Íslenski boltinn

Valskonur bæta við sig kandadískum framherja í fótboltanum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Clarissa Larisey var að gera góða hluti í bandaríska háskólafótboltanum.
Clarissa Larisey var að gera góða hluti í bandaríska háskólafótboltanum. Valur

Hin kanadíska Clarissa Larisey er nýr leikmaður Vals í Pepsi Max deild kvenna í fótbolta.

Valsmenn segja frá því á miðlum sínum að Clarissa Larisey spili með Valsliðinu í sumar en hún er komin til landsins.

Larisey lék með University of Memphis í bandaríska háskólaboltanum og var með þrjú mörk og eina stoðsendingu í ellefu leikjum í vetur en á sínu besta tímabili þá var hún með 16 mörk og 4 stoðsendingar í 21 leik.

Larisey skoraði alls 34 mörk í bandaríska háskólaboltanum með liði University of Memphis.

„Hún er fjölhæfur leikmaður sem getur leyst margar stöður fram á við,“ segir í fréttinni um Clarissa Larisey á miðlum Valsmanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×