Telja líklegustu gossvæðin við Trölladyngju og að hraun flæði um mitt Reykjanesið Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar 26. febrúar 2021 23:40 Samkvæmt útreikningum á hraunflæðilíkum er líklegast að hraun flæði um mitt Reykjanes verði af gosi. HÁSKÓLI ÍSLANDS Líklegustu eldgosasvæðin eru við Trölladyngju samkvæmt eldsuppkomuspá Eldfjallafræði og náttúruvárhóps Háskóla Íslands. Ef af gosi verður er líklegast að hraun flæði um mitt Reykjanes.
Ekkert lát er á skjálftahrinunni á Reykjanesskaga. Mesta virknin er nú norðaustan við Fagradalsfjall. Í dag hafa tæplega sextíu skjálftar mælst yfir 3,0 að stærð. Stærsti skjálftinn reið yfir klukkan 22.38 og mældist sá 4,9 að stærð um 3 kílómetra suðvestur af Keili. Skjálftinn fannst vel á suðvesturhorni landsins, í Vestmannaeyjum, austur í Rangárvallarsýslu og upp Borgarfjörð. Spáin breytt Rúmlega fimm þúsund skjálftar hafa mælst á svæðinu frá því að hrinan hófst. Eldfjallafræði og náttúruvárhópur Háskóla Íslands hefur skoðað eldgosavá á Reykjanesskaga frá árinu 2001. Hópurinn birti á Facebook í kvöld breytta eldsuppkomuspá sem byggð er á rannsóknum á Reykjanesi í gegnum árin að viðbættum þeim atburðum sem áttu sér stað í dag. Miðað við skjálfta frá hádegi í gær og fram til klukkan 17 í dag er spáin samkvæmt myndinni hér að neðan. Það er innan eldrauðu svæðanna sem líklegast er að eldgos verði samkvæmt spákortinu.HÁSKÓLI ÍSLANDS „Eins og áður eru það innan eldrauðu svæðanna sem líklegast er að eldgos verði. Miðað við fyrri póst okkar hefur orðið mikil breyting á spákortinu. Líklegustu svæðin eru komi að Trölladyngju.“ segir í færslu hópsins. Kristín Jónsdóttir náttúruvársérfæðingur á Veðurstofu Íslands sagði í kvöldfréttum Stöðvar2 að enn sjáist engin merki um eldvirkni á svæðinu. Eldfjallafræði og náttúruvárhópurinn lauk mælingum á hraunflæðilíkum í kvöld og samkvæmt þeim er líklegast að hraun flæði um mitt Reykjanes ef af gosi verður. „Þá er útreikningum á hraunflæðilíkum lokið. Eins og áður látum við gjósa á allra líklegustu svæðunum. Miða við kortið frá fyrr í dag eru miklar breytingar, eins og við mátti búast út frá spákortinu. Nú er það fyrst og fremst Mitt Reykjanesið þar sem líklegast er að hraun flæði um. Eins og áður, því rauðari sem liturinn er því líklegra er að hraun fari þar um á nesinu.“
Eldgos og jarðhræringar Jarðhræringar á Reykjanesi Tengdar fréttir Enn skelfur jörð á suðvesturhorni landsins Enn skelfur jörðin og fannst rétt í þessu snarpur skjálfti á höfuðborgarsvæðinu. Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni var hann 4,9 að stærð. 26. febrúar 2021 22:43 Snarpur skjálfti fannst vel í höfuðborginni Snarpur jarðskjálfti fannst á höfuðborgarsvæðinu rétt í þessu. 26. febrúar 2021 20:18 Rúmlega 5000 skjálftar mælst á svæðinu: „Á meðan að hrinan er í gangi eru auknar líkur á því að það verði stærri skjálfti og allt að 6,5“ Skjálfti að stærðinni 4,1 fannst vel á höfuðborgarsvæðinu klukkan 18:24. Upptökin eru norðaustur af Fagradalsfjalli. 26. febrúar 2021 19:36 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Íslendingur í gæsluvarðhaldi vegna Hamraborgarmálsins Innlent „Það er norskur sigur í dag“ Innlent Betra að fá óþægilegu málin fram fyrr en seinna Innlent Halla vill skikka ungmenni í samfélagsþjónustu Innlent Hundruð lögreglumanna í viðbragðsstöðu vegna mótmæla í UCLA Erlent Eldur í ruslageymslu í Hafnarfirði Innlent Búinn að skila inn undirskriftum eftir „óvenjulegan“ frest Innlent Friðrik skipaður sendiherra í Póllandi Innlent Icelandair flýgur til Færeyja að nýju Innlent Hafa engin varnarvirki til að hörfa í Erlent Fleiri fréttir Áfram landris og óvissa um framhaldið Tryggja þurfi tímabundin afnot náttúruauðlinda í stjórnarskrá Búinn að skila inn undirskriftum eftir „óvenjulegan“ frest „Það er norskur sigur í dag“ Grindvíkingar opna bakarí og veitingastað á ný Bakarí og veitingastaður opna í Grindavík á ný Friðrik skipaður sendiherra í Póllandi Halla vill skikka ungmenni í samfélagsþjónustu Íslendingur í gæsluvarðhaldi vegna Hamraborgarmálsins Betra að fá óþægilegu málin fram fyrr en seinna Eldur í ruslageymslu í Hafnarfirði Seinni umferð biskupskjörs hefst á hádegi í dag Icelandair flýgur til Færeyja að nýju Stutt í næsta gos komi til gosloka „Það er hart sótt að okkar fólki“ Nemendur Flóaskóla slá í gegn með Langspilin sín Háskólanemar halda lautarferð og stofna hreyfingu fyrir Palestínu Jarðhræringar á Reykjanesi, flug til Færeyja og verkalýðsdagurinn Úrskurðurinn felldur úr gildi Vill hinn almenna launamann á þing Sinueldur í Munaðarneslandi Íslensk stjórnvöld haldin „sjúkri undirgefni“ Barn á Akureyri greindist með kíghósta Íslensk fjara á lista yfir bestu strendur heims Beint: Hátíðarhöld á verkalýðsdaginn 2024 Sniglar hægja á umferð Yrði gagnkynhneigður maður spurður sömu spurningar? Verkalýðsbaráttan aldrei verið jafn mikilvæg Einkamálefni forsetaframbjóðanda, verkalýðsdagurinn og háskólamótmæli „Hinsegin fólk þekkir vel að vera smættað niður í einkalíf sitt“ Sjá meira
Enn skelfur jörð á suðvesturhorni landsins Enn skelfur jörðin og fannst rétt í þessu snarpur skjálfti á höfuðborgarsvæðinu. Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni var hann 4,9 að stærð. 26. febrúar 2021 22:43
Snarpur skjálfti fannst vel í höfuðborginni Snarpur jarðskjálfti fannst á höfuðborgarsvæðinu rétt í þessu. 26. febrúar 2021 20:18
Rúmlega 5000 skjálftar mælst á svæðinu: „Á meðan að hrinan er í gangi eru auknar líkur á því að það verði stærri skjálfti og allt að 6,5“ Skjálfti að stærðinni 4,1 fannst vel á höfuðborgarsvæðinu klukkan 18:24. Upptökin eru norðaustur af Fagradalsfjalli. 26. febrúar 2021 19:36