Ríkisstjórnin ætlar að fjárfesta í fólki

Formennirnir þrír á Kjarvalsstöðum.
Formennirnir þrír á Kjarvalsstöðum. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Framsóknarflokkur, Sjálfstæðisflokkur og Vinstrihreyfingin grænt framboð hafa gert með sér nýjan sáttmála um ríkisstjórnarsamstarf, að því er segir í tilkynningu.

Nýja ríkisstjórnin ætlar meðal annars að stuðla að efnahagslegum stöðugleika, leggja áherslu á baráttuna við loftslagsbreytingar og búa íslenskt samfélag undir aukna tæknivæðingu. Auk þess ætlar hún að fjárfesta í fólki.

„Sáttmálinn fjallar um sameiginlega hagsmuni þjóðarinnar þar sem birtast leiðarstef flokkanna um efnahagslegar og félagslegar framfarir, vernd umhverfis, kraftmikla verðmætasköpun, jafnrétti kynjanna og jafnvægi byggða og kynslóða. Tekist verður á við allar áskoranir með hag almennings að markmiði og í þeirri trú að velsæld verði best tryggð með traustum efnahag, jöfnum tækifærum og aðgerðum í þágu nýsköpunar, umhverfis og loftslags,“ segir í tilkynningu.

Eins og áður segir ætlar ríkisstjórnin að stuðla að efnahagslegum stöðugleika og byggja upp styrk ríkisfjármálanna á ný á grundvelli öflugs atvinnulífs.  

Þá segir að áhersla verði lögð á framúrskarandi umhverfi til verðmætasköpunar, „þar sem til verða ný, fjölbreytt og verðmæt störf. Samspil peningastefnu, ríkisfjármála og vinnumarkaðar verður undirstaða þess að unnt sé að tryggja stöðugleika í verðlagi og vöxtum.

Sigurður Ingi Jóhansson, Katrín Jakobsdóttir og Bjarni Benediktsson.
Sigurður Ingi Jóhansson, Katrín Jakobsdóttir og Bjarni Benediktsson. Samsett mynd

Samdráttur í losun, orkuskipti og grænar fjárfestingar

Segir í tilkynningunni að í sáttmála nýrrar ríkisstjórnar sé lögð áhersla á baráttuna við loftslagsbreytingar með samdrætti í losun, orkuskiptum og grænni fjárfestingu. Þá verður tekist á við það verkefni að búa íslenskt samfélag undir aukna tæknivæðingu auk þess að tryggja áframhaldandi lífskjarasókn allra kynslóða. 

Þar að auki segir að ný ríkisstjórn ætli að fjárfesta í fólki. Þannig verði áhersla lögð á einstaklingurinn sé hjartað í kerfinu og að öflugt velferðarkerfi sé undirstaða jöfnunar og tryggi að allir geti blómstrað.

„Áfram verður unnið að því að bæta afkomu eldra fólks, og sérstaklega horft til þeirra ellilífeyrisþega sem lakast standa. Unnið verður að því að tryggja betur fjárhagslega stöðu barnafólks í gegnum skatta og bótakerfi og verður sérstaklega hugað að því að efla barnabótakerfið,“ segir að lokum í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka