Tólf sóttu um forstjórastól Náttúrufræðistofnunar

Náttúrufræðistofnun Íslands í Urriðaholti.
Náttúrufræðistofnun Íslands í Urriðaholti.

Tólf umsækjendur sóttu um embætti forstjóra Náttúrufræðistofnunar Íslands, en umhverfis- og auðlindaráðuneytið auglýsti embættið laust til umsóknar þann 29. ágúst síðastliðinn. Meðal umsækjenda eru staðgengill forstjóra stofnunarinnar og fyrrverandi þingmaðurinn Höskuldur Þórhallsson.

Valnefnd sem skipuð hefur verið af ráðherra mun meta hæfni og hæfi umsækjenda og skila greinargerð þar að lútandi.

Umsækjendur eru:

  • Bjarni Gautason, yfirverkefnisstjóri
  • Edda Sigurdís Oddsdóttir, sviðsstjóri
  • Ester Rut Unnsteinsdóttir, dýravistfræðingur
  • Guðmundur Guðmundsson,  staðgengill forstjóra 
  • Höskuldur Þór Þórhallsson, héraðsdómslögmaður
  • Kristján Geirsson, verkefnastjóri
  • Rannveig Guicharnaudverkefnastjóri
  • Snorri Sigurðsson, líffræðingur
  • Starri Heiðmarsson, sviðsstjóri
  • Tom Barry, framkvæmdastjóri
  • Valdimar Björnsson, fjármálastjóri
  • Þorkell Lindberg Þórarinsson, forstöðumaður
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert