Á sjúkrahúsinu Vogi er komið upp COVID-19 smit. Þetta staðfestir Valgerður Rúnarsdóttir yfirlæknir í samtali við DV.
Valgerður sagði að nú væri verið að skipuleggja viðbrögð við smitinu, það hefði komið upp á afmörkuðu svæði, en þrátt fyrir það þyrftu einhverjir að fara í sóttkví. Hún benti á að allir væru skimaðir fyrir innlögn, en að sá smitaði hefði fundið fyrir einkennum eftir skimun.
Vogur er ekki eina heilbrigðisstofnuninn þar sem að hafa komið upp COVID-19 smit, en í vikunni komu til að mynda upp smit á Landakoti, öldrunarlækningadeild Landspítalans og á endurhæfingarmiðstöðinni Reykjalundi.