Skotin fljúga á milli verðlaunablaðamanns og ritstjóra hans Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 29. október 2020 20:25 Glenn Greenwald er heimsþekktur blaðamaður. Getty/Hannah Peters
Bandaríski blaðamaðurinn Glenn Greenwald hefur sagt starfi sínu lausu sem blaðamaður á The Intercept, miðli sem hann kom sjálfur að því að stofna. Hann segir ritstjóra fjölmiðilsins hafa reynt að ritskoða grein hans um Joe Biden. Aðalritstjóri blaðsins segist aðeins hafa verið að vinna vinnuna sína og skýtur föstum skotum að Greenwald í yfirlýsingu vegna brotthvarfs blaðamannsins. Greenwald vann sér það helst til frægðar að hafa unnið umfjöllun um viðamiklar njósnir bandarísku þjóðaröryggisstofnunarinnar sem byggði á leyniskjölum sem uppljóstrarinn Edward Snowden lak árið 2013. Umfjöllunin fékk meðal annars Pulitzer-verðlaunin virtu árið 2014. Skömmu síðar stofnaði Greenwald The Intercept, miðil sem gefur sig út fyrir að stunda rannsóknarblaðamennsku. Í uppsagnarbréfi sem Greenwald birti í dag segir hann að hann hafi sagt starfi sínu lausi hjá fjölmiðlinum. Aðalástæðan sé sú að ritstjórar Intercept hafi reynt að ritskoða grein hans, þvert á ákvæði í samningi hans. Sagðist hann hafa verið að vinna grein um Joe Biden, forsetaframbjóðenda Demókrata, og að ritstjórar hans hafi sagt honum að hann myndi ekki fá að birta greinina nema hann myndi fjarlægja alla gagnrýni á Biden úr greininni. Aðalritstjóri The Intercept, Betsy Reed, var hins vegar ekki lengi að svara uppsagnarbréfi Greenwalds og skýtur hún föstum skotum að blaðamanninum. Segir hún það af og frá að reynt hafi verið að ritskoða grein Greenwalds. Ritstjórarnir hafi aðeins verið að vinna vinnuna sína. Umrædd grein Greenwald hafi aðeins verið tilraun hans til þess að enduróma „vafasamar fullyrðingar“ af hálfu framboðs Donalds Trump, forseta Bandaríkjanna, í dulargervi blaðamennsku. Intercept EIC Betsy Reed sent me this statement regarding the departure of @ggreenwald, saying there's a "fundamental disagreement over the role of editors in the production of journalism and the nature of censorship." pic.twitter.com/Od2TTKLsyq— ErikWemple (@ErikWemple) October 29, 2020 „Við berum mikla virðingu fyrir þeim blaðamanni sem Greenwald var, og við erum stolt af megninu af því sem við unnum að undanfarin sex ár. Það er Glenn sem hefur horfið frá því þeim gildum sem hann vann eftir, en ekki The Intercept,“ skrifar Reed. Lesa má yfirlýsingu Greenwald í heild sinni hér og yfirlýsingu Reed hér.
Bandaríkin Fjölmiðlar Tengdar fréttir Saka heimsþekktan blaðamann um aðild að hlerunum Glenn Greenwald sakar ríkisstjórn Jairs Bolsonaro Brasilíuforseta um að virða ekki fjölmiðlafrelsi. Vefmiðill Greenwald birti fréttir upp úr farsímagögnum dómsmálaráðherra Brasilíu í fyrra. 21. janúar 2020 18:39 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Innlent Einhver í herberginu segi ekki satt Innlent Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Innlent Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Innlent Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Innlent Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Innlent „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Innlent Óvinnufær eftir harkalegt fall þegar strappur slitnaði Innlent Skipstjórinn og tveir stýrimenn handteknir vegna sjóslyssins Innlent Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“ Innlent Fleiri fréttir „Einfari“ ákærður fyrir tilræðið við Fico Hver er Robert Fico? Neyðarástandi lýst yfir á Nýju-Kaledóníu eftir miklar óeirðir Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Þverpólitískar tillögur um viðbrögð vegna gervigreindar FIFA byrjað að vinda ofan af umbótum eftir spillingarhneykslið Fulltrúar Talíbana á ráðstefnu í Ósló Fyrsta opinbera málverkið af konunginum Karli III afhjúpað í gær Gróðureldar ógna olíuvinnslumiðstöð í Kanada Gríðarleg leit gerð að mönnum sem frelsuðu fanga í Frakklandi Skriðdrekar Ísraelshers komnir inn í íbúðahverfi í Rafah Framámaður AfD sektaður fyrir að nota slagorð nasista Vill bjóða NATO að byggja nýjan flugvöll í Færeyjum Þorir að veðja bjór á að hún verði áfram forsætisráðherra Lokað á grein um barnadráp í Bretlandi Drápu fangaverði og hjálpuðu fanga að strjúka „Rússnesku lögin“ samþykkt í Georgíu Bendlaði Trump beint við þagnargreiðslurnar Losnar af réttargeðdeild eftir allt saman Blinken í óvænta heimsókn til Kænugarðs Megrunarlyfin nýjasta vopnið gegn hjartasjúkdómum? Fjöldi látinna á Gasa á reiki Færeyingar fjölga vindmyllum til að draga úr olíukyndingu Sjá meira
Saka heimsþekktan blaðamann um aðild að hlerunum Glenn Greenwald sakar ríkisstjórn Jairs Bolsonaro Brasilíuforseta um að virða ekki fjölmiðlafrelsi. Vefmiðill Greenwald birti fréttir upp úr farsímagögnum dómsmálaráðherra Brasilíu í fyrra. 21. janúar 2020 18:39