Dótturfélag Samherja borgaði 345 milljónir króna í Færeyjum vegna vangoldinna skatta

Færeyska ríkissjónvarpið greindi frá því í kvöld að búið væri að kæra skattskil Tindholms, dótturfélags Samherja, til lögreglu þar í landi. Félagið skráði sjómenn ranglega í áhöfn færeysks flutningaskips til að fá endurgreiðslu á skattgreiðslum.

Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja.
Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja.
Auglýsing

Tind­holm­ur, fær­eyskt dótt­ur­fé­lag Sam­herja, hefur greitt 345 millj­ónir króna vegna van­gold­inna skatta í rík­is­sjóð Fær­eyja. Skatt­skil félags­ins hafa sömu­leiðis verið kærð til lög­reglu í Fær­eyj­um. Frá þessu er grein í frétta­tíma fær­eyska rík­is­sjón­varps­ins í kvöld. 

Í frétta­tím­anum stað­festi Jógvan Páll Lassen, lög­maður sem kom að mál­inu, að greiðslan, alls 17 millj­ónir danskra króna, hafi verið greidd.

Málið kom upp í mars síð­ast­liðnum þegar fyrri hluti heim­ild­ar­myndar um umsvif Sam­herja í Fær­eyjum var sýnd er í fær­eyska sjón­varp­inu. Hún var unnin í sam­starfi við Kveik og Wiki­leaks. 

Þar kom fram að Íslend­ingur úr áhöfn tog­ara í eigu Sam­herja, sem gerður var út í Namib­íu, fékk laun sín greidd frá fær­eyska félag­inu Tind­holm­ur, sem Sam­herji stofn­aði þar í landi árið 2011. Gögn sýndu að hann hafi auk þess verið rang­lega skráður í áhöfn fær­eysks flutn­inga­skips í eigu Sam­herja, en útgerðum býðst 100 pró­sent end­ur­greiðsla á skatt­greiðslum áhafna slíkra skipa. 

Þannig er talið að málum hafi verið háttað með fleiri sjó­menn sem unnu fyrir Sam­herja í Namib­íu. Fyrir vikið greiddu sjó­menn­irnir ekki skatta í Namibíu og Sam­herji þurfti því ekki að bæta þeim upp tekju­tap vegna slíkra skatt­greiðslna.

Auglýsing
Í heim­ild­ar­mynd­inni kom fram að þetta fyr­ir­komu­lag væri, að mati fær­eyska skatta­sér­fræð­ings­ins Eyð­finns Jac­ob­sen, aug­ljóst brot á fær­eyskum lögum jafn­vel þótt það væri namibíska ríkið sem sitji uppi með tap­ið. 

Björn á Heyg­um, fyrr­ver­andi þing­maður í Fær­eyjum sem var stjórn­ar­for­maður Tind­holms þar til félag­inu var slitið árið 2020 og sem hefur setið í stjórnum fjölda félaga í eigu Sam­herja síð­ustu þrjá ára­tugi, sagði í þætt­inum að hann hefði verið blekkt­ur. Hann hefði ekki haft neina vit­neskju um þetta fyr­ir­komu­lag við greiðslu launa. 

Sam­herji hafn­aði fréttum um skatt­rann­sókn

Í kjöl­far þess að greint var frá mál­inu í íslenskum fjöl­miðl­um, meðal ann­ars ​RÚV, birti Sam­herji yfir­lýs­ingu á vef sínum þar sem fyr­ir­tækið sagð­ist hafa fengið stað­fest­ingu á því að engin skatt­rann­sókn væri hafin á hendur Sam­herja í Fær­eyjum.

Þar sagði að fréttir RÚV um slíkt væru rangar og að þær byggðu á rang­túlkun og útúr­snún­ingi á við­tali við yfir­mann fær­eyska skatts­ins. Sam­herji fór fram á að fréttir RÚV yrði leið­rétt­ar.

Nú hefur feng­ist stað­fest að skatta­mál Tind­holms hafi verið kærð til lög­reglu og verða rann­sökuð þar. Auk þess liggur fyr­ir, sam­kvæmt frétt fær­eyska sjón­varps­ins, að Sam­herji hafi end­ur­greitt skatta sem fyr­ir­tækið hafði komið sér undan því að greiða með áður nefndum hætti. Þ.e. með því að skrá sjó­menn sem far­menn til að fá fulla end­ur­greiðslu á skött­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent