Emilía hafði betur gegn Emelíu

Emilía Kiær Ásgeirsdóttir.
Emilía Kiær Ásgeirsdóttir. Ljósmynd/FCN

Knattspyrnukonan Emilía Ásgeirsdóttir skoraði sigurmark Nordsjælland gegn Emelíu Óskarsdóttir og stöllum í Köge í Íslendingaslag í dönsku úr­vals­deild­inni í fót­bolta í dag.

Markalaust var í hálfleik en Emilía kom inn á á 60. mínútu og skoraði svo sigurmarkið á 90. mínútu.

Emelía var í byrjunarliði Köge en var tekin af velli á sömu mínútu og Emilía kom inn á af bekknum hjá Nordsjælland.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert