Engar áramótabrennur á Austurlandi

Eskifjörður í allir sinni dýrð. Aðgerðarstjórn Austurlands beinir því til …
Eskifjörður í allir sinni dýrð. Aðgerðarstjórn Austurlands beinir því til sveitarfélaga að halda ekki áramótabrennur og sjá ekki fram á opnun skíðasvæða. Ljósmynd/mbl.is

Aðgerðastjórn á Austurlandi hefur beint því til sveitarfélaga á Austurlandi að ekki verði haldnar áramótabrennur í fjórðungnum þessi áramótin. Þetta kemur fram í tilkynningu aðgerðastjórnar Austurlands. 

Þá segir í tilkynninguni að fyrirspurnir hafi borist um mögulega opnun skíðasvæða. Aðgerðastjórn bendir á að reglur um íþróttaiðkun eigi við um skíðaiðkun einnig á skíðasvæðum. Því sér aðgerðastjórnin ekki fram á að skíðasvæði verði opnuð að óbreyttu.

„Aðgerðastjórn bendir og á að í gegnum Covid-mistrið megi nú glitta í fast land. Óvíst er þó hversu löng sigling er eftir. Þrautseigja og þolgæði okkar skipverja eru því ágæt einkunnarorð að styðjast við í þeirri stöðu. Því áréttar stjórnin hefðbundna möntru sína um að gæta að persónubundnum sóttvörnum, huga að fjarlægðarmörkum og grímunotkun, handþvotti og sprittun,“ segir í tilkynningunni.

Áfram er ekkert virkt Covid-19-smit á Austurlandi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert