Hugi til Hauka

Hugi Hallgrímsson samdi við Hauka.
Hugi Hallgrímsson samdi við Hauka. Ljósmynd/Haukar

Körfuknattleiksdeild Hauka og framherjinn Hugi Hallgrímsson hafa komist að samkomulagi um að hann leiki með Hafnarfjarðarliðinu næstu tvö árin.

Hugi, sem er nýorðinn 21 árs, lék síðast með háskólaliði Angelina-háskólans í Texas-ríki í Bandaríkjunum en hefur tekið ákvörðun um að snúa aftur heim.

Hann er uppalinn hjá Vestra á Vestfjörðum og lék með liðinu í úrvalsdeild tímabilið 2021/2022. Tímabilið á undan var hann á mála hjá Stjörnunni.

Hugi, sem er 201 sentímetri á hæð, hefur leikið með öllum yngri landsliðum Íslands.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert