Sameinuðu þjóðirnar kalla eftir vopnasölubanni á Mjanmar Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 19. júní 2021 07:43 Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna ályktaði gegn herforingjastjórninni í Mjanmar í gær. Vísir/AFP Sameinuðu þjóðirnar hafa kallað eftir því að allri vopnasölu til Mjanmar verði hætt vegna blóðugs valdaráns sem herinn framdi fyrr á þessu ári. Kallið er talið nokkuð óeðlilegt og fá dæmi eru til um að Sameinuðu þjóðirnar grípi til þessa ráðs.
Þá samþykkti allsherjarþing SÞ ályktun þar sem mjanmarski herinn er fordæmdur vegna valdaránsins, þegar lýðræðislega kjörinni ríkisstjórn landsins var bolað frá völdum í febrúar. Þá var kallað eftir því að herinn sleppti pólitískum föngum lausum, þar á meðal Aung San Suu Kyi, lýðræðislega kjörnum leiðtoga landsins. Þá eigi að vera bundinn endir á ofbeldi gegn friðsælum mótmælendum. Ályktunin er ekki bindandi í laganna skilningi en er talin þrunginn pólitískri merkingu. „Hættan á útbreiddu borgarastríði er raunveruleg,“ sagði Christine Schraner Burgener, sérstakur sendiherra SÞ í Mjanmar, á fundi allsherjarþingsins. „Það er nauðsynlegt að grípa til aðgerða eins fljótt og hægt er. Með hverjum klukkutíma sem líður verður erfiðara að koma lýðræðinu aftur á.“ Lýðræðissinnar mótmæla herforingjastjórninni í Mjanmar í maí.EPA-EFE/STRINGER 119 ríki studdu ályktunina en Hvíta-Rússland var eina ríkið sem greiddi atkvæði gegn ályktuninni. 36 önnur ríki sátu hjá í atkvæðagreiðslunni, þar á meðal Rússland og Kína, sem eru þau tvö ríki sem eiga í mestum vopnaviðskiptum við Mjanmar. Mörg þeirra ríkja sem sátu hjá sögðu málið innanríkismál Mjanmar, en önnur gagnrýndu að í ályktuninni væri hvergi minnst á blóðuga aðför hersins gegn Róhingja-múslimum fyrir fjórum árum síðan þegar tæp milljón manns þurfti að flýja landið. Kyaw Moe Tun, sendiherra Mjanmar til Sameinuðu þjóðanna og fulltrúi lýðræðislega kjörinnar ríkisstjórnar landsins, gagnrýndi hve langan tíma það tók allsherjarþingið að samþykkja „útþynnta“ ályktunina, eins og hann kallaði hana.
Mjanmar Sameinuðu þjóðirnar Tengdar fréttir Suu Kyi dregin fyrir dóm Réttarhöld yfir Aung San Suu Kyi, sem herinn í Búrma steypti af stóli í febrúar, hófust í dag. Mannréttindasamtök telja ákærurnar uppspuna og að herforingjastjórnin vilji ryðja henni úr vegi. 14. júní 2021 11:58 Saka Suu Kyi um spillingu í embætti Herforingjastjórnin í Búrma sakar Aung San Suu Kyi sem hún steypti af stóli forseta um stórfellda spillingu í embætti. Suu Kyi gæti átt yfir höfði sér allt að fimmtán ára fangelsi verði hún fundin sek. 10. júní 2021 11:37 Herstjórnin sögð ætla að leysa upp stærsta flokk Mjanmar Herstjórn Mjanmar hefur skipað sérstaka nefnd til að leysa upp stjórnmálaflokk Aung San Suu Kyi, sem bar sigur úr býtum í þingkosningum í fyrra. Herstjórnin tók völd þann 1. febrúar í kjölfar kosninganna og hefur haldið því fram að umfangsmikið svindl hafi átt sér stað. Herstjórnin hefur þó ekki getað fært sönnur fyrir þeim ásökunum. 