur í gæsluvarðhaldi vegna Hamraborgarmálsins Innlent Samþykktu verkfallsaðgerðir á Keflavíkurflugvelli Innlent Hárgreiðslustóll ekki hættulegt tæki og konan fær engar bætur Innlent Útimarkaðurinn í Mosó hættir Innlent Betra að fá óþægilegu málin fram fyrr en seinna Innlent Horfði á þegar vinur hans réðst á manninn sem braut á dóttur hans Innlent Fleiri fréttir „Fann það þegar ég vaknaði í morgun að þetta var lúmskt áfall“ Horfði á þegar vinur hans réðst á manninn sem braut á dóttur hans „Helvíti fínt“ að komast aftur á Papa's Pizza Ætlar ekki að þröngva sér upp á fólk Katrín efst en Jón hrynur í nýrri könnun Papa's Pizza, verkföll flugvallarstarfsmanna og óvæntur forsetaframbjóðandi Kolbeinn Sigþórsson ákærður fyrir brot gegn barnungri stúlku Framboð Viktors Traustasonar er gilt Hárgreiðslustóll ekki hættulegt tæki og konan fær engar bætur Afkoma borgarinnar versnar um níu milljarða króna milli ára Samþykktu verkfallsaðgerðir á Keflavíkurflugvelli Útimarkaðurinn í Mosó hættir Atli Þór ráðinn til Pírata: „Við ætlum að koma flokknum í ríkisstjórn“ Biðlistinn á Stígamótum styttist í fyrsta sinn í þrjú ár Ný skoðanakönnun á morgun og Pallborð klukkan 14 Áfram landris og óvissa um framhaldið Tryggja þurfi tímabundin afnot náttúruauðlinda í stjórnarskrá Búinn að skila inn undirskriftum eftir „óvenjulegan“ frest „Það er norskur sigur í dag“ Grindvíkingar opna bakarí og veitingastað á ný Bakarí og veitingastaður opna í Grindavík á ný Friðrik skipaður sendiherra í Póllandi Halla vill skikka ungmenni í samfélagsþjónustu Íslendingur í gæsluvarðhaldi vegna Hamraborgarmálsins Betra að fá óþægilegu málin fram fyrr en seinna Eldur í ruslageymslu í Hafnarfirði Seinni umferð biskupskjörs hefst á hádegi í dag Icelandair flýgur til Færeyja að nýju Stutt í næsta gos komi til gosloka „Það er hart sótt að okkar fólki“ Sjá meira