Þjálfari Gróttu eftir grátlegt tap: „Djöfull langar mig að blóta“ Dagbjört Lena Sigurðardóttir skrifar 11. október 2021 20:15 Arnar Daði var súr og svekktur í kvöld. vísir/hulda margrét Arnar Daði Arnarsson, þjálfari Gróttu, var vægast sagt ósáttur með eins marks tap sinna manna gegn Fram í Olís-deild karla í handbolta í kvöld. Leiknum lauk með 24-23 sigri gestanna. „
Ég er vonsvikinn. Við vorum ekki nægilega góðir til þess að vinna þennan leik. Ég veit ekki hvort hann Einar Jónsson sé sammála mér en mér fannst Framararnir heldur ekki spes. En það er ekkert spurt að því. Við voruð bara ekki nægilega góðir til að vinna,“ sagði Arnar Daði eftir leik og hélt svo áfram. „Djöfull langar mig að blóta. Við vorum bara alls ekki nægilega góðir. Þetta er eiginlega bara ekki hægt. Við getum ekki verið að spila á sama leveli og andstæðingarnir og svo vonast eftir að vinna þetta í lokin. Við hefðum átt að vera búin að klára þennan leik fyrir löngu en við höfðum ekki gæðin í það.“ „Mér fannst spilamennskan ekki nægilega góð. Ég nenni ekki að vera að segja eitthvað um hvað við hefðum átt að gera. Við áttum bara að vinna Fram í dag. Ég set standard á leikmenn sem ég er með í liðinu. Við erum ekkert með þetta kjallaralið, við erum með hörkuleikmenn en við þurfum bara að fara að spila betri handbolta. Þetta er ekki hægt hérna leik eftir leik.“ „Við stöndum í Val, við stöndum í FH, við stöndum í Fram. Það skiptir engu djöfulsins máli hvað liðin heita. Við mætum alltaf í leik en svo klárum við þetta ekki þegar uppi er staðið. Ég nenni ekki að vera að tuða yfir dómgæslunni. Við getum það ekki þegar við erum ekki skömminni skárri en ég veit allavega ekki hverjir voru bestu leikmenn vallarins í dag.“ „Ég átti nokkur tiltöl við eftirlitsdómarann í leiknum. Mér finnst Sissi (Kristján halldórsson) nú ágætur. Og ég spyr hann oft í leiknum hvort þetta hafi verið réttur dómur eða ekki og ég veit ekki betur heldur en að hann hafi oftar en ekki verið sammála mér og ósammála hans teymi.“ „Ég er svo pirraður að ég gæti gert eitthvað sem ég á ekki að vera að gera þannig ég ætla nú ekki að tjá mig of mikið. Ég veit ekki hvort þessi þáttur sem verður sýndur (Seinni bylgjan) hafi einhvern áhuga á að skoða einhverja dóma en skoðið þessar tvær mínútur á Birgi Stein í lokin.“ „Er ekki brotið á Igor þarna í lokin? Undirhandarskotið sem tekið er undir lokin þegar Rógvi fær hann í fótinn. Þetta er endalaust af dómum. Undir lok seinni hálfleiks kemur hendin upp eftir aðeins 40 sekúndur en þeir eru manni færri í fyrri hálfleik þar sem þeir fá að spila í mínútu áður en höndin kemur upp. Þetta er bara endalaust kjaftæði sem er ekki hægt að lifa með að eilífu,“ sagði Arnar Daði að endingu.
Handbolti Íslenski handboltinn Grótta Olís-deild karla Mest lesið „Maður hefur verið milli tannanna á fólki síðan maður var ungur“ Íslenski boltinn Gat ekki staðið upp til að taka við bikarnum Sport Adam hundfúll og Arnar beint í símann Íslenski boltinn Sjáðu aukaspyrnumark Gylfa, umdeildan rangstöðudóm og rauðu spjöldin Íslenski boltinn Uppgjör: Valur - Njarðvík 68-67 | Ekki fallegt en það telur Körfubolti „Arnar fór langt yfir strikið“ en nafni hans oftar með dónaskap Íslenski boltinn Segir að Viðar hafi ekki mætt á æfingu á leikdegi Íslenski boltinn Dortmund í úrslit eftir sigur í París Fótbolti „Síðasti naglinn í kistu Ten Hag“ Enski boltinn Gaf leik því hún vildi ekki keppa við trans konu Sport Fleiri fréttir Undanúrslit í Meistaradeildinni klár „Bara að fara heim og hitta mömmu“ Fjórir frá vegna meiðsla: „Dagurinn ekkert frábær á skrifstofunni“ „Höfum spilað vel án Arons áður“ „Veit ekki hvað Elmar þarf að gera til að komast í landsliðið“ Kostar 600 þúsund að keppa með U18: „Þetta eru þakkirnar fyrir að spila fyrir landsliðið“ Uppgjör og viðtöl: FH - ÍBV 34-27 | Aronslausir FH-ingar tryggðu sér sæti í úrslitum Guðmundur og Íslendingalið Ribe-Esbjerg í undanúrslit Afturelding einum sigri frá úrslitum Magdeburg á toppinn eftir stórleik Íslendinganna Fyrsta tap lærisveina Guðjóns Vals síðan í byrjun mars Öruggt hjá Teiti Erni og félögum HSÍ lengir bann Einars: „Framganga þjálfarans var mjög ógnandi og ódrengileg“ Grótta upp í Olís eftir sigur með minnsta mun í oddaleik Hætti óvænt: Fannst hann skulda fjölskyldunni smá tíma „Ég sakna hennar á hverjum degi“ Jóhanna Margrét frábær í góðum sigri Skara Viggó fór á kostum í góðum sigri Leipzig Reiður Einar hellti sér yfir eftirlitsdómarana Hættir eftir að hafa komið Fjölni upp „Við vorum bara ekki á svæðinu“ Metamfetamín fannst í báðum sýnum markmannsins Uppgjörið og viðtöl: Valur - Afturelding 39-25 | Valsmenn jafna einvígið með stórsigri PSG tókst ekki að leika ótrúlega endurkomu Kiel eftir Fjölnir tryggði sér sæti Olís deildinni á næsta tímabili Svekkjandi tap lækkar líkurnar hjá lærisveinum Arnórs Kielce kærir leikinn gegn Magdeburg Aron í myndatöku í dag vegna meiðslanna Sjáðu dramatísku vítakastskeppnina í Eyjum Elín Jóna færir sig á milli félaga á Jótlandi Sjá meira