Sprunga númer tvö bjargaði tjaldinu frá bráðum dauða Snorri Másson skrifar 8. apríl 2021 14:27 Björgunarsveitarmenn í Þorbirni tóku niður tjaldið á mettíma eftir að fyrsta nýja sprungan myndaðist í Fagradalsfjalli á mánudaginn. Tjaldið er nú í geymslu í Grindavík. Björgunarsveitin Þorbjörn Fyrsta nýja sprungan sem myndaðist á annan í páskum í Fagradalsfjalli til viðbótar við upphaflega gíginn má segja að hafi verið lán í óláni fyrir björgunarsveitir á svæðinu, sem ákváðu vegna hennar að færa tjaldið sem komið hafði verið upp á svæðinu.
Nýja sprungan kallaði ekki ótvírætt á þá aðgerð enda um 200 metra frá tjaldinu en björgunarsveitum virtist sprungan þó geta stækkað í áttina að tjaldinu. Því var það fjarlægt og það var eins gott, því að á miðnætti sama dag myndaðist enn önnur sprunga öllum að óvörum, sem lenti beint undir fyrri staðsetningu tjaldsins. „Það má eiginlega segja að sprunga númer tvö hafi bjargað tjaldinu frá bráðum dauða,“ segir Guðrún Katrín Jóhannsdóttir, björgunarsveitarkona frá Reykjavík sem stýrði aðgerðum uppi í fjalli þegar sprungan myndaðist. Gossprungur eru merktar með rauðu. Sprungan sem hefði ógnað tjaldinu myndaðist á hæðinni þar sem rauður punktur er rétt við spurningarmerki, á milli elstu sprungunnar og þeirrar sem bættist fyrst við. Tjaldið var í línu við kvikuganginn Miklu tjóni var forðað með því að taka niður tjaldið á þessum tímapunkti og þar dugðu engin vettlingatök, heldur segir Guðrún að líklega hafi Norðurlandamet utanhúss verið slegið við að pakka saman tjaldinu. Tjaldið er í eigu björgunarsveitarinnar Þorbjarnar og er dýr búnaður, sem Guðrún segir ekki einfalt að endurnýja hratt. Umrædd þriðja sprunga skapaði ekki hættu á mannskaða enda hafði svæðinu verið lokað fyrr um daginn vegna sprungu númer tvö. Frá því að tjaldið var reist höfðu þó jafnan verið staddir í því björgunarsveitarmenn sem höfðu þar aðstöðu til að athafna sig í ýmsum verkefnum. Vísindamenn höfðu nefnt það sem sviðsmynd frá upphafi gossins í Geldingadölum að nýjar sprungur gætu myndast í sama kvikugangi í línu við upphaflega gosið. Tjaldið var yfir kvikuganginum en er núna brotið saman í geymslu í Grindavík.
Eldgos og jarðhræringar Eldgos í Fagradalsfjalli Björgunarsveitir Almannavarnir Tengdar fréttir Hraunbreiðurnar úr gosunum þremur ná nú saman „Það er ennþá gos,“ segir Bryndís Ýr Gísladóttir, náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, nú í morgunsárið en fátt annað sé að frétta af gosstöðvunum. 8. apríl 2021 06:20 Þingmenn fóru inn á lokað svæði sem vísindamenn Ari Trausti Guðmundsson, þingmaður Vinstri grænna, og Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis, fóru að gosstöðvunum í Fagradalsfjalli í gær þegar svæðið var lokað almenningi. Vísindamenn og fjölmiðlamenn fengu aðgang að svæðinu eftir að því var lokað vegna hættu á nýjum sprungum. 7. apríl 2021 14:41 Ekki ólíklegt að gjósi á fleiri stöðum Hópstjóri náttúruvár á Veðurstofunni segir ekki ólíklegt að fleiri gossprungur eigi eftir að myndasta á Reykjanesi en þriðja spurngan hóf að gjósa þar um miðnætti. Ekki viðri vel fyrir almenning að fara að gosstöðvunum í dag. 7. apríl 2021 12:04 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Stöðugt landris og hugað að rýmingu Innlent Færeyingar áforma 4.500 króna aðgangseyri á alla ferðamenn Erlent Skjálftavirkni aukist í kjölfar gosloka Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Dýrin séu dauð, veik, horuð og í miklum vanhöldum Innlent Fylgi Höllu hrundi eftir kappræðurnar á RÚV Innlent Börnum safnað saman og þau skotin Erlent Ræktar 95 tegundir af túlípönum í Mosfellsdal Innlent Ellefu slasaðir eftir að flugtak Boeing 737 mistókst Erlent Meintur fjárdráttur mikið áfall fyrir starfsfólk skólans Innlent Fleiri fréttir Skjálftavirkni aukist í kjölfar gosloka Stöðugt landris og hugað að rýmingu Ræktar 95 tegundir af túlípönum í Mosfellsdal Dýrin séu dauð, veik, horuð og í miklum vanhöldum Ríkisstjórn þurfi að gera meira í þágu vopnahlés Dauð lömb á túni, árás á Rafah og Eurovision Maður sem áreitir börn í Hafnarfirði til rannsóknar Sýknaður af nauðgun en enginn vafi að konan telji á sér brotið Fylgi Höllu hrundi eftir kappræðurnar á RÚV Sinubruni við Hellisskóg á Selfossi 150 þolendum sinnt vegna ofbeldis í nánu sambandi Meintur fjárdráttur mikið áfall fyrir starfsfólk skólans Stóra Svört bar fimm svörtum lömbum Eldgosinu lokið, meintur fjárdráttur og manndrápsrannsókn Eldvörp líkleg næst Rannsókn vegna meints manndráps í Kiðjabergi miðar vel Samanburður við lóðamál olíufélaganna eins „fjarri sannleikanum og hægt er“ Guðríður Hrund skipuð skólameistari MK Eldgosinu lokið eftir 54 daga Leggja aftur fram tillögu um að selja húsnæði MÍR Facebook bannar Ástþóri að auglýsa Býður þjóðarhöll Færeyja undir landsleiki Íslands Reykjavík lækkar gjaldskrár vegna þjónustu við barnafjölskyldur Fylgjast grannt með gangi mála Margt bendi til þess að gosinu sé lokið María Sigrún birtir tölvupósta Dags „Á endanum snýst þetta allt um peninga“ Sækja veikan sjómann Eldur í iðnaðarhúsnæði á Höfða Efstar með ómarktækan mun á milli sín Sjá meira
Hraunbreiðurnar úr gosunum þremur ná nú saman „Það er ennþá gos,“ segir Bryndís Ýr Gísladóttir, náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, nú í morgunsárið en fátt annað sé að frétta af gosstöðvunum. 8. apríl 2021 06:20
Þingmenn fóru inn á lokað svæði sem vísindamenn Ari Trausti Guðmundsson, þingmaður Vinstri grænna, og Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis, fóru að gosstöðvunum í Fagradalsfjalli í gær þegar svæðið var lokað almenningi. Vísindamenn og fjölmiðlamenn fengu aðgang að svæðinu eftir að því var lokað vegna hættu á nýjum sprungum. 7. apríl 2021 14:41
Ekki ólíklegt að gjósi á fleiri stöðum Hópstjóri náttúruvár á Veðurstofunni segir ekki ólíklegt að fleiri gossprungur eigi eftir að myndasta á Reykjanesi en þriðja spurngan hóf að gjósa þar um miðnætti. Ekki viðri vel fyrir almenning að fara að gosstöðvunum í dag. 7. apríl 2021 12:04