Dýrin svíkja þig ekki og þau kjafta ekki frá Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar 22. janúar 2022 21:00 Elísabet Sveinsdóttir (Beta), grunnskólakennari, sem er með námskeiðin "Treystu mér". Magnús Hlynur Hreiðarsson Hundurinn Sólon og hestarnir hennar Elísabetar Sveinsdóttur á Selfossi hafa reynst henni stórkostlega í veikindum hennar því hún segir að samvera með dýrum geti haft úrslita áhrif, ekki síst fyrir andlega þáttinn, við að komast í gegnum veikindi. Það sé alltaf hægt að treysta dýrunum og þau kjafti ekki frá.
Elíasbet, alltaf kölluð Beta er með hesthús á Selfossi þar sem hún er alla daga eitthvað að sýsla í kringum hestana og að fara á bak. Hundurinn Sólon fylgir henni hvert fótspor. Beta er með námskeið , sem hafa slegið í gegn, sem hún kallar „Treystu mér“ en það er úrræði fyrir börn og unglinga, sem eiga í einhvers konar erfiðleikum, t.d. í skólanum, félagslega eða í lífinu öllu. Þar koma hestarnir og Sólon sterkir inn. Dagur Þór Atlason, 12 ára er einn af þeim, sem hafa sótt námskeið hjá Betu en hann elskar að vera í kringum hestana og hundinn. „Og við erum búin að gera fullt saman, hann kemur hér sem vinnumaður og hjálpar mér og svo erum við bara að dinglast og dólast og hann vill aldrei fara heim þegar hann kemur,“ segir Beta og hlær. Dagur Þór og hundurinn Sólon eru bestu vinir.Magnús Hlynur Hreiðarsson En af hverju er svona gott að vinna með dýr þegar eitthvað amar að? „Þau eru bara eins og þau eru. Þau eru ekki þannig að þau segi já og meini nei og þú veist í rauninni alltaf þannig lagað hvað þau eru að tala um, sérstaklega fyrir krakka sem hafa átt erfitt í skólanum félagslega og andlega, þá er voða gott að geta gengið að einhverju vísu, sem þú veist að kemur ekki til með að svíkja þig,“ segir Beta. Beta fékk krabbamein fyrir nokkrum árum og þá sótti hún mikið í dýrin þegar andlega heilsan var í molum. „Ég notaði sérstaklega Sólon og svo átti systir mín hest, sem heitir Hrammur frá Galtastöðum og það var stundum svona eins og við töluðum saman á einhverju máli. Það er rosalega erfitt að útskýra þetta nema að maður upplifi þetta sjálfur á eigin skinni,“ segir Beta og bætir við. „Bara þetta að þegar manni líður illa eða er eitthað langt niðri þá er það einhvern vegin þannig að þegar maður kemur og finnur frá þeim bæði hitann og snoppuna og allt þetta, þá hverfur allt svona, allavega í smá stund. Ég vill rauninni hvergi annars staðar vera heldur en í hesthúsinu,“ segir hún. Hér er hægt að fara inn á Facebook síðu Betu til að fá upplýsingar um námskeiðin hennar. Dagur Þór, 12 ára fær oft að fara á hestbak hjá Betu og finnst það alltaf mjög skemmtilegt.Magnús Hlynur Hreiðarsson
Árborg Hestar Landbúnaður Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Í fangelsi eins og á Litla-Hrauni gerist allt“ Innlent „Þetta breytti mér mjög mikið sem persónu“ Innlent Viðurkennir að hafa gengið of hart fram Innlent Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Innlent Búast má við slyddu Veður Ný sýn fékk meirihluta Innlent Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Innlent Eldinum í bílnum fylgdi heljarinnar sprenging Innlent Frestun verkfalla kemur til greina Innlent Ísraelsmenn vísa fréttamönnum á dyr Erlent Fleiri fréttir Eldinum í bílnum fylgdi heljarinnar sprenging Orku- og samgöngumál efst á lista nýs sveitarfélags Viðurkennir að hafa gengið of hart fram Tíðindi í kjaradeilu flugvallarstarfsmanna og bein útsending úr Bakgarðshlaupinu Frestun verkfalla kemur til greina „Í fangelsi eins og á Litla-Hrauni gerist allt“ Sáttasemjari boðar til fundar: Fimm dagar til stefnu Orkuskipti, innflytjendalöggjöf og bensínstöðvalóðirnar „Þetta breytti mér mjög mikið sem persónu“ Ný sýn fékk meirihluta Slagsmál enduðu með nefbroti Bíll logaði í Vesturbænum „Eldgosið virðist í andarslitrunum“ Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Öruggara Suðurland“ – nýtt og spennandi verkefni Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Landsmenn ánægðir með frammistöðu Höllu Tómasdóttur í kappræðunum Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin „Skrímsladeildin“ hafi skorið upp herör gegn mótframbjóðendum Katrínar Hefur ekki áhuga á slúðurfréttum af öðrum frambjóðendum Tólf tíma tökudagar og svo forsetaframboð Hvernig ætlar ríkið að sækja milljónirnar 360 sem Haraldur gaf? Flottustu Mustang bílarnir landsins til sýnis í dag Halla Hrund eigi langt í land með að tryggja sér embættið Rýnt í forsetakappræður og fylgst með Bakgarðshlaupi „Ég get ekki annað en sagt satt“ Ríflega fjörutíu prósent líst illa á Katrínu „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Sigu niður í Gretti sterka og dældu úr honum sjó Ók á tvö hundruð með lögguna á hælunum Sjá meira