Sænskur markvörður í Vesturbæinn

KR-ingar hafa fengið til sín markvörð frá Svíþjóð.
KR-ingar hafa fengið til sín markvörð frá Svíþjóð. mbl.is/Kristinn Magnússon

Knattspyrnudeild KR hefur komist að samkomulagi við sænska markvörðinn Corneliu Sundelius um að leika með kvennaliði félagsins á tímabilinu.

Sundelius kemur frá sænska B-deildarliðinu Norrköping.

Hún er 23 ára gömul og fær leikheimild með Vesturbæjarliðinu á morgun.

Sundelius gæti því spilað sinn fyrsta leik strax á morgun þegar KR fær Breiðablik í heimsókn í fjórðu umferð Bestu deildar kvenna.

KR situr á botni deildarinnar án stiga eftir að hafa fengið á sig 11 mörk og skorað aðeins eitt í fyrstu þremur umferðunum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert