400 millilítrar: Breytingar á stærð bjórglasa ekki samsæri Snorri Másson skrifar 21. júní 2022 09:26 Efnahagsmálin voru til umræðu í Íslandi í dag, þar sem Jón Mýrdal veitingamaður sat fyrir svörum. Allt hefur hækkað – þar á meðal bjór, en bjórinn fæst nánast hvergi ódýrari en á um 1.300 krónur þessa dagana.
Eins og það sé ekki nógu alvarlegt útaf fyrir sig fyrir þá sem eru hrifnir af bjór, þá eru flestir bjórar 400 millilítrar á börum Reykjavíkur; af er sem áður var, að borinn var fram hálfur lítri. Margir syrgja þessa breytingu en Jón segir hana eiga sér eðlilegar skýringar. „Ég veit ekki hvort þetta sé meðvituð ákvörðun. Eins og á Kastrup hjá mér erum við bara með hugguleg glös, við völdum bara glösin og þau eru falleg, það var ekkert verið að reyna að spara þarna, enda taka þau með froðunni hálfan lítra,“ sagði Jón. Jón Mýrdal rekur meðal annars Kastrup og Röntgen.Vísir „Ég er ekki viss um að veitingamenn séu eitthvað að reyna að spara þetta, heldur á bjór bara að vera í huggulegu glasi. Í gamla daga var þetta í stórum belgjum.“ Jón segir ekki um samsæri að ræða. „Það getur vel verið að einhverjir séu að hugsa um það, en ég er ekki að spá í það. Ég vil bara hafa þetta huggulegt,“ sagði Jón. „Ég sé ekki hvernig það getur gengið“ Verðbólgan stendur í 7,6%, sem er mesta verðbólga í tólf ár. Allt hefur hækkað, sumt um mun meira en 7,6%, en engu að síður kemur það illa við fólk þegar veitingastaðir fara að hækka sitt verð. Jón segir það óhjákvæmilegt. „Birgjar hækka á okkur vikulega. Þannig að þetta er búið að taka einhver stökk. Eins og hveiti og olía og allt, þetta er allt að hækka,“ segir Jón. „Einhverjir veitingastaðir auglýsa fisk á 2000 krónur í hádeginu. Ég sé ekki hvernig það getur yfirleitt gengið. Ef þú ferð í fiskbúð í dag er fiskurinn á upp undir þrjúþúsund krónur, þannig að maður sér það alveg sjálfur. Þá þarf að bæta við launum, leigu og aðföngum,“ segir Jón. Hann segir veitingamenn ekki í óðaönn að reyna að verða ríkir á viðskiptavinum sínum; þeir séu bara að reyna að reka arðbær fyrirtæki. Hann lofar þessu: „Við erum ekki allir að fara að kaupa okkur nýja Land Cruisera.“
Neytendur Áfengi og tóbak Veitingastaðir Ísland í dag Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Innlent Katrín efst en Jón hrynur í nýrri könnun Innlent Kolbeinn hafi strokið kynfæri stúlkunnar ítrekað Innlent Svona var Pallborðið með Höllu Hrund, Katrínu og Baldri Innlent „Skrímsladeildin“ hafi skorið upp herör gegn mótframbjóðendum Katrínar Innlent Halla Hrund eigi langt í land með að tryggja sér embættið Innlent Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin Innlent Hvernig ætlar ríkið að sækja milljónirnar 360 sem Haraldur gaf? Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Innlent Fleiri fréttir „Eldgosið virðist í andarslitrunum“ Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Öruggara Suðurland“ – nýtt og spennandi verkefni Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Landsmenn ánægðir með frammistöðu Höllu Tómasdóttur í kappræðunum Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin „Skrímsladeildin“ hafi skorið upp herör gegn mótframbjóðendum Katrínar Hefur ekki áhuga á slúðurfréttum af öðrum frambjóðendum Tólf tíma tökudagar og svo forsetaframboð Hvernig ætlar ríkið að sækja milljónirnar 360 sem Haraldur gaf? Flottustu Mustang bílarnir landsins til sýnis í dag Halla Hrund eigi langt í land með að tryggja sér embættið Rýnt í forsetakappræður og fylgst með Bakgarðshlaupi „Ég get ekki annað en sagt satt“ Ríflega fjörutíu prósent líst illa á Katrínu „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Sigu niður í Gretti sterka og dældu úr honum sjó Ók á tvö hundruð með lögguna á hælunum Sólríkasta byrjun árs í Reykjavík í 77 ár Hafa rukkað þá sem valda sinubruna um kostnað við útkall Ótrúlegustu aðskotahlutir gera óskunda í dósatalningarvélum Fjöldi verkfallsboðana á Keflavíkurflugvelli áhyggjuefni Kosið um sameiningu Húna- og Skagabyggðar í júní Nýjustu skoðanakannanir, verkfallsaðgerðir á flugvellinum og týndur gaffall Halla Hrund líka vinsæll annar kostur Kolbeinn hafi strokið kynfæri stúlkunnar ítrekað Segja lýðræðis- og mannréttindabakslag staðreynd Ný sendiskrifstofa opnuð í Síerra Leóne Baldur segir niðurstöður nýjustu kannana vonbrigði Halla Hrund mælist með mest fylgi í nýrri könnun Maskínu Sjá meira