Munu svara fyrir sig verði leikarnir sniðgengnir Samúel Karl Ólason skrifar 6. desember 2021 14:34 Zhao Lijian, talsmaður utanríkisráðuneytis Kína. AP/Andy Wong Ráðamenn í Kína segjast ætla að svara fyrir sig ef ríkisstjórn Bandaríkjanna ákveður að sniðganga vetrarólympíuleikana í Peking í febrúar. Fjölmiðlar vestanhafs segja líklegt að sniðganga verði tilkynnt í Washington DC í þessari viku.
Sniðganga fæli í sér að engir stjórnmálamenn frá Bandaríkjunum myndu sækja Ólympíuleikana en ákvörðunin hefði engin áhrif á bandaríska íþróttamenn. Joe Biden, forseti, er sagður hafa íhugað sniðgöngu af þessu tagi og þá vegna mannréttindabrota yfirvalda í Kína og að Kommúnistaflokkur landsins noti viðburði eins og vetrarólympíuleikana til að hvítþvo sig af brotum gegn íbúum landsins, minnihlutahópum og pólitískum andstæðingum. Bandarískir þingmenn hafa kallað eftir aðgerðum sem þessum gegn Kína, samkvæmt frétt NBC News. Aðgerðirnar eru að hluta til komnar vegna aðgerða yfirvalda í Kína gegn Úígúrum í Xinjiang-héraði en Kínverjar hafa verið sakaðir um þjóðarmorð vegna þeirra aðgerða. Sjá einnig: Segja Kínverja hafa skapað „dystópískt helvíti“ í Xinjiang Þar að auki hafa áköll eftir sniðgöngu aukist vegna hvarfs tenniskonunnar Peng Shuai. Hún hvarf eftir að hafa sakað fyrrverandi varaforseta Kína um að hafa nauðgað sér. Alþjóðatennissamband kvenna hefur ákveðið að aflýsa öllum mótum í Kína vegna hvarfsins. AP fréttaveitan segir ríkisstjórn Ástralíu einnig hafa íhugað sniðgöngu en samband þeirra við Kínverja hefur beðið verulega hnekki að undanförnu. Zhao Lijian, talsmaður utanríkisráðuneytis Kína, sagði að bandarískir stjórnmálamenn ættu að hætta að kalla eftir sniðgöngu. Slík áköll sköðuðu tengsl Kína og Bandaríkjanna og viðræður milli ríkjanna. Hann sagði einnig að Bandaríkjamönnum hefði ekki verið boðið á Ólympíuleikanna en ef þeir héldu áfram yfirlýsingum sínum myndi Kína svara fyrir sig.
Kína Bandaríkin Vetrarólympíuleikar 2022 í Peking Tengdar fréttir Telja Kína græða á deilum Bandaríkjanna og Marshall-eyja Marshall-eyjar hafa um árabil verið ötulir bandamenn Bandaríkjanna. Nú hafa hins vegar komið upp miklar deilur milli ríkjanna og bandarískir þingmenn óttast að Kínverjar stígi inn í tómarúmið og nái fótfestu á eyjunum sem eru staðsettar í miðju Kyrrahafinu. 26. nóvember 2021 14:10 Ástralskir lögreglumenn skerast í leikinn á Salómonseyjum Útgöngubanni hefur verið komið á yfir nótt á Salómonseyjum í Kyrrahafi þar sem óeirðir hafa geisað undanfarna þrjá daga. Ástralskir lögreglumenn sem voru sendir til að aðstoða stjórnvöld á eyjunum hafa tekið sér stöðu á lykilstöðum í höfuðborginni Honiara. 26. nóvember 2021 08:40 Losun í Kína dróst saman í fyrsta skipti eftir efnahagsbatann Koltvísýringslosun í Kína dróst lítillega saman á þriðja ársfjórðungi en það er í fyrsta skipti sem það gerist eftir að efnahagslífið tók við sér eftir kórónuveiruheimsfaraldurinn. Samdrátturinn er rakinn að hluta til minni byggingaframkvæmda og kolaskorts. 