Koeman vonast til að byrja jafnvel sem stjóri og hann gerði sem leikmaður Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. október 2020 16:30 Ronaldo Koman þjálfar nú Barcelona liðið en hann lék á sínum tíma 264 leiki fyrir félagið á sex ára tímabili. Getty/Alex Caparros
Ronald Koeman stýrir Barcelona liðinu í fyrsta sinn í El Clásico á morgun þegar Real Madrid kemur í heimsókn á Nývang. Ronald Koeman hefur hrist upp í hlutunum í herbúðum Barcelona síðan hann tók við liðinu í sumar og Hollendingurinn hreinsaði til í leikmannahópnum í haust. Á morgun fær hann fyrsta risaprófið þegar hann stýrir Barca liðinu á móti Real Madrid. Ronald Koeman lék á sínum tíma í sex ár með Barcelona, frá 1989 til 1995, og skoraði 88 mörk fyrir félagið þrátt fyrir að spila sem varnarmaður eða varnartengiliður. Koeman vonast til að byrja jafnvel á morgun sem stjóri og hann gerði sem leikmaður fyrir 31 ári síðan. Ronald Koeman lék sinn fyrsta El Clásico leik með Barcelona 7. október 1989 en þjálfari Barcelona liðsins var þá Johan Cruyff. Barcelona þurfti virkilega á góðum úrslitum að halda í þessum leik eftir þrjú töp í fyrstu fimm deildarleikjum sínum. @RonaldKoeman s best #ElClásico goals N°4 ! pic.twitter.com/hj2e6AP5Ux— FC Barcelona (@FCBarcelona) October 22, 2020 Barcelona vann leikinn 3-1 og Ronald Koeman skoraði tvö mörk, bæði reyndar úr vítaspyrnum. Barcelona hafði ekki byrjað 1988-89 tímabilið alltof vel en Ronald Koeman kom þarna inn eftir að hafa skotist á stjörnuhimininn sem tvöfaldur Evrópumeistari sumarið 1988, með bæði hollenska landsliðinu á EM í Þýskalandi 1988 og með PSV í Evrópukeppni meistaraliða 1987-88. Leikurinn byrjaði líka skelfilega fyrir Ronald Koeman sem fékk á sig vítaspyrnu eftir fimm mínútur eftir brot á Emilio Butragueno. Hugo Sánchez kom Real í 1-0 úr vítinu. Julio Salinas jafnaði metin fyrir Barcelona fimm mínútum síðar og Ronald Koeman tryggði sínu liði sigur með tveimur mörkum úr vítaspyrnum á síðustu sextán mínútunum. Koeman skoraði þrjú mörk til viðbótar í El Clásico leikjum áður en hann fór aftur heim til Feyenoord sex árum síðar. El Clásico leikur Barcelona og Real Madrid hefst klukkan 14.00 á morgun og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport 2. Útsendingin hefst klukkan 13.45.
Spænski boltinn Mest lesið Harma auglýsingar á gólfi og vilja banna þær eftir meiðsli Martins Körfubolti Sjáðu dramatísku vítakastskeppnina í Eyjum Handbolti „Þið eruð lið fullt af feitabollum“ Enski boltinn Drakk átta bjóra fyrir beina útsendingu Fótbolti Vatnaskil hjá Red Bull og risafréttir fyrir Formúlu 1 Formúla 1 Aron í myndatöku í dag vegna meiðslanna Handbolti Segir aðeins þau hlutlausu hafa skemmt sér yfir fótbolta Ten Hag Enski boltinn Sló í myndavél og gæti fengið bann Körfubolti Fengið nóg af því að vera ruslakista fyrir viðbjóð frá fólki Körfubolti Rangnick hafnar Bayern München Fótbolti Fleiri fréttir Sjáðu mark Füllkrugs sem kom Dortmund í bílstjórasætið „Þið eruð lið fullt af feitabollum“ Besta upphitunin: „Finn ekki fyrir pressunni“ Tekur fyrir að starfsfólk Manchester United vinni að heiman Skúrkurinn endaði sem hetjan Drakk átta bjóra fyrir beina útsendingu Dortmund tók aukasætið sem ensku liðin dreymdi um Rangnick hafnar Bayern München Segir aðeins þau hlutlausu hafa skemmt sér yfir fótbolta Ten Hag FH fékk tvær sektir frá KSÍ Dortmund leiðir þökk sé þrumuskoti Füllkrug Logi kom inn af bekknum og skoraði í stórsigri Mark dæmt af Bjarka og dramatík hjá Alexöndru Sjáðu mörkin úr stórleiknum í München Júlíus og félagar unnu frækinn bikarsigur á Rosenborg Kenndi gráðugum Kim um bæði mörkin gegn Real Madrid Lewandowski gæti verið seldur á brunaútsölu Barcelona Bellingham reyndi að taka Kane á taugum fyrir vítið Heillaóskum rigndi yfir fimmtán ára hetju Fram í skólanum „Vestri hefur verið að taka leikhlé“ Courtois ekki með Belgíu á EM Einvígið galopið eftir jafntefli í Þýskalandi „Þú veist alveg svarið við þessu“ Sextán ára og skoraði hjá Arsenal eins og Rooney forðum Víkingar bjóða Grindvíkingum í Víkina á morgun „Real Madrid lofaði mér að ég yrði arftaki Modric“ Félögin sömdu um að banna Sigurbergi að spila Tuchel fullyrti að Gnabry muni skora á móti Real Madrid í kvöld Þrír Íslendingar í liði umferðarinnar Gáttaðar á því að fyrirliði Víkings var settur á bekkinn Sjá meira