21. maí 2021 11:15 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Mun ekki halla mér aftur og leyfa deyjandi sjónvarpsstöð að ráðast á mig“ Erlent Katrín efst en Jón hrynur í nýrri könnun Innlent Vilja svör um möguleg „óþægileg hagsmunatengsl“ borgar og RÚV Innlent „Fann það þegar ég vaknaði í morgun að þetta var lúmskt áfall“ Innlent Kolbeinn Sigþórsson ákærður fyrir brot gegn barnungri stúlku Innlent Horfði á þegar vinur hans réðst á manninn sem braut á dóttur hans Innlent „Helvíti fínt“ að komast aftur á Papa's Pizza Innlent Halla vill skikka ungmenni í samfélagsþjónustu Innlent Ætlar ekki að þröngva sér upp á fólk Innlent „Það er norskur sigur í dag“ Innlent Fleiri fréttir „Mun ekki halla mér aftur og leyfa deyjandi sjónvarpsstöð að ráðast á mig“ Segir fólk eiga rétt til mótmæla en ekki til óreiðu Umfangsmikil mótmæli vegna „rússneskra“ laga í Georgíu Enn í basli með skemmdir á hitaskildi Orion Vornanen kastað úr þingflokknum Hafa engin varnarvirki til að hörfa í Yfirstandandi kosningar á Englandi prófsteinn fyrir Íhaldsflokkinn Viðbrögð Hamas við vopnahléstillögunum „neikvæð“ Hundruð lögreglumanna í viðbragðsstöðu vegna mótmæla í UCLA Vilja endurupptöku í máli Weinstein Þrjú hundruð handtekin í Columbia-háskóla Stuðningur við dönsku ríkisstjórnina aldrei verið minni Mótmælendur og gagnmótmælendur tókust á Trump sektaður um meira en milljón króna Rússar sagðir nota skotflaugar frá Norður-Kóreu Þrettán ára drengur stunginn til bana með sverði Særði minnst fimm með sverði í Lundúnum Íslendingur sem lúbarði lögreglumenn í Varsjá þarf að borga brúsann Fjórir lögreglumenn skotnir til bana í Charlotte Rostungur sem fannst í fyrra drapst af völdum fuglaflensu Hvetur Hamas til að ganga að rausnarlegum tillögum Ísrael Flugvöllur Færeyinga fær að taka við stærri þotum Yousaf segir af sér sem ráðherra og formaður Skoska þjóðarflokksins Sánchez hættir við að segja af sér Grafið undan fjölmiðlafrelsinu víða í Evrópu Vopnahlé í sjónmáli? Tveir látnir eftir að bíll hafnaði í sjónum við Stokkhólm Fjölmenn mótmæli vegna ofbeldisbylgju í Ástralíu Vasaúr ríkasta manns Titanic seldist á 210 milljónir Þúsundir hvöttu Sánchez til að segja ekki af sér Sjá meira
Suu Kyi dregin fyrir dóm Réttarhöld yfir Aung San Suu Kyi, sem herinn í Búrma steypti af stóli í febrúar, hófust í dag. Mannréttindasamtök telja ákærurnar uppspuna og að herforingjastjórnin vilji ryðja henni úr vegi. 14. júní 2021 11:58
Saka Suu Kyi um spillingu í embætti Herforingjastjórnin í Búrma sakar Aung San Suu Kyi sem hún steypti af stóli forseta um stórfellda spillingu í embætti. Suu Kyi gæti átt yfir höfði sér allt að fimmtán ára fangelsi verði hún fundin sek. 10. júní 2021 11:37
Herstjórnin sögð ætla að leysa upp stærsta flokk Mjanmar Herstjórn Mjanmar hefur skipað sérstaka nefnd til að leysa upp stjórnmálaflokk Aung San Suu Kyi, sem bar sigur úr býtum í þingkosningum í fyrra. Herstjórnin tók völd þann 1. febrúar í kjölfar kosninganna og hefur haldið því fram að umfangsmikið svindl hafi átt sér stað. Herstjórnin hefur þó ekki getað fært sönnur fyrir þeim ásökunum. 21. maí 2021 11:15