25. nóvember 2021 14:21 Ætla ekki að verða við kröfu Kína og fjarlægja strandað skip í Suður-Kínahafi Ríkisstjórn Filippseyja ætla ekki að fjarlægja gamalt herskip sem er strand á rifi í Suður-Kínahafi, eins og Kínverjar krefjast. Her Filippseyja hefur notað skipið sem varðstöð á yfirráðasvæði landsins í Suður-Kínahafi sem Kínverjar hafa gert ólöglegt tilkall til. 25. nóvember 2021 10:48 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Innlent Skólastjóradrama í Kóraskóla fær óvæntan endi Innlent Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Innlent Viðtal á Stöð 2 kveikir upp í færeyskum stjórnmálum Erlent Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Innlent Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Innlent Skipið leggur úr höfn Innlent Einhver í herberginu segi ekki satt Innlent Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Innlent Fara fram á farbann Innlent Fleiri fréttir Segir Rússa ekki hafa í hyggju að taka Kharkív Viðtal á Stöð 2 kveikir upp í færeyskum stjórnmálum Reyndi að kveikja í bænahúsi gyðinga og var skotinn til bana Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju „Einfari“ ákærður fyrir tilræðið við Fico Hver er Robert Fico? Neyðarástandi lýst yfir á Nýju-Kaledóníu eftir miklar óeirðir Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Þverpólitískar tillögur um viðbrögð vegna gervigreindar FIFA byrjað að vinda ofan af umbótum eftir spillingarhneykslið Fulltrúar Talíbana á ráðstefnu í Ósló Fyrsta opinbera málverkið af konunginum Karli III afhjúpað í gær Gróðureldar ógna olíuvinnslumiðstöð í Kanada Gríðarleg leit gerð að mönnum sem frelsuðu fanga í Frakklandi Skriðdrekar Ísraelshers komnir inn í íbúðahverfi í Rafah Framámaður AfD sektaður fyrir að nota slagorð nasista Vill bjóða NATO að byggja nýjan flugvöll í Færeyjum Þorir að veðja bjór á að hún verði áfram forsætisráðherra Lokað á grein um barnadráp í Bretlandi Drápu fangaverði og hjálpuðu fanga að strjúka „Rússnesku lögin“ samþykkt í Georgíu Bendlaði Trump beint við þagnargreiðslurnar Losnar af réttargeðdeild eftir allt saman Sjá meira
Telja Kína græða á deilum Bandaríkjanna og Marshall-eyja Marshall-eyjar hafa um árabil verið ötulir bandamenn Bandaríkjanna. Nú hafa hins vegar komið upp miklar deilur milli ríkjanna og bandarískir þingmenn óttast að Kínverjar stígi inn í tómarúmið og nái fótfestu á eyjunum sem eru staðsettar í miðju Kyrrahafinu. 26. nóvember 2021 14:10
Ástralskir lögreglumenn skerast í leikinn á Salómonseyjum Útgöngubanni hefur verið komið á yfir nótt á Salómonseyjum í Kyrrahafi þar sem óeirðir hafa geisað undanfarna þrjá daga. Ástralskir lögreglumenn sem voru sendir til að aðstoða stjórnvöld á eyjunum hafa tekið sér stöðu á lykilstöðum í höfuðborginni Honiara. 26. nóvember 2021 08:40
Losun í Kína dróst saman í fyrsta skipti eftir efnahagsbatann Koltvísýringslosun í Kína dróst lítillega saman á þriðja ársfjórðungi en það er í fyrsta skipti sem það gerist eftir að efnahagslífið tók við sér eftir kórónuveiruheimsfaraldurinn. Samdrátturinn er rakinn að hluta til minni byggingaframkvæmda og kolaskorts. 25. nóvember 2021 14:21
Ætla ekki að verða við kröfu Kína og fjarlægja strandað skip í Suður-Kínahafi Ríkisstjórn Filippseyja ætla ekki að fjarlægja gamalt herskip sem er strand á rifi í Suður-Kínahafi, eins og Kínverjar krefjast. Her Filippseyja hefur notað skipið sem varðstöð á yfirráðasvæði landsins í Suður-Kínahafi sem Kínverjar hafa gert ólöglegt tilkall til. 25. nóvember 2021 10:48